Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 6

Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 6
Gamli bœrinn á Páfastöðum. Sólveig, fædd 8.2.1961. Myndhöggvari og myndlistakennari, búsett í Reykjavík. Fráskilin. Sigurður, fæddur29. 7. 1963. Búfræðingur frá Hvanneyri og bóndi á Páfastöðum. Kvæntur Kristínu Jóhannesdóttur frá Hofsósi og eiga þau þrjá drengi. Við vorum aðeins tvö alsystkini og Hilmar bróðir sjö árum eldri en ég, fæddur 1923. Fjölskylduhagir voru nokkuð sérstæðir í æsku minni því að þótt móðir mín væri gift kona bjó hún ekki með manni sínum heldur hjá foreldrum sínum á Páfastöðum. Pabbi var ekki á landinu þegar ég fæddist, en hann kom þó á Alþingishátíðina síðarum sumarið. Hann var aldrei við búskap en fór út til söngnáms ungur maður. Ég var alin upp hjá mömmu minni og Albert afa Kristjánssyni á Páfastöðum, en Guðmn Olafsdóttir amma mín dó þegar ég var eins árs. Þarna var mamma með okkur böm sín og tók við heimilinu innanstokks með afa. Hún var hjartasjúklingur frá því ég man eftir og treysti sér ekki til að fara út til pabba. Ég man lítið eftir atvikum úr bemsku minni. Þó man ég eftir að pabbi kom heim þegar ég var 6 eða 7 ára og ég man þetta vegna þess hvað ég var hrædd við hann. Þetta var svo flottur maður í klæðnaði, stór og fallegur. Fötin svo gjörólík því sem maður þekkti. Reyndar man ég aðeins eftir pabba í tvö skipti, þangað til hann kom loks alfluttur til landsins 1948 og kynntist honum ekkert fyrr en ég fór að læra hjá honum að syngja. Ég var eini krakkinn á heimilinu með fullorðnu fólki og þegar ég stækkaði lentu snúningarnir á mér. Hilmar bróðir var 7 ámm eldri en ég, fermdur 1937, sama árið og húsið var byggt, og strax upp úr því fór hann suður í Ingimarsskólann svokallaða. Eftir það var hann ekkert heima nema á sumrin. Honum leiddist allur búskapur. Frá því ég fyrst man eftir var tvíbýli heima. Steingrímur Oskarsson var giftur Guðrúnu Pétursdóttur sem var uppeldisdóttir Edda 20 ára að syngja í Kabarett í Gúttó. Lovísa IngibjörgAlbertsdóttir, móðir Eddu. Guómundur Stefánsson og Ingibjörg Stefánsdóttir. Alberts afa og Guðrúnar ömmu. Þess vegna bjuggu þau allan þennan tíma á Páfastöðum, allt til 1952, að þau fluttu út að Stóru-Gröf, en síðan norður að Sökku í Svarfaðardal til Olgu dóttur sinnar sem fædd var 1937. Mig vantaði auðvitað mikið að hafa ekki pabba eins og 54 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.