Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 13

Heima er bezt - 01.02.2006, Blaðsíða 13
Edda Skagfield og Baldur Hólm á Páfastöðum. Ljósm.: Ljósmyndaþjónustnan/Stefán Pedersen. Edda við orgelið heima hjá sér. Hawaiikvartettinn Við byrjuðum að syngja saman stelpur í skólanum. Fyrsta sinn sem ég söng einsöng var með skólakómum, 16 ára gömul. Svo var Hilmar bróðir mikið í músík, spilaði á píanó hjá Weischappel en langaði alltaf í Hawaiigítar. Hann smíðaði sjálfur fyrsta gítarinn sinn niðri í Landsmiðju. Þeir hjálpuðu honum þar því hann hafði þá engin efni á að panta sér hann. Hawaiigítar er frábrugðinn venjulegum gítar. Maður hefur hann á hnjánum og er með málmstykki sem rennt er eftir gítarhálsinum og klær á fingrum. Ég lærði á þennan gítar líka og einnig venjulegan gítar, fór samt aldrei í tónlistarskóla en komst á kvöldnámskeið hjá ýmsum. Hilmar byrjaði með sína hljómsveit veturinn 1947-1948 og hét hún Hawaiikvartettinn. Þar lék Hallur Símonarson á kontrabassa, mjög góður kontrabassaleikari, Olafur Maríusson sem átti PÓ-búðina, lék á gítar. Svo var Eyþór Þorláksson á sólógítar og loks Hilmar með Hawaiigítarinn. Þennan kvartett var hann með þangað til hann fór til Bandaríkjanna. Öskubuskur og Stallsystur Þegar ég kom suður var ég auðvitað eins og hver önnur sveitastelpa, sem gekk eins og hún væri að hlaupa í þúfum. Þær sögðu mér það seinna stelpurnar en þær voru svo góðar við mig og reyndu að leiðbeina mér. Og það bjargaði mér. Síðan þykir mér alltaf vænt um Reykjavík þótt ég mundi ekki kæra mig um að búa þar núna. Veturinn 1945-1946 fóru fjórar skólasystur mínar úr Ingimarsskólanum að æfa saman og syngja opinberlega. Þær hétu: Sigrún Jónsdóttir, Svava Vilbergsdóttir, Sólveig Jónsdóttir og Margrét Björnsdóttir og kölluðu sig Öskubuskur. Allar voru þær skólasystur úr Ingimarsskólanum, bekkjarsystur mínar og jafngamlar. En þær störfuðu bara tvö ár sem sönghópur, hættu 1947. Þá giftist Sigrún og fór að eiga börn, fluttist svo fáum árum síðar til Noregs. Svava, ein stúlknanna úr Öskubuskum, gekk síðan í annan kvartett sem stofnaður var haustið 1947. Þar komu til liðs Asta Bjamadóttir, sem giftist síðar Guðmundi Þorsteinssyni presti frá Steinnesi, skólasystir mín, og ég og síðan Guðrún Isleifsdóttir frá Hellu. Hún var sú eina sem ekki hafði verið í skólanum. Við kölluðum okkur Stallsystur og byrjuðum að æfa með Hawaiikvartettinum, sem Hilmar var þá nýbúinn að stofna. Við vorum þannig arfleifð frá Öskubuskum og tókum við af þeim, sungum dálítið óvenjulega raddað með suðuramerískum stæl. Eftir einn vetur hætti Asta en í stað hennar kom Erla Ólafsdóttir. Margrét og Sigrún héldu hins vegar áfram að syngja jafnframt okkur Stallsystrum og kölluðu sig Öskubuskur og voru gefnar út plötur með söng þeirra. En Öskubuskur vom góðar, veit svosem ekki hvort þær voru betri en við Stallsystur, við notuðum sömu útsetningartækni. Þetta var heilmikil vinna. Við æfðum alltaf niðri í Landsmiðju, oftast þrjú kvöld í viku, sungum um helgar og oftar. Tvo mánuði samfleytt sungum við í Tívolí, tvisvar í viku. Þá vorum við með amerísku slagarana, mjög lítið af íslenskum því það þótti hallærislegt. Svo sungum við úti um land, t.d. á Akranesi, austur á Hellu og víðar. Smávegis fengum við borgað en það var ekki einu sinni fyrir sokkum. Við þurftum að kosta nokkm til í klæðaburði, vomm t.d. allar í eins kjólum. En við gerðum þetta fyrst og fremst til gamans. Svo leystist kvartettinn upp þegar Svava fluttist til útlanda. Eftir það söng ég ein með ýmsum hljómsveitum, t.d. talsvert með Hauki Mortens. Ég man að við Haukur tókum upp nokkur lög, sum gullfalleg. Þar má nefna: Kom þú til mín kæra í nótt, eftir óþekktan höfund og Lárus Jónsson og það fluttum við með danshljómsveit Carl Billich (rangt sem sendur í textaskrá að það sé með hljómsveit Bjarna Böðvarssonar), Because of you eftir Wilkinson og Hammerstein, og Hvar sem ég um haf og hauður fer. Tekin voru upp mörg lög á lakkplötur með okkur Stallsystmm en engar gefnar út. Það var hrein tilviljun að þessar plötur fundust. Svavar Gests var fyrir allmörgum árum með þætti í útvarpinu, fór þá að minnast á Stallsystur og bað einhvern að upplýsa sig um hverjar þær hefðu verið. Hann hafði þá fundið lítinn kassa í kjallara útvarpshússins með plötum sem merktar voru Stallsystrum. Svava hringdi strax í hann og svo hringdi Svavar í mig. Það var síðan mest hans verk að þessar plötur komust í hreinsun og voru teknar upp á hljóðdiska. I einum þátta sinna átti Svavar svo viðtal við Svövu. Þetta á allt að vera til í útvarpinu. Heima er bezt 61

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.