Heima er bezt - 01.02.2006, Side 23
árgerð 1931.
Harry Ferguson og Henry Ford á fiundi sínum þar sem
þeir gerðu handabands-samkomulagið sitt.
láta síga með einu handfangi við hlið ekilsins.
Um miðjan þriðja áratuginn var hann farinn að framleiða
traktor sem byggður var á David Brown grind, með áföstum
plógi. Stóð sú framleiðsla í tvö ár.
Árið 1938 sýndi Harry Ferguson Henry Ford einn af David
Brown traktorunum. Upp úr því gerðu þeir félagar svokallað
„handabands-samkomulag.“ Ford verksmiðjurnar hönnuðu
og kynntu svo Ford 9N traktorinn árið 1939. Það var Fordinn
með Ferguson útbúnaðinum, eða Ford Ferguson traktorinn. Á
stríðsárunum var framleidd útgáfa af honum með jámhjólum,
sem sett var á markað árið 1942, undir númerinu 2N.
Traktorinn var málaður í gráum lit, líkt og orrustuskipin.
Ferguson hafði viljað hafa traktorinn svartan á litinn, en
starfsfólk hans sannfærði hann um að grái liturinn væri
heppilegri.
Þegar Henry Ford II tók við Ford verksmiðjunum þá dró hann
fyrirtækið út úr hinu svokallaða „handabands-samkomulagi“
og hóf að framleiða traktor undir númerinu 8N, árið 1948.
Jafnframt hætti Ford að greiða prósentur af sölu til Fergusons.
Af því urðu mikil málaferli, þar sem Ford var dæmdur til að
greiða hæðstu bætur sem um gat í sögu Ford fyrirtækisins á
þeim tíma.
Meðan á þessu stóð hafði Ferguson hafið að framleiða
traktor í Englandi, fyrir stríðshrjáða bændur Evrópu. Sá
Massey-Harris 3,
árgerð 1923.
traktor, Ferguson TE-20 var með Continental Z-120 vél, sem
byggð var í Bandaríkjunum. Var hún notuð þar til Standard
Motors verksmiðjurnar í Englandi voru tilbúnar með vél til
þessara nota.
Fergusoninum íylgdu margvísleg hjálpartæki, svo sem
lyftanlegur plógur, diskaherfí, sláttuvélargreiða, vökvalyfta,
staurabor, steypuhrærivél, o.s.frv. Einum Ferguson var breytt
þannig að hægt var að setja gúmmíbelti á milli hjólanna og
var honum ekið á suðurpólinn.
Heima er bezt 71