Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Side 25

Heima er bezt - 01.02.2006, Side 25
Asmundur Uni Gudmundsson: l' 1*7 Grimm hríð að norðan Þessi pistill greinir frá veðurfari í einn sólarhring, og húsaskipan á Krossi í Haukadal. Því miður get ég ekki ársett þetta nákvæmlega en vitna til skipsins Playing Enterprize, sem lenti í hrakningum undan Irlandsströndum í þessu sama veðri. A því var danskur skipstjóri. A þessum tíma átti ég heima hjá foreldrum mínum, þeim Guðmundi Pálma Asmundssyni (1890-1981) og konu hans, Málmfríði Jóhannsdóttur (1887- 1964), þá ábúendum á þriðju eignarjörð sinni, Krossi, sem fór í eyði 1964. H inar jarðir þeirra voru Oddstaðir í Miðdölum, þar bjuggu þau í 1 ár, og Þormóðsdalur í Mosfellssveit, 10 ár. Árið 1944 kaupir faðir minn Krossinn og leigir hann í 1 ár, flytur ekki frá Þormóðsdal íyrr en í fardögum árið 1945, og að hluta til ég sjálfur, þar sem ég var þá kominn með fjölskyldu. í Haukadal getur verið slík veðurblíða svo dögum og jafnvel vikum skiptir, að erlendar sólarstrendur blikna í samanburðinum. Ástæðan er einföld: há fjöll og þröngur dalur, þar sem hitapottar myndast mjög fljótt. Þá er hætt við að svokallaðar fjallaskúrir (hitaskúrir) hellist niður líkt og hellt sé úr fötu, en hætti svo jafn skyndilega og þær byrjuðu, auk allra annarra útgáfa af góðu veðri. Á hinn kantinn gat svo orðið snarvitlaust veður, sem menn hröktust undan, ef út þurftu að fara og byggingar héngu sem á þræði væru. Þá er hver sæll og heppin að hafa skjól. Sá hluti Haukadals sem hér um ræðir, er fyrir framan (austan) Hlaup, sem er stutt gljúfur. Sú sögn er til að einhverju sinni til foma, hafi maður hlaupið yfir gljúfrið og að þannig sé nafnið tilkomið. Þetta ömefni er á móts við Kirkjufellsrétt, sem reist var 1961. Þama sveigist dalurinn og liggur nálægt því að vera frá norðvestri í suðaustur, og sveigir að lokum í undirhlíðum Snjóljalla, vestan við Snjóljallakamb, á móts við Hvassárdal upp af Fomahvammi. I túninu á Krossi eru 7 hólar misháir og eins að umfangi. Standa leifamar af bæjarhúsunum á lægsta hólnum og þeim breiðasta. Svona 10-12 metrum vestur af honum er bæjarhóllin. Upp á honum era rústir af einhverri byggingu. Lengra frá er nokkuð hár hóll og fremur lítill að umfangi, og heitir hann Topphóll. Austur af honum er lægri og breiðari hóll, nafnlaus. Hann var notaður fyrir graífeit hrossa, sem þjónað höfðu heimilinu um langa hríð. Skáhallt á móti honum í áttina að Skarði, er enn einn hóllinn, álíka hár og nafnlaus líka, en hann fékk nafnið Tjaldhóll eftir að reist var fánastöng á honum 1946. Á milli þessara síðast töldu hóla var og er, heimreiðin, uppgróin núna. 1 framhaldi af Tjaldhóli í áttina að bænum Skarði, var svæði sem spratt fremur illa og var framhald af örnefni sem heitir Lengja, og sem gaf ekki heldur mikið gras af sér. Þetta ömefni liggur frá bæjarhúsum og í þann hól sem fjárhúsin og fjárhúshlaðan standa á. Meðfram þessari Lengju var og er, hátt barð og undir því djúpur vélgrafmn skurður. I framhaldinu af Tjaldhóli var grafið fyrir íbúðarhúsi fyrir mig, haustið 1962, og sökkull steyptur, sem stendur enn sumarið 2005, þó farinn sé að láta á sjá. Ofan á þennan sökkul átti að konia einingahús vorið eftir, frá Snorra Halldórssyni frá Magnússkógum, en hann stofnaði Húsasmiðjuna forðum. Af þessum kaupum varð ekki, vegna þess að fjölskylda mín hafði stækkað nokkuð ört og vandséð varð um skólagöngu bamanna er fram í sótti. Einnig spilaði inn í fjárhagsafkoma mín og minna, á afdalajörð, þar sem vegasamgöngur voru stopular að vetri til. Eftir að þunnu moldarlagi hafði verið ýtt ofan af grunninum, kom í ljós glerharður jökulruðningur og bútur af garðlagi eða vegg. Við hliðina á þessum vegg, eða hvað sem það nú var, fannst herðablað, sem hvað lögun varðaði, gat verið úr manni, og nú er hægt að leika sér svolitið. Sagan segir að Kolbeinn ungi hafi riðið suður um Haukadalsskarð og setið hafí verið fyrirhonum í láginni á milli Réttarhóla og Þröngaskarðs undir Klambrafelli og þar barist. Víst er um það að þar era 4-5 misfellur í landinu, sem gætu bent til þess að þar hafi menn verið urðaðir. Gera mætti að því skóna að einhverjum hafi tekist að forða sér frá þessum fundi og flúið í burtu og verið náð þama undir garðlæginu. Þetta bein fékk að fara með öðrum ruðningi fram af barðinu. Það er engum vafa undir orpið að Kross er kominn í ábúð á Landnámsöld, því þrjú stór keröld úr steini eða álíka efni, era undir steyptri hlandfor frá fjósinu. Það er vitað að brotið var skarð í eitt kerið fyrir einu hominu á hlandforinni, sem var steypt í kringum 1929. Þá er komið að bæjarhúsunum sjálfúm. Baðstofan sneri nálægt því í sömu stefnu og dalurinn. I upphafí var mjög þykkur torfveggur við austurgafl baðstofunnar, hann var rifinn 1947. Veggurinn var Ueimaerbezt 73

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.