Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Page 33

Heima er bezt - 01.02.2006, Page 33
Þáttur af Helga malara Ég var fárra ára gamall, þegar ég man fyrst eftir Helga frænda. Hann mun þá hafa verið um fertugt. Mér varð allstarsýnt á hann. Hann var svo ólíkur öllum, sem ég hafði séð. Höfuðið íyrir ofan augun var ákaflega stórt, en niðurandlitið við hæfí og fremur frítt. Skegg ljósjarpt, alskegg, alltaf greitt og vel hirt. Nokkuð var hann rangeygur, augun blágrá, svipurinn gæðalegur. Feiminn var hann og ódjarflegur; það var eins og hann væri sífellt að biðjast afsökunar á því að hafa orðið til. Hann var tæplega meðalmaður á hæð og sýndist lægri vegna þess, hve hann seig niður, þegar hann stóð. Hann var svo stirður um hné og mjaðmarliði, að hann átti mjög erfítt um gang; hann var ákaflega skrefstuttur, og þýfða jörð gat hann vart gengið, að komast upp á háa þúfu var honum ofraun, nema með því að skríða. Það var með ólíkindum, hve langt hann komst yfir daginn, þegar hann var á ferðalagi. Hann fór ætíð snemma af stað, kom hvergi til að hvílast eða fá sér hressingu, fyrr en áfanga var náð. Með þolinmæði og seiglu keppti hann að markinu. Helgi fékk ungur svæsna beinkröm, höfúðbeinin gengu í sundur og allir liðir urðu stirðir. Ungur missti hann föður sinn, gáfaðan bónda, en fátækan. Þá fór ekkjan, gáfuð kona og skörungur, á sveitina og börnin tvístruðust. Yngsta drenginn skildi hún aldrei við sig. Helgi lenti á nokkrum hrakningi og má geta nærri, hvernig ævi hans hefur verið, þegar fátækt og harðýðgi var almenn og allir urðu að vinna baki brotnu til þess að sjá lífínu borgið, og skortur, þegar harðnaði í ári. Baðstofur án upphitunar og lýsingin grútarlampi með reyk og stybbu, senr því fylgdi. Er Helgi var fullorðinn, dvaldi hann oft á heimili foreldra nrinna. Móðir mín var systir hans og sýndi honum mikið ástríki. Hversdagslega var Helgi svo búinn að hann var í grárri prjónapeysu, hnepptri að framan, vesti og brjósthlíf dökk á lit, buxur gráar úr vormeldúk. Prjónahúfu á höfði með ofurlitlum skúf í kollinum. Enginn hattur var svo stór að hann nægði honum. Á ferðalagi hafði hann klæðishúfu með skyggni og uppbroti, er draga mátti niður fyrir eyrun, þegar kalt var; var hann þá klæddur jakkafötum úr gráum eða móleitum vormeldúk. Aldrei sáust á honurn óhreinindi, enda var hann hverjum manni þrifnari. Hring úr gullblendingi, sem einhver hafði gefið honum, bar hann ætíð á baugfíngri hægri handar; var hann alltaf skínandi fágaður. Væri Helgi spurður hver væri kærastan, var ætíð sama svarið: „Gröfin og moldin.“ Vandaðri mann hef ég aldrei þekkt. Hann talaði aldrei lastyrði um nokkum mann og blótsyrði kom aldrei fram yfir varir hans. En væri honum þungt í skapi, sigu brúnir hans mjög, og djúpar og margar hrukkur rákuðu hans breiða enni. Bænrækinn var hann; sofnaði aldrei fyrr en hann hafði þulið margar bænir og signdi sig, þegar hann fór í hreina skyrtu. Og ekki var hann fyrr kominn út á morgnana en hann þreif ofan húfuna og signdi sig og flutti bæn. Aldrei neytti hann svo matar að hann signdi sig ekki áður og bæði guð að blessa matinn. Þetta var barnsvani og því fylgdi trúaralvara. Hann fann til vanmáttar síns frekar en þeir, sem hraustir voru, og hann lifði í þeirri öruggu trú, að hinum megin grafarinnar þyrfti hann ekki að dragast með þennan vanburða líkama, sem gerði honum lífið svo örðugt. Helgi var mjög barngóður. Ég heyrði hann aldrei tala styggðaryrði til bama. „Hjartans bam!“ var æði oft ávarpsorð hans, og gerði hann sig þá mjög blíðan. Öllum bömum var hann mjög kær, því hann kunni ógrynni af sögum og ævintýrum: útilegumannasögum, huldufólkssögum og tröllasögum; var þetta sótt að mestu leyti i Þjóðsögur Jóns Ámasonar. Aldrei heyrði ég hann segja börnum draugasögur; hann vildi ekki vekja hjá þeim ótta. Sögumar sagði hann í rökkrinu og á sunnudögum; mátti enginn fullorðinn vera áheyrandi. Einu sinni konr faðir minn inn í rökkrinu frá skepnuhirðingu, og þegar hann heyrði að Helgi var að segja sögu, fór hann hljóðlega. Þegar ljósið var kveikt og Helgi sá föður minn meðal áheyrenda, brá honum heldur í brún og hætti ffásögninni. Málfar hans hafði blæ þjóðsagnanna. Hann sagði sögurnar ekki í ágripi, heldur eins og þulu eða ljóð, án úrfellingar, og frásagan niðaði eins og lækur, sem líður fram hjá með hægum straumi. Mér er ekki Ijóst hvernig hann hefur numið þessar sögur, hvort hann hefur heyrt þær sagðar eða lesið þær. Hann var stirðlæs, en næmi hans var gott og minnið trútt, enda sífelld uppri Ijun sömu sagna. Gott þótti Helga vín. Faðir minn, sem var mesti hófsmaður á vín, gaf honum einu sinni, er hann kom úr kaupstað, nærri axlarfulla hálfflösku af brennivíni. Helgi varð léttbrýnn við, setti stútinn á munn sér og svalg vínið í löngum teygum, Fleima er bezt 81

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.