Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Side 35

Heima er bezt - 01.02.2006, Side 35
í honum hafði hann hversdagsklæðnað sinn og nærfatnað, og í rauninni aleiguna. Helgi var minnugur orða Jobs: „Nakinn kom ég úr móðurlífi og nakinn mun ég héðan fara, og að lokum verður mér úthlutað sex feta gröf, og hvers virði væri mér þá veraldarauður.“ Staf hafði Helgi í hendi, vel gerðan, með hnúð á endanum og broddi að neðan. Auk þess bar hann með sér mannbrodda á vetrum. Þegar leið á ævi hans, tók hann mjög að hröma og varð mjög valtur á fótum; settist hann þá um kyrrt hjá Guðmundi systursyni sínum og átti þar góða daga, því að kona Guðmundar var öllum góð. Helgi varð bráðkvaddur um 65 ára gamall. Hann var greindur að eðlisfari, en þroskaðist lítt og var alltaf bamalegur. Var það af ýmsum ástæðum. Hann hafði mjög slæma heyrn, svo að hann naut ekki frétta né viðræðna. Tæki hann sér bók í hönd, seig hið þunga höfuð hans brátt niður á bringuna og seig á hann svefnhöfgi, svo að hann naut lítt bóka. Lífsstarfíð, mölunin, var ekki vænleg til þroska, og hlédrægni hans og feimni orkuðu lamandi á sálarlíf hans. En hann var góður maður og vandaður og ólíkur ýmsum reikunarmönnum, sem uppi vom um hans daga. B.M. MYNDBROT Att þú í fórum þínum skemmtilega mynd, t.d. af atburði, stað, húsum, dýrum eða fólki, sem gaman væri að birta í Myndbroti? Ef svo er því ekki að senda okkur hana til birtingar og leyfa lesendum HEB að njóta hennar líka? Fastur uppi í tré? I september á s.L árí, sást j'ólur maður með liræðslusvip, ríghahla sér í tré, allnokkuð frájörðu, og var svo að sjá að honum vœri ómögulegt að klifra niður á jöróina aftur (mynd 1). Ahyggjufulltfólk tók að hringja í neyðarlínuna til að láta vita afþessu, einnig safnaðist nokkur hópur fyrir neðan og reyndi að kalla ímanninn og hvetja hann til þess að klifra niður, en hann hrást ekki við á nokkurn hátt. Starfsmaður neyðarþjónustunnar sagði að símhringingar vegna þessa vœru enn að eiga sér stað til þeirra þegar komið var fram í októher, en nágrannarnir virtust þó hafa áttað sig á því að þarna vœri fátt hægt að gera ti! hjálpar. Maðurinn er nefnilega geróur úr trejjagleri og er listaverk eftir konu að nafni Susanna Hesselberg. Hún setti annan slíkan upp í tré í Parísarborg (mynd 2) og á hann að vera þar fram íjúní á þessu ári. Þar mun svipað hafa átt sér stað, áhyggjufullir vegfarendur hringdu í lögregluna, og töldu þeir að maðurinn væri að reyna að komast inn um nálægan glllgga. Heimitd: Expressen, 2005 Heima er bezt 83

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.