Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Qupperneq 37

Heima er bezt - 01.02.2006, Qupperneq 37
Lífs við stjá, er líður hjá, er líkn aðfá að gleyma, hversu þrái sárt að sjá sundin bláu heima. „Oft er“ hefur stundum verið viðfangsefni vísna hagyrðinga. Hér fara á eftir þrjár vísur þess kyns eftir Sigurbjöm Stefánsson: Oft er kvika í úthöfum, óvænt hik hjá byrjendum, fólgin svik í samrœðum, sólarblik á öldunum. Oft er Ijós í Ijórunum, lagður ós á vatnsföllum, fögur rós í fjallshlíðum, falin glósa í lofsyrðum. Oft er freri á útnesjum, ágœt ber í móunum, jlúð og sker í jjörðunum, fœlin meri á afréttum. Við lát Sveins Hannessonar frá Elivogum (1889-1945) orti Sigurbjörn þrjár vísur, sem hann nefnir Saknað manns. Harmur brann við tungutak; til ég fann, er vini söngva-anna sá á bak, - Sveini Hannessyni. Betur flestum móðurmál meitlaði, hressti geðið. Einatt hvessti orðsins stál, eins og best er kveðið. Lék að hættum listamanns, Ijóðamœtti hlaðinn. Verður œtt og örfum hans aldrei bættur skaðinn. Haraldur Zophóníasson á Jaðri við Dalvík var ágætur hagyrðingur, sem Sigurbjörn minntist, og notar sléttubönd, eins og lesendur geta sannprófað, með því að lesa vísurnar aftur á bak sem áfram : Kættu fljóðin, mæta menn, mildum óðarb/óma. Bættu Ijóðin ágæt, enn - Islands þjóðarsóma. Syngdu málum gœóa gulls, - glói stálhreinn sjóður. Klingdu skálum fræða fulls, flói sálrœnn óður. Hljóttu friðinn, gengi góðs, - gieymist niður kífsins. Njóttu griða, ástaróðs, - unaðshliða lífsins. Og mér finnst fara vel á því að höfundur minnist Skagafjarðar í lok þessa þáttar. Meðan líf á leiftursýn, leitar í gamlar skorður. Hvergi sólin skærar skín en Skagafirði norður. Sjálfur veit ég vel og finn; í verkum dags og Ijóðum, starfar hálfur hugur minn heima á œskuslóðum. Börnin taka brátt að sjá blómum þakinn völlinn. Mannsins vaka í munaþrá myndir bak við föllin. I lokin er svo þessi staka, sem felur í sér ósk um hinsta hvílustaðinn: Lifir vonin alltaf ein eftir hrakning jarðar. Megi hvíla marghrjáð bein í moldu Skagafarðar. Vonandi hafið þið eitthvert gagn og gaman af að lesa þessar vísur eftir Sigurbjöm Stefánsson. Dægurljóð Góðir ljóðaunnendur og dægurljóða. Góð skáld, sem svo eru nefnd, hafa ort dægurljóð. Má meðal annarra nefna Tómas Guðmundsson. En hann lætur lítið hafa eftir sér á þeim vettvangi í ljóðasöfnum sínum. Hitt er annað mál, að samin hafa verið ágæt sönglög við ljóð Tómasar. Gylfi Þ. Gíslason samdi nokkur sönglög við ljóð Borgarskáldsins. Það sagði Gylfi mér, en ég varð þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast honum dálítið. Gylfi var hlý persóna. Þegar hann varð áttræður, var honum haldin mikil sönghátíð í Gamla Bíói eða Operunni. Þar birtist vel, hversu mikið tónskáld Gylfi var og ljóðrænn með afbrigðum. Sonur skáldsins Þorsteins Gíslasonar, sem orti hið fallega ljóð „Fyrstu vordægur“, sem margir kunna utan að, vegna þess léttleika, sem það er gætt. Mér fínnst fara vel á að helga þennan dægurljóðaþátt að mestu feðgunum Gylfa og Þorsteini. Heimaerbezt 85

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.