Heima er bezt


Heima er bezt - 01.02.2006, Side 40

Heima er bezt - 01.02.2006, Side 40
sauðum, geitum og ösnum til þessa, en á norðurslóðum þóttu kálfskinn henta hvað best til skrifta. Skinn til bókagerðar voru skafín og hreinsuð vandlega í kalklegi og loks nudduð eða strokin með vikursteini eða öðru álíka, svo að þau fengju ljósa og slétta áferð. Pergament hafði yfírburði yfír papýrus að því leyti að það var ekki eins viðkvæmt og auk þess miklu endingarbetra. En það var líka margfalt dýrara. I fornöld og langleiðina út miðaldir voru papýrus og skinn notuð jöfnum höndum til ritstarfa. I suðlægum löndum voru bækur þó miklu oftar skrifaðar á papýrus, en skjöl og samningar sem og aðrir gjörningar er áttu að endast lengi voru oftast ritaðir á pergament. Um og upp úr aldamótunum 1000 tók framleiðsla á papýrus að dragast saman og leið síðan undir lok á næstu öldum. Virðist svo sem pappír sem búinn var til úr bómull og var þá nýlega kominn til sögunnar í suðlægum löndum hafí að mestu útrýmt þessari fornu iðnaðarvöru Egypta. En það voru Kínverjar sem fundið höfðu upp að búa til pappír um það bil einni öld fyrir Krist og breiddist þessi tækni hægt og sígandi út frá þeim á nokkrum öldum. Um aldamótin 600 eftir Krist var til dæmis borgin Samarkand í Mið-Asíu orðinn helsti framleiðslustaður fýrir pappír af þessari gerð. Talið er síðan að bæði hráefni og aðferðir til að búa til pappír hafí borist með Aröbum eins og margt annað til landanna við austanvert Miðjarðarhaf og tekið að breiðast þar út á 11. og 12. öld. Arabamir endurbættu líka pappírsvinnsluna með ýmsum hætti og fundu upp að nota lín og léreft og alls konar tuskur í staðinn fýrir bómull. Upp úr aldamótunum 1400 virðist sem framleiðsla og notkun pappírs hafí aukist mjög í mörgum löndum Evrópu. Kom þessi aukna útbreiðsla einkum til af því að meira framboð var þá af hentugu hráefni til pappirsgerðar, því að þá fyrst var það orðið algengt að fólk notaði undirföt. Slitinn nærfatnaður úr bómull þótti nefnilega henta sérlega vel til þessa iðnaðar. A þeim tímum tóku víða að rísa pappírsverksmiðjur eða pappírsmyllur eins og þær voru nefndar. Framan af fór þessi starfsemi einkum fram á Ítalíu og fleiri löndum við Miðjarðarhaf, en ekki leið á löngu þar til slíkar myllur tækju líka til starfa norðan Alpaljalla. Svo gerðist það að Gutenberg fann upp prentlistina um 1440 og prentun bóka hófst síðan á seinni hluta 15. aldar. Pappír var forsenda prenttækninnar og með tilkomu prentlistarinnar jókst mjög eftirspurn eftir pappír. Varð pappírsnotkun þá brátt útbreidd og almenn í flestum löndum Norðurálfu. Talið er að fyrsta pappírsmyllan í Danmörku hafi verið stofnsett árið 1570 og fleiri fylgdu á eftir bæði þar og víðar á Norðurlöndum. Ekki er kunnugt um hvenær pappír tók að flytjast til Islands, en hann byrjaði þá brátt að leysa bókfell eða kálfskinn af hólmi til skrifta og bókagerðar. Vart mun það þó hafa gerst fyrr en á 15. öld og ekki varð algengt að nota pappír til ritstarfa fýrr en á 16. öld. En þótt pappír kæmi þetta snemma í gagnið hér á landi, þá notuðu menn samt bókfellið lengi vel nokkuð jafnhliða hinu nýja efni og voru þannig pappír og skinn í gangi nokkuð jöfnum höndum til ritstarfa. En þegar kom fram á 17. öld verður pappír brátt eina efnið sem menn notuðu, þegar þeir þurftu að festa einhver orð á blað og hefur svo verið í sívaxandi mæli alla tíð síðan. _ Steinunn R. Eyjólfsdóttir: Víst fer það ekki fram hjá neinum að orð og orðatiltæki komast í tísku, alveg eins og föt eða bílar til dæmis. Eg minnist þess að á unglingsárum mínum var fólk eilíflega „reddí“ (ready), þ. e. tilbúið, ef það var að fara eitthvað. Nú hefur sem betur fer ekki nokkur maður verið „reddí“ í áratugi. Það mun þó ekki vera vegna þess að fólk ferðist minna en áður, heldur hefur þessi leiða sletta fallið í gleymsku - en því miður aðrar komið í hennar stað. Ein af vinsælustu tískuslettum þessa dagana er orðið flóra. í einhverjum dýragarði átti að auka dýraflóruna. í skólum er vitaskuld námsbókaflóra. Mannanafnaflóran er afar mikilvæg, eins augljóst hlýtur að vera. Þetta óyndislega orð er hengt aftan við nánast hvaða nafnorð sem er. Flórutískan er því undarlegri sem hennar er hvað síst þörf af öllum slettum. Án þess að ég telji þörf fyrir neitt af þeim. En hvað flóruna snertir ná önnur orð oft betur að túlka það sem átt er við. Ríki, úrval, hefð, menning, svo eitthvað sé nefnt. En engu er líkara en menn vilji sleppa við að hugsa og troði því alls konar ólíkum hugtökum undir flórunafnið. Vonandi hafa málvöndunarmenn - sem nú virðast, guði sé lof, vera að rumska í sínum Þyrnirósarturni - ekki mjög heita ást á þessu orði. Því það er nú eitt af því sem stöðugt glymur í eyrum manns, hversu fólk elskar alla skapaða hluti. Ekki aðeins maka sína, eins og dugði nú í grárri fomeskju, ekki aðeins (jölskylduna, jafnvel hundinn og köttinn þegar lengst gekk. Nei, nú er fólk kærleiksríkara en svo. Það elskar skóna sína og úlpumar, bílana og reiðhjólin, sápur og ilmvötn, mat og drykk. Eg verð að játa að mér letti héma um daginn, þegar lítil stúlka tilkynnti mér að hún elskaði ekki grænar baunir, þó ég hefði heldur viljað heyra að henni þætti þær ekki góðar. Þessi ofnotkun ástarjátninga til allskonar drasls er ljóst dæmi þess hvernig falleg orð geta orðið marklaus og útjöskuð. Hvers vegna getur matur ekki verið hreint og beint góður eða frábær, bíllinn einstakur, úlpan ómissandi? Varla þarf maður að úthella ást sinni yfír þetta allt saman. 88 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.