Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Side 6

Heima er bezt - 01.09.2006, Side 6
Lengi var M. R. sigurstranglegur í þessari keppni, sem öll þjóðin fylgdist með. Hér voru fjölfróðir unglingar á ferð. Hjónin, Guðmundur Guðmundsson og Anna Friðriksdóttir ætla að segja okkur frá dvöl sinni í Mósambík, sem varaði á þriðja ár. En áður en að því kemur, skal nokkur grein gerð fyrir þessum ágætu hjónum, ætt þeirra og uppruna. Guðmundur er fæddur í Svíþjóð 8. ágúst 1954. Uppalinn í Reykjavík. Hann varð stúdent frá Menntaskólanum við Tjömina 1974, en lauk síðar prófi sem matvælafræðingur frá Háskóla íslands, og starfar hjá Iðntæknistofnun. Guðmundur hefur áhuga á tónlist og leikur á gítar sér til ánægju. Einnig hefur hann yndi af silungsveiði. Faðir Guðmundar er Guðmundur Helgason, raffræðingur, sonur Helga Guðmundssonar bankastjóra Utvegsbankans, en hann var bróðir Ásmundar biskups og þeirra systkina frá Reykholti í Borgarfirði, sem áttu að föður séra Guðmund Helgason frá Birtingaholti. Móðir Guðmundar er Katrín Sverrisdóttir Thoroddsen, en faðir hennar var sonur Skúla Thoroddsen og Theódóru, konu hans, sem var þekkt skáldkona. Kona Guðmundar matvælafræðings er Anna Friðriksdóttir. Hún er fædd 10. apríl 1955 á Akureyri, dóttir Friðriks Kristjánssonar, trésmiðs, á Hrafnagili, og Kolfinnu Gerðar Pálsdóttur, húsmæðrakennara. Friðrik er bróðir hinna kunnu klerka, Benjamíns og Bjartmars, frá Ytri-Tjömum í Öngulsstaðahreppi. Móðir Önnu er ættuð úr Vestur- Húnavatnssýslu, lengi húsmæðrakennari og starfandi við félagsmál, er enn meðhjálpari í Grundarkirkju. Anna er með próf í matvæla- og lyfjafræði, þótt lengst af hafi hún starfað sem lyijafræðingur. Hún hefur áhuga á ferðalögum og lestri góðra bóka. Þau hjón eiga þrjá syni, sem heita Sverrir, Snæbjöm og Eyjólfur. Ég lagði nokkrar spurningar fyrir hjónin, og spurði þau fyrst hvers vegna þau hefðu farið til Afríku til dvalar og starfa þar. Þau svöruðu mér þannig: - Við vomm komin á miðjan aldur og vildum gjarnan breyta til og sjá, hvemig okkur líkaði að búa erlendis. Við höfðum hugsað okkur, að ef tækifæri gæfist, mund- um við reyna að fara eitthvað lengra en til næstu nágrannalanda, þar sem við töldum, að lífíð væri um flest svipað því, sem er hér heima. Það má því segja, að þegar Þróunarsamvinnustofnun Islands auglýsti starf matvælafræðings í Mósambík hafí andinn verið reiðubúinn, og við slógum strax Ut á Tónni í Dyrhólaey. uuumunuur meu veiuinu, vieinju ur Hraimsfirði á Sncefellsnesi. til. Guðmundur sótti um starfið og fékk það. Þetta var árið 2001, en þróunar- aðstoð Islendinga við Mósambík hafði þá staðið í nokkur ár. Uppbygging eftirlitskerfís fyrir mósambískan sjávarútveg var veigamesti þátturinn í aðstoðinni, og munaði þar mest um uppbyggingu rannsóknastofu í höfuðborginni Mapútó. Þegar við komum til Mósambík um rnitt ár 2001, var rannsóknastofan risin, en starf Guðmundar fólst í því að koma henni af stað, setja upp tækjabúnað og þjálfa starfsfólkið. í Mapútó vorum við búsett í tvö og hálft ár, eða til loka ársins 2003. Nú spyr ég, hvort þeim hafi fundist ómaksins vert að fara til Mósambík. - Það var margfaldlega þess 430 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.