Heima er bezt - 01.09.2006, Qupperneq 7
Mynd tekin 1959. Ingibjörg, Snæbjörn,
Gerðnr, Baldur, Friðrik, Anna og Fanney.
I kjól firá
Mósambík.
Sumarið 1977.
virði. Við þurftum töluvert að leggja á okkur, því það tekur
á að aðlagast framandi umhverfi, en við öðluðumst dýnnæta
reynslu. Segja má, að við lítum veröldina öðrum augum eftir
þessa dvöl. Fyrir utan það að kynnast merkilegum þjóðum og
fallegri náttúru, náðum við að tileinka okkur nýtt tungumál. í
Mósambík búa margar þjóðir og tala mismunandi bantúmál,
en portúgalska er opinbert tungumál, og nauðsynlegt að ná
einhverjum tökum á henni. Það verður að segjast eins og er,
að við höfðum mikið íyrir portúgölskunáminu, en náðum því
þó að gera okkkur sæmilega skiljanleg. Sjálfsagt hefði verið
auðveldara að læra nýtt tungumál, hefðum við verið yngri,
þegar við fórum utan, en á móti kemur, að aðrir hlutir eru
erfíðari og yfírsýnin minni, þegar maður er ungur að árum.
Hvað um lífshagi og lífskjör þarna í Mósambík?
- Mósambík er eitt fátækasta land í heimi og ástandið
bágborið á flestum sviðurn. Ævilíkur við fæðingu eru aðeins
40 ár og ungbamadauði mjög hár. Til samanburðar eru ævilíkur
við fæðingu hér á landi tvöfalt hærri og ungbamadauði sá
lægsti í heimi. Næringarskortur og alvarlegir sjúkdómar, eins
og malaría og eyðni, herja í Mósambík. Fátæktin er gífurleg
og víða er fólk við hungurmörkin, þannig að ckkert má út af
bregða. Langvarandi þurrkar eru mjög alvarlegt vandamál
í sunnanverðri Afríku og tengja margir það breytingum í
veðurfari. Af þeim sökum hefur uppskeran ítrekað bmgðist
að miklu eða öllu leyti. Tölur um efnahag þjóða eiga það til
1 Laxárdal í Arnessýslu. Katrin og Guðmundur, foreldrar
Guðmundar, á einum af sínum uppáhalds tjaldstöðum.
Friðrik.faðir Önnu, Guðmundur, Anna og Gerður móðir
hennar, að Hrafnagili í Eyjafirði.
Heima er bezt 431