Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 8

Heima er bezt - 01.09.2006, Blaðsíða 8
að vera eins og hver önnur talnaruna, sem engan snertir, en á bak við hagtölur í Afríku eru miklar hörmungar. Sem betur fer heíur mikil uppbygging átt sér stað í Mósambík síðasta áratuginn og efnahagur landsins hefur smám saman mjakast upp á við. Hann var í rúst eftir harðvítugt borgarastríð, en eftir að friður komst loks á 1992, hefiir leiðin legið upp á við. Því miður virðist batinn oft vera einskorðaður við einstakar atvinnugreinar og ákveðin svæði. Úti á landsbyggðinni, þar sem þorri landsmanna býr, ganga allar breytingar óskaplega hægt fyrir sig. Mjög mikið vantar upp á, að menntun og skólakerfi í Mósambík sé viðunandi. Olæsi er mikið, en aðeins innan við helmingur fullorðinna kann að lesa. Konur bera þar skarðan hlut frá borði, en menntun þeirra er mun lakari en karlanna. Hvað fannst ykkur um kynni við fólkið? -Við hjónin kynntumst mörg- um Mósambíkum. Þeir eru glað- legir og vingjamlegir, og þrátt fyrir útlitsmun og gífurlegan aðstöðumun, þá em þeir ósköp svipaðir Islendingum. Þeir hafa sömu væntingar til lífsins og vilja mennta sig, stofna ljölskyldu og eignast þak yfir höfuðið. Sumir era duglegir og þrautseigir, aðrir rólegir í tíðinni eins og gengur. Við höfum gaman af fólki en það er æskilegt, þegar farið er á framandi slóðir. Til þess að njóta þess til fulls að búa í Mósambík, verður að grípa hvert tækifæri til þess að kynnast samfélagi innfæddra. Vilduð þið ráðleggja fólki að starfa þarna um tíma? - Þeir, sem era svo lánsamir að fá tækifæri til þess að starfa í Mósambík, ættu að íhuga það rækilega og drífa sig, ef mögulegt er. Með því að starfa og búa í ríkjum þriðja heimsins fá menn lífsreynslu, sem þeir búa að ævilangt. Þeir öðlast nýjan skilning á veröldinni, sjálfum sér og sínum heimahögum. I sumarbustað sumarið 1990. Sverrir, Guðmundur, Snœbjörn, Anna og Eyjólfur. vökvað með yfirborðsvatni. Nauðsynlegt er að gera ráðstafanir tii þess að verjast moskítóflugum. Þær era ekki aðeins hvimleiðar, heldur bera þær með sér lífshættulega sjúkdóma, eins og malaríu. A hverju ári leggur malaría þúsundir Mósambíka að velli. Þótt okkur hafi ekki fundist Mapútó hættuleg, Anna með föður sínum á Þingvöllum, í júlí 2004. Sverrir og Snæbjörn með „Hljóðnemann“, verðlaunagrip Rikisútvarpsins, en þeir kepptu í þættinum „ Gettu betur“, fyrir hönd Menntaskólans í Reykjavík. Hvað vilduð þið ráðleggja fólki, sem dveldi í Afríku? - Skilyðislaust ber að fara að ráðum lækna og hjúkrunarfólks um það, hvemig best sé að forðast hættulega sjúkdóma, sem herja víða í Afríku. Einnig er rétt að vara sig á menguðu drykkjarvatni og hrámeti, eins og hráu grænmeti, sem oft er 1 desember 2003. Snæbjörn, Ósk (eiginkona Sverris), Eyjólfur og Sverrir. era erlendir ferðamenn alltaf eftirsótt fómarlömb glæpamanna af ýmsu tagi. Ofbeldisglæpir era sem betur fer ekki mjög algengir í Mapútó, en sumar borgir í Afríku era mjög hættlegar, eins og t. d. Jóhannesarborg, og áður en lagt er af stað er því rétt að kynna sér vel ástandið á þeim svæðum, þar sem ætlunin er að dvelja. Þeir, sem ætla að dvelja til langs tíma í Mósambík, gerðu rétt í því að temja sér þolinmæði, kynna sér venjur og siði innfæddra sem best og taka tillit til þeirra. Þannig má forða mörgum árekstrinum, sem stafar af menningarmun. Hroki og belgingur kemur manni alltaf í koll. Höfðuð þið tök á að ferðast um Afríku? - Við ferðuðumst raunar ekki mikið um Afríku, heldur 432 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.