Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Side 9

Heima er bezt - 01.09.2006, Side 9
Guðmundur ásamt samstarfsfólki sími í Mósambík. aðeins til næstu nágrannalanda, til Svasilands og Suður- Afríku, en þangað er stuttur vegur frá Mapútó. Svasiland er mjög frábrugðið Mósambík. Þar búa ekki fjölmargar þjóðir með mismunandi tungumál, heldur ein þjóð, sem talar eitt tungumál. Saga Svasilands er líka mjög ólík sögu Mósambíks. Landið er konungsríki og var undir stjóm Breta, en ekki Portúgala. Suður-Afríka er svo gjörólík hinum löndunum tveimur. Hún er mjög stórt land og efnahagurinn miklu þróaðri en en í öðmm löndum um sunnanverða Afríku. Engu að síður er gjáin milli hvítra og svartra augljós. Með mikilli einföldun má segja, að í Suður-Afríku séu tvö aðskilin þjóðfélög. Annars vegar ríkt velmegunarþjóðfélag, og hins vegar bláfátækt þjóðfélag hinna svörtu. Það er best að taka það fram, að útilokað er að alhæfa um Afríku og íbúa hennar. Alfan er geysistór, og hvert ríki hennar með sínu sniði. Breytileikinn milli þjóðfélaga og landa er að okkar mati miklu meiri en t. d. innan Evrópu. A ferð í Mósambík. Eigið þið minjagripi frá Afríku? - Við eigum margvíslega minjagripi frá Afríku, þótt minningamar, sem við geymum í huga okkar, séu það sem mestu máli skiptir. Mósambíkar em flinkir tréskurðarmenn, og batíkmyndimar frá þeim era margar fallegar. Af öðrum minjagripum má nefna vefnaðarvöru frá Simbabve og grímur af ýmsu tagi. Grímumenning Afríku fmnst okkur alveg sérstaklega skemmtileg. Það er líkast því, að hver þjóð Afríku eigi sína sérstöku grímuhefð. Við höfnina í Mapútó. Finnst ykkur þið hafa haft gott af að dvelja í Afríku / Mósasmbík? - Vissulega höfðum við gott af því að kynnast lífinu í fátæku þriðja heims ríki, og um leið sáum við islenskt Markaður í Macia. Heimaerbezt 433

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.