Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Page 14

Heima er bezt - 01.09.2006, Page 14
Mjóeyri á Eskifirði. Leiksvœði barnanna. Ég hófsem ungur maður störf á skrifstofu sýslumannsins á Eskifirði hjá Magnúsi Gíslasyni sýslumanni árið 1936. Þá var þar sýslufulltrúi Emii Björnsson, hinn besti drengur, mikill félagsmálamaður, sérstakur maður bœði söngs og gleði. Eftir að Magnús sýslumaður fór á þing og varð jafnframt aðalmaður ífjármálaráðuneytinu leið ekki á löngu að hann réði Emil sér til fulltingis í ráðuneytinu. Eftir að Emilflutti suður var ég um tíma aðalmaður á sýsluskrifstofunni eða þar til að Lúðvík Ingvarsson, lögfrœðingur tók við sem sýslumaður. Einn dag í ársbyrjun 1942 fæ ég símskeyti frá Stykkishólmi sem átti eftir að ráða örlögum mínum. Davíð Jóhannesson, mikill vinur minn, var símstjóri á Eskifírði. Hann hringir til mín og segir: „Þá erum við að missa þig héðan.“ „Af hverju heldur þú það?“ spyr ég á móti. „Komdu við hjá mér þegar þú ferð heim“ segir hann. Ég geri það og þegar vió hittumst þá afhendir hann mér símskeyti. Skeytið hljóðaði svo: „Viltu ráða þig sem sýsluskrifara í Stykkishólmi í vetur eða lengur? Grunnlaun minnst 350 kr. á mánuði. Símsvar á morgun til mín í Stykkishólm. Emil Bjömsson.“ Til samanburðar má geta þess að grunnlaun mín á Eskifírði vom 220 kr. Ég fer strax heim og sýni mömmu skeytið en hún lá þá banaleguna. „Taktu þessu tilboði“ segir hún. „Ég er Arni Helgason, Stykkishólmi: á förum og það verður enginn til að halda þér heimili hér. Sendu Emil svarskeyti strax í fyrramálið. Annars verður farið að hræra í þér að vera kyrr. Það verður sjálfsagt erfitt fyrir þig að losa þig héðan en þetta verður þér til blessunar.“ Þessum orðum mömmu gleymi ég aldrei. Þegar ég sagði Lúðvík frá þessari ákvörðun minni varð hann svolítið þungbrýnn en skildi mig og lagði blessun sína yfír þetta og óskaði mér góðs gengis. Ég bjó mig undir ferðina til Stykkishólms. Lauk uppgjöri ársins þann 19. janúar og daginn eftir kom Esjan að norðan. Þá var ég tilbúinn með farangurinn sem var einungis skrifborðið hans afa og kista sem tók alla búslóðina. Frásaga mín hér á eftir af ferðinni í Hólminn lýsir vel hversu samgöngur voru strjálar og erfiðar á þessum árum. Þegar ég steig um borð í Esjuna hitti 438 Heimaerbezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.