Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Side 19

Heima er bezt - 01.09.2006, Side 19
hann hafí snemma sameinað atorku, auð og höfðingsskap. Hákon og Ingveldur eignuðust tvö böm, sem bæði létust í frumbemsku. Ekki verður annað séð en Hákon hafí lifað í tvíkvæni, en árið 1809 í ágústmánuði, þegar Jömndur Hundadagakonungur réði hér ríkjum, segir sagan að Hákon hafi farið á hans fund og fengið leyfí til að kvænast Önnu Jónsdóttur, Sighvatssonar, dannebroksmanns í Ytri-Njarðvík. Með Önnu eignaðist Hákon sex böm, sem öll vom hið mesta myndarfólk. Sonur þeirra var Vilhjálmur K.ristinn, sem tók við Kirkjuvognum. Hákon Vilhjálmsson lést 1820. Vilhjálmur Kristinn Hákonarson, óðalsbóndi í Kirkjuvogi, sá um byggingu kirkjunnar sem enn stendur í Kirkjuvogi í Höfnum. Hann byrjaði verkið á því að láta vinnumenn sína liggja við suður í Krossvíkum, sem eru á sunnanverðu Reykjanesi, en þar var mikill reki. Vinnumenn hans söguðu niður stór rekatré sem notuð voru í kirkjubygginguna. Rekann hafði Vilhjálmur á leigu frá prestinum á Stað í Grindavík. Vilhjálmur kostaði sjálfur kirkjubygginguna. Það var byrjað á byggingunni um haustið 1860 og fór vígsla kirkjunnar fram 26. nóvember 1861.1 lýsingu segir: „Þetta er ferhyrnd altimburkirkja með turni.“ Byggingin mun hafa kostað 1044 ríkisdali. Einar hét yfírsmiður kirkjunnar og því miður hefur greinarhöfundi ekki tekist að fínna föðumafn hans. Þann 25. ágúst 1861 vísiteraði prófasturinn sr. Ólafur Pálsson kirkjuna í fyrsta skipti. Hann lýsti kirkjunni þannig: „Hún er að allri gjörð hið vandaðasta og veglegasta hús, á lengd 14 álnir og 2 þumlungar og á breidd 10 álnir, hvomtveggja utan þiljað. Húsið er alveg byggt af timbri með tvöföldu vönduðu timburþaki og beklæðningu, sett á háan rambyggilegan grunnmúr af steini“. Kirkjan er rík af merkilegum munum. Ketill Jónsson í Kotvogi gaf kaleikinn, Þorbjörn Benediktsson og fjölskylda hans gáfu 7 kertastjaka, sr. Jón Thorarensen gaf skírnarfontinn, altarisdúkinn gaf Halldóra Ólafsdóttir Grettisgötu 26, Reykjavík, prestskniðann og koparhjálminn gaf málfundafélag sem starfaði í Höfnum, Magnús Ketilsson gaf báða ofnana, bæði þann sem núna er í kirkjunni og hinn fyrri, Jón Jónsson kennari gaf 5 sálmabækur, kertastjakana sem eru á veggjum kirkjunnar gáfu bræðurnir Eiríkur og Sigurður Jónssynir, og Helgi Ólafsson gaf sálmabókartöflu. Einnig mun kirkjan hafa fengið talsvet af peningagjöfum. Arið 1 867 var byggt við kirkjuna þriggja álna löng forkirkja með hvelfdu þaki. Þá var einnig byggður kór, rúmlega sex álnir bæði lengd og breidd. Arið 1894 voru gagngerðar endurbætur gerðar á kirkjunni. Þá var hún jámklædd, grunnur og tröppur sementaðar. Gluggar endumýjaðir á suðurhlið og bogi yfír kór endurbættur. Endurbætur á kirkjunni kostuðu 717 ríkisdali. Kirkjan varmáluð að innan árið 1906 og þá var einnig pappalagt þakið á forkirkjunni. Umtalsverðar endurbætur vom gerðar árið 1925. Þá varforkirkjanjárnklædd og turninn líka. Skipt var um gólf í forkirkjunni og uppgangur á loft var færður í forkirkjuna. Þá fór fram talsverð málningarvinna utan á byggingunni. A tímabilinu frá 1925 til 1942 varkirkjan mikið endurbætt og hún var múrhúðuð að utan árið 1934. Suðurhliðin var að mestu leyti tekin úr kirkjubyggingunni og endurnýjuð árið 1942, og um leið var ytri klæðning á austurgafli bætt og skipt um alla glugga. Ekki er vitað hvað verkið kostaði. Kirkjuvogskirkja var síðan aflient söfnuðinum til umsjónar og fjárhalds þann 6. september 1942. Séra Hálfdán Helgason vísiteraði um Suðumes haustið 1944. Hann kom í Kirkjuvogskirkju 6. október og sagði að ofninn í kirkjunni væri orðinn mjög lélegur og það þyrfti að ráða bót á því. Einnig var nauðsynlegt að hækka reykháfinn, því að í norðaustanátt fylltist kirkjan af reyk. Tveimur árum síðar er getið um það í vísitasíu, að nýr og vandaður ofn sé korninn í kirkjuna, gefinn af Magnúsi Ketilsyni og Vilhjálmi Magnússyni. Arið 1955 var keypt pípuorgel fyrir söfnunarfé. Það var notað orgel frá Hafnarfjarðarkirkju. Safnaðarmeðlimir söfnuðu fyrir orgelinu og stóðu Ríkarður Asgeirsson meðhjálpari og Jón Mýrdal organisti fyrir söfnuninni. Arið eftir var Kirkjuvogskirkja raflýst og rafliituð. Miklar umræður sköpuðust um það árið 1957, hvort ætti að endurbyggja kirkjuna eða rífa hana og byggja nýja. Sem betur fer var ákveðið að endurbæta kirkjuna, þó að hún væri illa farin enda að verða hundrað ára. Þessi fallega kirkja setur mikinn svip á Hafnir. Frá fýrstu tíð hefur hún verið sóknarkirkja Hafnarmanna en af heimildum að dæma hefur þar aldrei verið prestssetur. I garðinum era legsteinar höfðingja Hafnarhrepps eins og Vilhjálms Ketilssonar og margra annarra mætra manna og kvenna. A tumi kirkjunnar er jámstöng, efst á henni er jámplata. A hana er letrað fangamark Vilhjálms Chr. Hákonarsonar og ártalið 1861. Heima er bezt 443

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.