Heima er bezt - 01.09.2006, Síða 27
Hjalti Pálsson
frá Hofi
Byggðarminjar
á Kvarningsdal
r
í síðasta blaði jjölluðum við um Kvarningsdal á
mótum Skagafjarðar og Austur-Húnavatnssýslu
og þjóðsögur honum tengdar. Hér á eftir verða
dregin saman nokkur atriði varðandi byggð
og búsetuminjar á Kvarningsdal. Mannlifið er
horfið af götuslóðum hans utan þeirra fáu sem
þangað leggja leið sína við fjárleitir eða sér til
gamans. Saga hans er týnd, aðeins eimurinn eftir
og lítiljjörleg tóftarbrot hulin grasi og moldu sem
tíminn leitast við að má út endanlega. Við getum
einungis reynt að hugleiða.
stund og staðir
í Skagafirði
5. þáttur
Oljósar sagnir eru um byggð á Kvamingsdal en munu hafa
við nokkuð að styðjast. Hinn merki þjóðffæðamaður
Jóhannes Guðmundsson á Gunnsteinsstöðum i Langadal
ritaði vitneskju sína um dalinn í bréfí til Jóns Amasonar
þjóðsagnasafnara árið 1860. Þar segir svo: „Kvamingsdalur
hét fymim Vínberjadalur, og hygg ég hann hafi svo nefndur
verið af gnægð beija þar, eður og að vaxið hafi á honum
aðalbláber. Hann liggur fast vestan við hæsta ljallgarðinn
framan Vatnsskarðfs], og af ókunnugleika Hjálmars [Bólu-
Hjálmars] þar hefir hann sagt hann byggðan, því þar er nú
engin byggð og hefur víst ekki verið síðan í Svartadauða,
eða fyrr, en hann liggur út úr Valadalsdal á hverjum að em 2
bæir. Á Kvamingsdal hafa til foma verið 4 bæir, yst Kárafújar,
nú kallað Kársstekkur, þar næst Álfgeirsvellir og þar fyrir
framan tveir bæir, og er mjög óljóst að sjá merki til þeirra,
en báðir munu þeir hafa verið í Bergstaðalandareign sem nú
er.“ 1 Um miðja 19. öld virðast því enn lifa munnmæli um
byggð á dalnum en greinilega eru þau orðin mjög óljós. Nafnið
Álfgeirsvellir á Kvarningsdal hefur Jóhannes frá Bólu-Hjálmari
úr uppskrift hans að Móðarsþætti þar sem aðrar uppskriftir hafa
Ásgeirsvelli. Munnmæli geta um Þúfnavelli á Kvamingsdal
en fleiri bæjanöfn em ekki kunn.
Við eftirgrennslan hafa komið í ljós byggðaleifar á nokkmm
stöðum á Kvamingsdal. Er Kársstekkur þeirra þekktastur og
þar em langmestar mannvistarleifar. Skal nú gerð nokkur grein
fyrir þeim:
Kárafitjar/Kársstekkur (65°29'341/19037’284). “
Spölkom upp með Kvamingsdalsá
er komið í graslendi
.
-v-"
f
V&tt
Bœjarstœði Kárafitja á Kvarningsdal.
Maður stendur á bajartóftunum. 1 baksýn
Hádegishnjúkur
Talnarunan hér og annars staðar eftir örnefnum er GPS-staðsetningarhnit
í vörpun WGS 84 og gerir öðrum kleift að rata beint á greinda staði
liafi þeir slíkt tæki undir höndum.