Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Síða 30

Heima er bezt - 01.09.2006, Síða 30
Faxagil á Kvamingsdal. Bœjarstœói Þúfnavalla vinstra megin Faxalækjar, beggja vegna lœkjarfarvegarins sem er utan við Faxalæk. Meintar tóftir Faxasels eru á grasflesjunni neðan við beygju gilsins. Jón Gissurarson situr á Smalavörðu. Fládegishnjúkur í baksýn. Steinkusteinn. Móðólfsfell I baksýn. Vallargarður sést enginn, en allar þessar tóftir gefa sterka vísbendingu um býli, í það minnsta sel. Ömefnaskrá Bergsstaða í Svartárdal eftir Guðmund Jósafatsson frá Brandsstöðum getur Kvamingsdals. ffún er samin eftir minni án þess að skrásetjari hafi landið fyrir sjónum og gætir þar eðlilega ónákvæmni sums staðar. Þar segir m.a.: „Norðan Faxalækjar í austanverðum Kvamixdal eru gamlar seltóftir kenndar við Bergsst. Norður af þeim eru allmiklar grundir, sem heita Selgmndir. Austurhlíð dalsins heitir Selhlíð. Takmarkast hún að sunnan af Faxagili, en að norðan af Selhomi, sem er allhvasst klapparhom á austanverðum dalnum og eru landamerki Bergsstaða og Valadals ákveðin.“ 7 Hér er tvímælalaust átt við sama staðinn en ekki hefúr tekist að hafa upp á nafni. Það er skoðun þáttarritara að hafi einhvers staðar verið býlið Þúfiiavellir frammi á Kvamingsdal, geti það ekki hafa verið annars staðar en hér. Faxasel. Skammt frá Þúfnavöllum uppi í mynni gilsins, ofan lækjarins, er dálítill þúfnamór er virðist geyma afgamlar tóftir og óljósar (65°27'583/l 9°35'772) með litlu einu af grjóti í og standa vitund hærra en móamir umhverfis frammi á barmi lækjargilsins. Þetta gæti verið seltóft og litlu utar, svo sem 15-20 metrum, kunna að vera kvíar í löngum þúfnaskomingi (65°27'594/l 9°35'804). Þetta mætti kalla Faxasel en ömefnið þekkist reyndar ekki lengur. Framan við Faxagil þrengist Kvamingsdalur vemlega og verður nánast að djúpu gili sem fer smám saman grynnkandi og eyðist með öllu þegar kemur fram á móts við Leifsstaðafell þar sem við tekur flatur flói. Austan við norðurenda flóans er dálítil tjöm. Á að giska 100-200 metra í suðvestur ffá tjöminni eru tóftir beitarhúsa frá Leifsstöðum sem Sigurður bóndi á Leifsstöðum ætlaði að reisa á fyrsta fjórðungi 20. aldar, en lauk aldrei við, byggði aðeins undirstöður veggjanna. Nánast beint í austur frá þessum tóftum, í suðaustur frá tjöminni, er að finna fomar tóffir Leifsstaðasels. Munu þá upp taldar þær mannvirkjaleifar sem skrásetjara em kunnar í og við Kvamingsdal, en Bergsstaðasel er því sem næst 1,5 km vestan dalsins og stendur utan áhrifasvæðis hans. Ömefni em ekki mörg á Kvamingsdal og hafa flest þegar verið nefnd. Tveggja er þó enn ógetið og em bæði út við mynni dalsins, sitthvoru megin árinnar. Smalavarða (65°28'951/19°36'903) er handan Kvamingsdalsár móti Hádegislæk á allháum mel. Þar var dysjaður hundur sem Gissur Jónsson í Valadal átti og hét Smali. Hann komst í hræ sem dregið hafði verið út og eitrað fýrir tófu. Fann Gissur hann dauðan skammt frá og urðaði á melnum. Þetta hefúr líklega verið nálægt f940 og má enn sjá beinin inni í vörðunni. 8) Steinkusteinn (65°28'889/f9°36'635) er suður og upp frá ármótum Hádegislækjar og Kvamingsdalsár í 425 m hæð, nokkum spöl sunnan við gilið uppi í brekkunni. Hann er um 1,5 metra hár, ekki stór um sig, og stendur á litlum melkolli og tröð i kringum hann. Norðan undir steininum virðast leifar af grjóthleðslu, kann að hafa verið lítið grjótbyrgi. Steinninn á sér þá sögu, að hér varð úti Steinka vinnukona frá Valadal. Hún var að fara í fjósið til mjalta í stórhríð að vetri til en villtist og fannst loks sunnan undir þessum steini með skjólumar sínar. 9 1) Ur fórum Jóns Ámasonar I, Rv., Hlaðbúð, 1950, bls. 190.2) Móðars rímur og Móöars þáttur, bls. 21.3) Magnús Gíslason: Ég kem norðan Kjöl, Rv., ísafold, 1954, bls. 38.4) íslenzkt fombréfasafn XIV, bls. 35. 5) Upplýsingar Jóns Gissurarsonar í Víðimýrarseli. 6) íslenzkt fombréfasafn III, bls. 674. 7) Ömefnastofnun: Ömeffiaskrá Bergsstaða. 8) Upplýsingar Jóns Gissurarsonar. 9) Sama heimild. 454 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.