Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Page 36

Heima er bezt - 01.09.2006, Page 36
A þessum stað áðum við á leió okkar að jökulröndinni. Við vorum sjö í jökulgöngunni og er þessi mynd tekin af höfundi uppi á jökulbungunni, um það leyti sem verið var að hejja gönguna niður af jöklinum. Tveir ferðafélaganna voru þegar lagðir af stað niður. skoða sem mest af umhverfinu í einu hendingskasti. Bjöm var þama nærri, en er ég leit við var sá fremsti kominn að dýpri bryggjustólpanum og þá kallaði Bjöm: „Vertu viðbúinn. Hann er að kasta línunni!“ Eg kipptist við og var nærri dottinn og hefði þá líklega fallið niður í árabátinn. Bjöm fór að skamma manninn á dönsku og hann náði að skilja nógu mikið til að komast að því að sjálfsagt væri að biðjast afsökunar á að minnsta kosti tveimur tungumálum. Nú kallaði ég til þeirra: „Hafið mig afsakaðan í örfáar mínútur.“ Arósinn var þama um það bil fnnm hundmð metmm innar í voginum og þangað vildi ég komast sem fyrst en hafði gleymt því að þangað mátti ekki fara á þessum degi. Ég áttaði mig þó nógu tímanlega, tók fram sjónaukann og sá ekki betur en að laxaganga væri þama litlu utar. En mest hissa varð ég á því að Brattahlíðarsvæðið, sem var þama litlu vestar, var miklu stærra en ég hafði búist við. Þegar ég kom til baka að bryggjunni, var báturinn bundinn við áður nefndan bryggjustólpa og tveir veiðimannanna vom þar í miklum ham, því einn þeirra hafði fengið stóran fisk. Framundan vom sérkennileg atvik þar sem teflt var á tæpasta vað í um það bil eina klukkustund. Hinir komu til mín og báðu mig að gerast ræðari svo hægt væri að leita fyrir sér litlu utar. Ég var hissa á því hversu fast þeir sóttu eftir þessu, en Þama skammt undan, nær víkinni innan úr fírðinum, var snoturt gistihús og þar var gott að hvílast eftir flugferðina. Ég hafði verið í önnum síðustu daga og steinsofnaði en vaknaði snögglega þegar Björn fór að banka og boða til hádegisverðar. Er þessi vaski ferðahópur hafði loksins lokið máltíðinni fór Bjöm að kynna dagskrána. Gerði hann að gamni sínu með slíkum tilþrifum að starfsfólki gistihússins féllust hendur meðan það horfði agndofa á manninn. Hann notaði fimar handahreyfíngar til að leggja áherslu á það sem hann hafði að segja og með allsérkennilegum áherslum: „Við þökkum fyrir matinn og kaffið og förum með póstskipinu til Brattahlíðar klukkan 15 og þurfum að nota tímann vel, því við dveljum þar varla miklu lengur en í 45 mínútur. Ég var að tala við hótelstjórann og hann segir að allstór laxatorfa sé rétt fyrir utan árósinn. Ekki má styggja laxinn, en þeir sem em með veiðistöng geta fengið að æfa fluguköst frá bátabryggjunni sem þið sjáið hér framundan þegar þið horfíð út um gluggann.“ Ég heyrði kurr og lágvær mótmæli á næsta borði. Greinilegt var að einhverjum hafði verið lofað að þeir gætu komist í veiði. En rétt í þessu kom hótelstjórinn og talaði góða dönsku. Það vafðist svolítið fyrir Bimi að snara því sem hann sagði yfír á önnur Evrópumál, auk þess að gera tilraun til að minnka málskrúðið, en þegar það tókst sagði hann: „Ef veiðimönnum tekst að útvega sér góðan ræðara mega þeir reyna að veiða stutt frá landi á árabátnum.“ Þessi orð liðkuðu um málbeinið hjá mörgum, en eftir að Bjöm hafði svarað nokkrum spurningum bað hann mig að tala við sig. Þarna fór hann bónarveg að mér og bað mig mjög góðfúslega að vera sér til trausts og halds. Eg féllst á að fara með honum og stangveiðimönnunum niður á bryggju til að skoða mig um og láta hann vita hvemig mér litist á staðinn. Þaðan leit ég til baka og reyndi að 460 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.