Heima er bezt


Heima er bezt - 01.09.2006, Qupperneq 40

Heima er bezt - 01.09.2006, Qupperneq 40
 / /' / i í 0, 0 : ,r i f / / / I / ; r * S (/ / Jón R. Hjálmarsson: - ' Þrællinn Spartacus Iríkjum fornaldarinnar var þrælahald mjög útbreitt og má segja aö það væri undirstaða velmegunar hinna ríkjandi stétta og raunar alls hagkerfisins. Menn gátu orðið þrælar með ýmsum hætti, en algengast var að herteknir menn í styrjöldum væru seldir í ánauð. Þrælar voru nánast réttlausir og yfirleitt var illa með þá farið. Þeir sem unnu við þjónustustörf, jarðyrkju eða hjarðmennsku áttu illa ævi. Sýnu verri var þó meðferðin á námuþrælum, sem barðir vom áfram hlekkjaðir undir yfirborði jarðar. En allt var þetta þó hátíð í samanburði við örlög þeirra ógæfusömu þræla serm hafðir vom til að skemmta fólki í hringleikahúsum og látnir berjast þar við óargadýr eða hverjir við aðra þar til yfír lauk. Lengi vel notuðu Rómverjar stríðsfanga eða dæmda glæpamenn til að skemmta áhorfendum i hringleikahúsum á þennan skelfilega hátt. En með tímanum fóm ýmsir athafnamenn að kaupa sterka og vel byggða þræla, sem þeir síðan þjálfúðu í vopnfími og fangbrögðum í sérstökum skylmingaskólum. Síðan leigðu þeir þræla þessa út til þeirra aðila sem halda vildu sýningar við einhver tiltekin tækifæri eða til undirbúnings kosningum og fleira. Algengt var að fram á leiksviðu kæmu nokkrir tugir bardagaþræla og stundum jafnvel nokkur hundmð sem berðust þar upp á líf og dauða til skemmtunar fyrir vandfýsna áhorfendur. Börðust þrælamir þá ýmist maður á móti manni eða þá sem herflokkar hver á móti öðmm. Þegar tveir áttust við lauk viðureigninni oftast með því að annar var drepinn. En færi svo að annar yrði örmagna og yfírbugaður, án þess að láta lífið, var það venja hjá Rómverjum að láta áhorfendum eftir að ákveða hvort viðkomandi þræll skyldi lífi halda eða vera drepinn. Ef fólkið vildi þyrma honum veifaði það slæðum og klútum, en annars benti það ákaft niður með þumalfíngri til merkis um að sá vesalingur skyldi rekinn í gegn. Þrælauppreisnir vom talsvert tíðar í Róm og voru þær oftast bældar niður án mikillar fyrirhafnar. En uppreisn sú sem kennd var við skylmingaþrælinn Spartacus, var þó svo umfangsmikil og skipuleg að um skeið stóð Rómarveldi af henni mikil hætta. Spartacus þessi var þrakverskur maður, vel upplýstur og hefur trúlega fengið gríska menntun. Sem stríðsfangi lenti hann hjá rómverskum auðmanni, sem rak skylmingaskóla í Capúa, sunnan við Rómarborg. Þræll þessi var karlmenni að burðum og hugrakkur í besta lagi, en hafði engan áhuga á að skemmta blóðþyrstum Rómverjum á sviði hringleikahússins. Hann þráði það eitt að losna úr varðhaldi því sem hann hafði lent í, svo að hann gæti snúið aftur heim til ættlands síns í Þrakíu. Og þrátt fyrir stranga gæslu harðsnúinna varðmanna heppnaðist Spartacus að strjúka úr skylmingaskólanum ásamt 78 félögum sínum, er ýmist voru Þrakverjar eða Gallar. Gerðist þetta árið 73 f. Kr. og vakti enga sérstaka athygli í fyrstu. En þessir strokuþrælar reyndust furðu snjallir. Með ránum öfluðu þeir sér vopna og vista og flýðu síðan upp í íjallið Vesúvíus, þar sem þeir bjuggust um til vamar. Þá kom það brátt í ljós að Spartacus var vel til foringja fallinn. Hann var djarfur og áræðinn og hafði til að bera skipulagsgáfu í ríkum mæli. Flokkur hans óx líka hröðum skrefum, því að ánauðugir menn hvaðanæva að flykktust undir merki hans. 464 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.