Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 3

Hljóðabunga - 01.11.1978, Page 3
Ávarp til lesenda Skilyrði þess að hægt sé að gefa út lítið menningarrit á Vestfjörðum sem þetta, ætlað Vestfirðingum aðallega, er ekki aðeins áhugi og starf ritnefndar. Ákaflega stóran þátt eiga styrktarmenn okkar, auglýsendur og aðrir þeir sem hafa fjármagnað blaðið. Ef til vill eiga í tilefni forsíöu Svala Sigurleifsdóttir er ísfirðingur. Hún er fædd 10.6. 1950. Svala lauk kennaraprófi 1972 og síðan stúdents- prófi. Hún stundaði nám í Myndlista- og handíðaskólanum um þriggja ára skeið, en hélt síðan til Bandaríkjanna og lauk BA prófi við listaháskóla í Colorado. Hún hefur tekið þátt í sam- sýningum og hélt einkasýningu á verk- um sínum í marz 1978 í sýningarsal Bókasafnsins á ísafirði. þó lesendurnir sjálfir og móttökur þeirra stærstan þátt í tilveru Hljóða- bungu, því að án lesenda er tímarit einskis virði og gildir þá einu hversu vandað efnið er eða um hve mikilvæg mál er fjallað. Ef allir leggjast á eitt, styrktarmenn, auglýsendur, skríbentar og lesendur, má ætla að ritið eigi nokkra framtíð fyrir sér. Von okkar, sem höfum lagt ómæld- an tíma og vinnu í rit þetta, er sú, að Hljóðabunga geti orðið vettvangur bók- mennta, þjóðlegs fróðleiks og félags- legrar umræðu. Vettvangur, sem í senn yrði skemmtilegur og fróðlegur, gagnrýninn og upplýsandi. Það er von okkar, að um Hljóðabungu verði hægt að segja, að þar heyrist hljóð úr horni, að hún upplýsi og gefi ný útsýn, líkt og sá staður á hæstum Drangajökli sem ritið er kennt við. HLJÓÐABUNGA 3

x

Hljóðabunga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.