Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 27

Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 27
Hallur Páll: Menntun eöa ítroösla „Túlkun vitsmuna og þekkingar snertir kjarna jafn- réttis, en hinn borgaralegi skóli, sem kennir öllum sama námsefni og veitir þannig öllum formlega sama tækifæri til að tileinka sér fræðslu, er í raun tryggingakerfi ríkjandi stétta, og er sjáifkrafa uppspretta misréttis. Það liggur því í augum uppi að skólamál eru og verða ævinlega stjórnmál, fyrst og síðast." Jónas Pálsson, sálfræðingur. skólastj. Æfinga- og tilraunaskóla Kennaraháskóla fslands. Að menntast og að sitja skólabekk er sitt hvað. Sá sem þraukar þolinmóður á hörðum skólabekkjum hvern veturinn eftir annan og lýkur af ónefndum ástæðum embættis- eða starfsréttindaprófi, kann að hafa tínt í sarp sinn fáeina þekkingarmola og jafnvel öðlast snefil af starfsþekkingu. Hitt er jafnljóst, að sá hinn sami, oftlega nefndur „menntamaður“ í daglegu máli, þarf alls ekki að hafa menntast, þrátt fyrir þrettán til tuttugu ára samvisku- samt streð í ,,menntastofnunum“. Þetta verð- ur ljósara, ef við minnumst kynna okkar, annars vegar af sjálfmenntuðu óskólagengnu fólki, en hins vegar af langskólagengnu fólki. En svo vill til, að nokkur hluti þess síðar- nefnda hóps er í rauninni furðu fáfróður um hversdagslegustu sannindi og hefur einatt þröngan sjóndeildarhring. Ef það er tilfellið, eins og hér verður haldið fram, að hægt sé að ganga gegnum skólakerfið án þess að menntast, hljóta að vakna ýmsar spurningar: Til hvers eru skólar? Hvaða hlut- verki gegna skólar í þjóðfélaginu? Hvað gerist innan veggja skólanna? í þessu greinarkorni verður fyrst leitast við að svara þessum spurn- ingum og öðrum skyldum, varpað fram efa- semdum og nokkurri gagnrýni á ríkjandi skólakerfi, og að lokum bent á aðra möguleika til menntunar en þá sem nú tíðkast. Skólinn sem geymsla Eins og lesendur eflaust muna, kom það á daginn þegar kennarar fengu takmarkaðan verkfallsrétt og beittu honum haustið 1977, að margir foreldrar lentu i megnustu vandræð- um. Það varð vandamál hvað foreldrar ættu að gera við börnin, hvernig ætti að hafa ofanaf fyrir þeim og hver ætti að gæta þeirra. Þetta segir okkur ákveðna hluti. Síðan skólaskylda varð til og barna- og gagnfræðaskólar tóku til starfa, hafa skólarnir tekið smám saman við því hlutverki heimil- anna, að ala önn fyrir börnum og unglingum mislangan tíma dagsins. Þessi umönnun léttir ákv. vinnu af heimilunum, einkum heima- vinnandi húsmæðrum og skapar tækifæri fyrir þær til að vinna utan heimilis. Þegar hart er í ári og verðbólga auðvaldsins étur upp laun alþýðufólks, er þessi barnageymsla skólanna til hagsbóta, bæði fyrir tekjulítil heimili, sem gera svipaðar kröfur til lífsgæða og önnur, og fyrir eigendur atvinnutækja, sem sífellt kalla á meira vinnuafl til að hagnast á. Á síðustu áratugum hefur hin íslenska fjölskylda smækk- að í kjölfar breyttra atvinnuhátta og æ algeng- ara verður að báðir foreldrar vinni utan heimilis, einkum launafólk. Þegar svo við bætist að almenn vinnuþrælkun á sér stað meðal verkafólks, vinnutími óhóflega langur, tryggist skólinn enn í sessi, sem nauðsynlegur geymslustaður. En þessi vandi, gegndarlaus yfir- og nætur- vinna verkafólks og launþega, skapar önnur HLJÓÐABUNGA 27

x

Hljóðabunga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.