Hljóðabunga - 01.11.1978, Blaðsíða 11

Hljóðabunga - 01.11.1978, Blaðsíða 11
samsett af óháðum fyrirtækjum sem keppa hvert við annað. Öll séu þau háð markaðslögmálum, og að endingu háð óskum neytenda. Galbraith fullyrðir að þessi mynd sé algerlega röng, en hagfræðingar séu þó eins og fastlímdir við hana. Þetta er ein af ástæðunum til þess að þeir skilja ekki ástandið í dag. Vegna þess að hag- fræðingar nota úrelt líkan skilja þeir ekki breyt- ingarnar sem nú eiga sér stað í þjóðfélaginu. Tillaga Galbraiths er að skipta hagfræðinni í tvennt. í Bandaríkjunum eru 60% atvinnulífsins í höndum 200 fyrirtækja, en bandarísk fyrirtæki eru í allt um 200.000. Þessi stærstu mynda alveg sérstakan þátt í efnahagsiífinu, en þau smáu starfa í samræmi við gamlar kenningar. Það eru þau stóru sem eru f vexti og stuðningur ríkisins beinist að þeim. Það er ekki hægt að láta þau verða gjaldþrota, ríkið strengir öryggisnet sitt ef þeim mistekst." (Þýtt úr „DAGBLADET" Oslo 11.2.1978). Með öðrum orðum: hagfræðingum sést af einhverjum ástæðum yfir þá staðreynd að auðhringar eru til, og hafa í skjóli stærðar sinnar, fjölþjóðaskipulags og valdaaðstöðu mikla yfirburði yfir smærri keppinauta sína. Yfirburðirnir felast ekki bara í stórum eining- um og greiðum aðgangi að ríkisstuðningi, heldur gerir fjölþjóðaskipulagið þeim kleift að forðast skatta með því að flytja gróða sinn til landa þar sem skattar eru lágir (t.d. Sviss) og mannfreka framleiðslu geta þeir staðsett í þeim löndum þar sem kaupgjald er hvað lægst. Malta, Spánn, S-Kórea o fl. o. fl. Síðast en ekki síst eru auðhringarnir óháðir lánsfjár- magni, þeir fjármagna sig sjálfir. Fjármagnið gerir þeim kleift að vinna markaði með því að undirbjóða keppinauta sína um tíma og koma þeim þannig út af markaðnum, - og það sem ekki er síður mikilvægt: standa undir um- fangsmikilli auglýsingastarfssemi. í framhaldi af þessu hljótum við að spyrja: Hvað kemur til að hagfræðingum sést yfir slíkt og þvílíkt, hvernig stendur á því að þeir halda sig enn við hagfræðikenningar átjándu og nítjándu aldar? Kristján Friðriksson iðnrekandi hefur sínar skýringar á þessu í bók sinni „Farsældarríkið og manngildisstefnan“ (bls. 25-26): „Þessi hagfræöikenning hefur verið kennd í flestum skólum (háskólum og víðar) um gjörvöll Bandaríkin og Vestur -Evrópu. Og lítið hefur kveðið að mótmælum. Hvort tveggja er að kenn- ingin lítur vel út á yfirborðinu, hefur í sér ákveðið sannleikskorn og hefur verið studd óhemju fjármagni, sem komið hefur beint frá þessum sömu auðhringum sem mestra hags- muna hafa að gæta í þvf að kenningin verði sem föstust í sessi. Fjármagnsausturinn til út- breiðslu þessara kenninga verður best skilinn ef haft er í huga, að flestir háskólar Bandaríkjanna eru reknir fyrir fé auðhringa. Sama er og um háskóla í Vestur Evrópu að verulegu leyti. í Sviss eru svo stöðvar, sem annast útbreiðslu kenninganna með leynilegum aðferðum. Ein af aðferðum er sú, að bækur og greinar sem styðja auðhringakenningarnar verði sem útbreiddast- ar. Höfundar þeirra fá heiðurslaun og nafn- bætur, prófessorsstöður o.s.frv. En þeir sem kynnu að andæfa verða ekki hátt skrifaðir. —Eg er ekki í minnsta vafa um að sköpun bæði EFTA og EBE eru verk auðhringa að verulegu leyti. —Með sköpun þessara stóru markaðsheilda hafa auðhringarnir skapað sér leikvöll, at- hafnasvæði. Og með þessu tekst þeim að brjóta niður verulegan hluta af smærri iðnaði hinna einstöku þjóða. Auðhringar drepa svo til allan sjálfstæðan þjóðlegan framleiðsluiðnað allra þjóða, ef þeim tekst að halda fram sem nú horfir. Aðeins allra smæsti handverksiðnaður og þjón- ustuiðnaður verður skilinn eftir fyrir þegna hinna einstöku þjóða, ef auðhringunum verður látið haldast uppi að koma fram fyrirætlunum sínum.“ Þótt ýmsum kunni að þykja þessar skýring- ar Kristjáns nokkuð reyfarakenndar, ætti eng- um að dyljast hve mikið hagræði auðhringun- um er af því að kenningin um hinn frjálsa markað sé sem útbreiddust. Meðan hagfræðin heldur áfram að predíka ágæti hins ímyndaða frjálsa markaðskerfis, halda auðhringarnir ó- truflað áfram að ryðja hinum smærri keppi- nautum sínum úr vegi og tryggja yfirburði sína á markaðnum. Afleiðingar Eins og kemur fram í upphafi þessarar greinar hafa innflutningshömlur jafnt og þétt verið afnumdar hérlendis frá 1960 til dagsins i dag. Auk þess hafa tollar að mestu verið felldir burt í viðskiptum við bæði EFTA og EBE, og eiga að hverfa að fullu 1. janúar 1980. Allt er þetta gert í trú á blessun hins frjálsa markaðar, og virðist svo sjálfsagt að ekki þurfi um að ræða. En hverjar eru afleiðingarnar, beinar og óbeinar? Þær eru reyndar velþekkt- ar: HLJÓÐABUNGA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hljóðabunga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.