Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 16
Það er á valdi Alþingis hvort landið heldur efnahagslegu sjálfstæði sfnu eða glatar því.
það á eftir sér langa dræsu afleiðinga. Ekki
skal ég neita því að gaman er að hafa mikið
vöruúrval í verslunum, og ekki er heldur vafi á
því að innflutningshöft geta verið þung í
vöfum og boðið heim misnotkun eins og aðrar
reglur og lög.
En ég óttast að þessi tegund frelsis geti orðið
of dýru verði keypt, nefnilega að það kunni að
kosta þjóðina efnahagslegt- og þar með stjórn-
málalegt sjálfstæði sitt. Það er enginn vafi á
því að efnahagslegt sjálfstæði íslands er veik-
ara nú en það var í kringum 1960, og öryggis-
leysið og ráðleysið í efnahagsmálum virðist
sjaldan hafa verið meira. Það er ljóst að erfitt
yrði fyrir íslenska ríkisstjórn að taka aftur upp
innflutningshömlur" vegna óhemjulegs þrýst-
ings frá fjármálarisum heimsins; EFTA, EBE
og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, sem allir hafa
tekið af okkur skuldbindingar um hið gagn-
stæða. Ekki má heldur gleyma þeim þrýstingi
sem kemur innan frá, því óneitanlega hafa
vissir þjóðfélagshópar hér á landi hag af
innflutningsfrelsinu. —Þó má spyrja hvort
ríkisstjórn sem hefði þor til að höggva á
þennan hnút, ríkisstjórn sem takmarkaði inn-
flutning og gengist um leið fyrir markvissri
iðnaðaruppbyggingu sem gerði landið betur
sjálfbjarga, yrði ekki affarasælust fyrir þjóð-
ina. —Myndi ekki slík stjórn hljóta stuðning
frá alþýðu landsins?
Því efnahagslegt sjálfstæði er ekki bara
tilfínningamál og þjóðernisrómantík eins og
sumir láta í veðri vaka, heldur er það skilyrði
þess að við sem erum ung og börnin okkar
getum lifað mannsæmandi lífi í þessu landi.
Tromsö, 28. feb. 1978.
Einar Eyþórsson
Helstu heimildir:
Cheryl Payer: „The Debt Trap“ London 1974
(um Alþjóðagjaldeyrissjóðinn).
Teresa Hayter: „Pengemakt og avmakt“ Oslo
1971 (umAlþj. bankann).
Kristján Friðriksson: „Farsœldarrikið og manngild-
isstefnan “ Rvík. 1974.
Peter B. Kenen o. fl. „International Economics“
New Jersey 1971.
Hagvangur h/f: „ Opinberar aðgerðir og atvinnu-
lífið 1950-1970“ Rvk. 1974.
Jón Sigurðsson: „Islenskur iðnaður og friverslun-
arsamningarnir“ Fjármálatiðindi nr. 2 1977.
Próf. Leif Johansen: „Krisen i verdensökonomien”,
Timaritið Sosialökonomen nr. 2 1976.
„De store gár aldn konkurs“ Dagbladet Osló
11.2. 1978
Einar Eyþórsson: „Fjárfesting eða krossfesting“
(Hljóðabunga 1976) og „Af áliðju og annarri iðju“
(Timinn 28.1. 1977)
Einnig visast til: Tore Thonstad: „Har Norge for
ápen ökonomi?“ Tidskrift, Oslo 1975.
16
HLJÓÐABUNGA