Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 63

Hljóðabunga - 01.11.1978, Síða 63
Sviðsmynd úr Gústi Jónu Jóns. Gústi: Hva, við erum skussar við hliðina á þeim. Ókunn: Og hvar er ekki pottur brotinn? Er ekki fleira í ólestri en vegakerfið? Gústi: Það hefði ég haldið. Ókunn.: Og þá komum við að kjarna málsins: verður þjóðin ekki að vera sjálfri sér samkvæm í þessum efnum? Gústi: f þessum efnum sem öðrum. Það segi ég. Ókunn.: Og ef við látum þá sjá um vegagerðina, er þá ekki rökrétt að þeir sjái um ýmislegt fleira? Gústi: Jú, jújú, það er rökrétt. Það finnst mér. Ókunn.: Og ef það er rökrétt, sem við erum sammála um, hvað eigum við þá að láta þá gera fieira? Hvað er mest í ólestri? Og á hvaða sviðum eru þeir færastir? Gústi: Það verður að byggja fieiri og stærri hótel. Aukinn ferðamannastraumur þýðir aukin verslun, og aukin verslun þýðir aukin hagsæld fyrir þjóðina alla. Ókunn.: Sammála. Þeir gætu byggt hótel á nokkrum vel völdum stöðum. Gústi: Já, okkur vantar stórt og vandað hótel á ísafirði. Ókunn.: En er ekki þrátt fyrir allt ekki ýmislegt meira aðkaliandi en vegir og hótel? Varla grotnar samfélagið að innan þó þetta bíði enn í nokkur ár, eða hvað? Gústi: Ne-ei... Ókunn.: En það morknar ef ekki er gerð gang- skör að því að uppræta alla þá spillingu og lausung sem hefur grafið um sig á síðustu árum. Þar þurfum við aðstoð - ef við ætlum ekki að farast sem þjóð. Gústi (efins): Spillingu... þú meinar?... Ókunn.: Geirfinnsmálið, til dæmis. Hvað sýnir okkur betur spillinguna í þessu landi? Og hvernig hefur rannsóknarlögreglan staðið sig? Gústi.: Hún hefur bara alls ekkert staðið sig. Ókunn.: Einmitt! En þarna hefðu þeir getað hjálpað okkur. Bandaríska alríkislögreglan FBI... Gústi: Já, sú kann nú tökin á því. Ókunn.: Sú fremsta í heimi. En okkar sú slak- asta. Ekki bara rannsóknarlögreglan, heldur lögreglan yfirleitt. Eða hvernig færi fyrir okk- HLJÓÐABUNGA 63

x

Hljóðabunga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hljóðabunga
https://timarit.is/publication/1867

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.