Hljóðabunga - 01.11.1978, Side 75
Lögtaksúrskurður
vegna vangreiddra gjalda til ríkissjóðs
í fógetarétti l'safjarðar hinn 9. okt. var kveðinn upp lögtaksúrskurður fyrir eftirtöldum
gjöldum til ríkissjóðs:
Tekju- og eignaskattur ásamt tekju- og eignaskattsviðauka, skyldusparnaður, sjúkra-
tryggingagjald, launaskattur, iðnaðargjald, iðnlánasjóðs-og iðnaðarmálagjald, byggingar-
iðnaðarsjóðsgjald og gúmgjald. Gjald af bifreiðum og bifhjólum, sölugjald af vörusölu,
þjónustu, skemmtunum og innfluttum vörum og launaskattur skv. skýrslum. Vörugjald af
innlendri framleiðslu, innfluttum vörum og af flutningi svo og jöfnunargjald.
Mælagjald til Menningarsjóðs, skemmtanaskattur, fiugvallargjald, þungaskattur skv. öku-
mælum, bifreiðaskattur, skoðun og skráning árgjald ökutækja, lestagjald, skipaskoðunar-
gjald, vitagjald, prófgjald bifreiðastjóra og iðnnema.
Verðjöfnunargjald raforku, skipulagsgjald, útflutningsgjald, verðjöfnunargjald af veiðar-
færum, búnaðar málasjóðsgjald, fóðureftirlitsgjald, sektir og upptækar vörur, afgjöld
ríkisjarða, öryggiseftirlitsgjald og vextir og dráttarvextir.
Má lögtak fara fram.þegar átta dagar eru liðnir frá birtingu þessa úrskurðar, fyrir gjöldunum
og kostnaði við gerðirnar.
ísafirði, 16. október 1978.
Bæjarfógetinn á ísafirði Sýslumaður ísafjarðarsýslu.
Tilkynning
um útivistartíma barna og unglinga:
í kaupstöðum, kauptúnum og öðru slíku þéttbýli með 400 íbúa eða fleiri mega börn yngri
en 12 ára ekki vera á almannafæri eftir kl. 20 (8 á kvöldin) tímab. 1. sept. til 1. maí og eftir
kl. 22 (10 á kvöldin) 1. maí til 1. sept., nema í fylgd með fullorðnum, aðstandendum eða
umsjónarmönnum.
Unglingar yngri en 15 ára mega á slíkum stöðum ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 (10 á
kvöldin) tímabilið 1. september til 1. maí og eftir kl. 23 (11 á kvöldin) 1. maí til 1. september,
nema í fylgd með fullorðnum, eða um sé að ræða beina heimferð frá skólaskemmtun,
íþróttasamkomu eða frá annarri viðurkenndri æskulýðsstarfsemi.
Hvers konar þjónusta viö börn og ungemenni eftir löglegan útivistartíma, önnur en
heimflutningur, er bönnuð að viðlagðri ábyrgð þess, er þjónustu veitir. Handhöfum
þjónustuleyfa er skylt að fyljast með því, að ákvæði þessi séu haldin.
Ungmennum yngri en 16 ára er óheimill aögangur að dvöl á almennum dansleikjum eftir kl.
20, öðrum en sérstökum unglingaskemmtunum, sem haldnar eru af skólum, æskulýðsfélög-
um eða öðrum aðilum, sem til þess hafa leyfi og háðar eru sérstöku eftirliti. Forstöðu-
mönnum dansleikja er skylt að fylgjast með því aö ákvæði þessi séu haldin, að viðlögöum
sektum og eða missi leyfis til veitingahalds eða skemmtanahalds um lengri eða skemmri
tíma.
Þeir sem hafa forsjá eða foreldraráð barna og ungmenna skulu að viðlögðum sektum gæta
þess, að ákvæði þessi séu ekki brotin. Þá má einnig beita sakhæf ungmenni viðurlögum
fyrir brot á þessum ákvæðum.
Barnaverndarnefnd ísafjarðar
(Útdráttur úr44. gr. reglugerðar um vernd barna og ungmenna nr. 45/1970).
hljóðabunga
75