Bænavikan - 07.11.1959, Blaðsíða 1
Bænavikulestrar
1959
Lestur fyrir hvíldardaginn 7. nóv. 1959.
„Fyrir dyruinss
EFTIR R. R. FIGUHR,
formann Aðalráðs Aðventsamtakanna.
Sjöunda dags aðventistar hafa hlotið guð-
legt uppeldi, ekki til þess eins að boða hina
sælu von safnaðarins um endurkomu Krists í
mætti og dýrð, þegar hann verður krýndur
sem konungur konunga og Drottinn drottna,
heldur er þeim líka ætlað að segja frá, að sú
dýrðlega endurkoma sé mjög nærri, fyrir dyr-
um, þeim dyrum, sem aðskilja himin og jörð.
Brátt mun hann stíga yfir þröskuldinn og
taka málin í sínar hendur. Okkur er sagt að
taka þá viðburði, er eiga sér stað í heiminum,
sem óvefengjanleg tákn um bráða endurkomu
Krists. Við eigum að boða öllum heiminum
skjóta endurkomu hans með hljómsterkri rödd.
„Þegar þér sjáið allt þetta,“ sagði Jesús, „þá
er hann í nánd, fyrir dyrum.“
Á síðustu dögum mun fólk Guðs lifa í full-
vissu um bráða endurkomu Krists, og mun það
hafa djúptæk áhrif á allt þeirra líf. „Fyrir
því skuluð og þér vera viðbúnir, því manns-
sonurinn kemur á þeirri stundu, sem þér eigi
ætlið. Hver er þá hinn trúi og hyggni þjónn,
sem húsbóndinn hefur sett yfir hjú sín, til þess
að gefa þeim fæðuna á réttum tíma? Sæll er
sá þjónn, sem húsbóndi hans finnur breyta
þannig, er hann kemur (Matt. 24,44.46).
Það er greinilega staðfest í Biblíunni, að
Jesús muni koma aftur til jarðarinnar til þess
að sækja sína eign. Kristnar kirkjur hafa yfir-
leitt lengi verið sannfærðar um, að þetta væri
biblíuleg kennisetning, og kennimenn ýmissa
kirkjudeilda tala ekki ósjaldan um þetta mikil-
væga efni með einurð og sannfæringu.
Þeir viðurkenna biblíulegan grundvöll þess og
áherzluna, sem lögð er á það í Heilagri Ritn-
ingu. Oscar Lowry segir: „Það er minnzt á
endurkomu Krists rúmlega 300 sinnum í Nýja
Testamentinu. Að meðaltali vitnar eitt vers af
hverjum tuttugu og fimm frá Matteusarguð-
spjalli til Opinberunarbókarinnar til endur-
komu Krists. Það eru rúmlega 300 ákveðnir
spádómar, bæði í Gamla og Nýja Testamentinu.
sem greina frá endurkomu Krists, og það eru
yfir 1000 staðir í Biblíunni allri, sem minnast
á endurkomu Krists. Fyrir hvert sinn sem tal-
að er um friðþæginguna er talað tvisvar um
endurkomuna. Fyrir hvert sinn sem talað er
um fyrri komu Krists er talað átta sinnum um
endurkomu hans. Páll minnist aðeins 15 sinn-
um á skím, en 55 sinnum á endurkomu. Eigi
að meta gildi einhverrar kennisetningar eftir
því, hve oft er á hana minnzt í Ritningunni,
er kenningin um endurkomu Krists þar efst á
lista, og engin önnur keppir þar við hana, ekki
einu sinni friðþægingin. Mesti viðburður heims-
sögunnar á öllum tímum verður persónuleg
endurkoma Drottins vors Jesú Krists. Þess
vegna skyldi það ekki vekja furðu okkar, þótt
LANOSBÚKASAFN
226815
ÍSLANDS