Bænavikan - 07.11.1959, Blaðsíða 7

Bænavikan - 07.11.1959, Blaðsíða 7
7 bræður sína. Hann er íórn okkar, talsmaður okkar og bróðir. Hann er íklæddur mannlegri mynd okkar frammi fyrir hásæti föðurins, og hann er eitt með mannkyninu, sem hann end- urleysti, um aldir alda. Hann er mannssonur- inn. Allt þetta gerir hann til þess, að maður- inn komist upp úr því djúpi spillingar og niður- lægingar, sem syndin kom honum í, og geti endurspeglað kærleika Guðs og tekið þátt í gleði heilagleikans. Verðið, sem greitt var fyrir endurlausn okk- ar, hin eilífa fórn, sem okkar himneski faðir færði, er hann gaf son sinn til að deyja fyrir okkur, ætti að vekja hjá okkur háleitar hug- myndir um, hvað við getum orðið fyrir aðstoð Krists. Þegar postulinn Jóhannes hugleiddi breidd, lengd, hæð og dýpt þess kærleika, sem Guð ber til hins fallna mannkyns, fylltist hann lotningu og aðdáun, og vegna þess að hann átti engin orð, sem gátu lýst mikilleik og mildi þess kærleika, býður hann okkur að sjá hann. ,Sjáið hvílíkan kærleika faðirinn hefur auðsýnt oss, að vér skulum kallast Guðs börn.‘ (1 Jóh. 3, 1). Svo mikils metur Guð mennina! Vegna syndar urðu mannanna börn þegnar Satans. Fyrir trú á friðþægjandi fórn Krists geta synir Adams orðið að sonum Guðs. Með því að taka á sig mannlegt eðli, hóf Kristur mannkynið upp á æðra stig. Mennirnir hafa nú tækifæri til þess að verða verðugir að kallast Guðs börn, ef þeir tengjast Kristi.“ (Vegurinn til Krists 14. 15.). Er Jesús frelsari þinn? Nú skulum við spyrja okkur sjálf: Elskum við Jesúm í raun og veru? Er hann okkur raunverulegur frelsari? Finnum við, að við lifum í honum og hann í okkur? Dauði hans og hjálpræði hafa ekkert gildi fyrir okkur, ef við lifum ekki með honum og fyrir hann í þessu lífi. Þyngsta byrðin, sem við berum, er syndabyrðin, en Jesús er reiðubúinn til að taka þessa byrði af þreyttum herðum okkar og veita okkur hvíld. Hann býður okk- ur að varpa áhyggjum okkar upp á sig og eignast þá öruggu sannfæringu, að hann sé frelsarinn. Hvers vegna tökum við ekki á móti Jesú sem persónulegum frelsara okkar? Hvers vegna vörpum við ekki byrði okkar við fætur hans? Ef til vill finnst þér byrði lífsins vera of þung og að þú getir ekki borið hana lengur. Hvers vegna leggur þú ekki líf þitt í hendur Jesú og hvílist í friði í honum í hinni blessuðu von um nýtt líf í frelsara þínum? Við þurfum að minnast þess, að Jesús er eini frelsarinn, og hann einn veitir sanna og varanlega ham- ingju. Við þurfum að komast nær Jesú, frelsara okkar, í þessari Bænaviku. Þú og ég þörfn- umst hans. Hann ætti að vera með okkur á degi hverjum. Við þurfum að finna, að hann er frelsari okkar. Þessi sannfæring og trú er ómissandi. Við þurfum að trúa því, að hjálp- ræðið sé ekki að finna í neinu öðru nafni. Komandi ár mun færa okkur ýmis konar reynslu, grýtta leið og þungar byrðar. Það getur verið, að vegurinn virðist langur og tor- fær, reynslurnar og freistingarnar svo miklar, að okkur finnist ómögulegt að standast þær og að við munum hníga undir þunga þeirra. En minnumst þess, að frelsarinn er við hlið okkar. Hann hefur gengið þennan sama veg, og hann heitir því að vera með okkur allt til endans og bera byrðarnar fyrir okkur. Fylgjum honum trúlega allt til enda; bein- um sjónum okkar til hans, og þá munum við geta sagt af persónulegri reynslu eins og þjón- ar hans fyrrum: „Hver mun gjöra oss viðskila við kærleika Krists? Hvort þjáning? Eða þrenging? Eða ofsókn? Eða hungur? Eða nekt? Eða háski? Eða sverð? ... Því að ég er þess fullviss, að hvorki dauði né líf, né engl- ar, né tignir, né hið yfirstandandi, né hið ókomna, né kraftur, né hæð, né dýpt, né nokk- ur önnur skepna muni geta gjört oss viðskila við kærleika Guðs, sem birtist í Kristi Jesú Drottni vorum.“ „Því að eigi er heldur annað nafn undir himninum, er menn kunna að nefna, er oss sé ætlað fyrir hólpnum að verða.“ (Róm. 8, 35. 38. 39; Post. 4, 12.) Já, vinir, sigurinn er tryggður í Kristi. Líf ykkar er falið í hans lífi — auðugt hér á jörðu og eilíft í komandi heimi.

x

Bænavikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bænavikan
https://timarit.is/publication/1870

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.