Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1940, Side 15

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1940, Side 15
Ef litið er á sjúkrakostnað vegna slysa frá ári lil árs, sést, að hann fer síhækkandi: 1937 nam hann kr. 51,86 á hvert slys 1938 1939 1940 80,94 - 94,19 - 107,20 - í sjúkrakostnaði er fólgin læknishjálp, sjúkrahúsvist, lyf og um- l.'úðir, röntgenmyndir, sjúkraflutningar o. fl. Hér er aðeins reiknað með slysum, sem gáfu tilefni lil dag'peningagreiðslu, þ. e. dánarslys ekki talin með, því að fæst þeirra hafa valdið nokkrum sjúkrakostnaði. Ekki er hægt að skýra að svo stöddu hina miklu aukningu sjúkra- kostnaðar, og þarf það mál að rannsakast gaumgæfilega. Að vísu mun nokkuð stafa af aukinni notkun röntgenmynda lil að fá sem nákvæm- asta sjúkdómsgreiningu og sem bezta vitneskju um, hvernig horfi um batann síðar, t. d. þegar um beinbrot er að ræða. Lyf og umbúðir hafa hækkað mikið eftir að stríðið hófst, einkum þó á árinu 1940. Sjúkra- húsataxtar hafa einnig hækkað, og jafnframt því, sem hinir slösuðu eíga lengur í afleiðingum slysa, verða jieir t.íðari gestir hjá læknum, og eykur það kostnað við læknishjálpina. Öll þessi atriði þarf þó að rannsaka nánar. Aukning dagpeninga á hvert slys og aukning sjúkrakoslnaðar sýnir miður æskilega þróun. Þarf slysatryggingin að vera vel á verði gegn tryggingarsjúkdómum, sem ekki eru bein afleiðing slysanna sjálfra, heldur trygginganna. Árið 1939 gerði höfundur athugun á því, hversu slysatryggðum mönn- um gengi að batna eftir beinbrot hér á landi. Sú athugun sýndi, að bat- inn virtist koma síðar en eðlilegt geti talizt, einkum í Reykjavík. Niður- stöðurnar eru birtar í 6. tbl. Læknablaðsins 1939. Þar var þeirri hug- mynd hreyft, að æskilegt væri að stofna æfinga- og vinnustofnun fyrir slasaða menn. Yrði þá lögð áherzla á, að slasaðir menn væru látnir starfa eitthvað við sitt hæfi, strax og þeir gætu. Þeim yrðu greidd lílils háttar laun fyrir starf sitt, er færu hækkandi með vaxandi starfsgetu. Jafnframt fengju þeir dagpeninga, er færu lækkandi, þó þannig, að mennirnir bæru meira úr býtum ineð þessu móti en með því að njóta dagpeninga einna saman. Á þennan hátt væri lögð áherzla á vinnugetuna sem verðmæti, en ekki dagpeningana. Tryggingarsjúkdómar eru eina hættan, sem fylgir slysa- tryggingu, og ber þvi að keppa að því að bægja þeim frá hinum tryggðu. Æskilegt væri, að sérstök slysadeild væri rekin hér í sambandi við Landspítalann, er annaðist lækningu slasaðra manna i Reykjavík að fullu, bæði þeirra, er þurfa að liggja í sjúkrahúsi, og þeirra, er ferlivist hafa. Slík deild þyrfti að eiga á að skipa færum handlækni, er annaðist t. d. öll beinbrot og framhaldslækningu þeirra. Nuddlækninga- og æfingastofnun þyrfti að starfa í sambandi við deildina, en síðan tæki við vinnustofnun. Þá væri æskilegt, að deildin gæti annazt aðgerðir til

x

Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins
https://timarit.is/publication/1877

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.