Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins - 01.12.1940, Blaðsíða 56
54
Samkvæmt þessu hefur meðalstyrkurinn í kaupstöðunum hækkað
um 30% frá því 1939, og svarar það nokkurn veginn til þeirrar meðal-
vísitöluhækkunar, sem var þetta ár (32%), en utan kaupstaðanna hefur
hækkunin aðeins verið rúm 2%.
Af kaupstöðunum er Reykjavik liæst með 486,54 kr„ en Vestmanna-
eyjar lægstar með 181,92 kr. að meðaltali, en af sýslunum er Suður-
Múlasýsla hæst með 217,38 kr., en Þingeyjarsýsla lægst með 114,27 kr.
(f Árbók Tryggingarstofnunar ríkisins 1936—39 höfðu slæðzt inn
nokkrar villur í töflu 29, bls. 80—81, hvað snertir tölu styrkþeg'a í
Reykjavík 1937. Rétta talan er í töflu 39, bls. 86, og' er hún 1 525, í kaup-
stöðum 2 767 og á öllu landinu 5 860. Meðalstyrkur í kaupstöðum var
jiví ekki 195,97 kr„ heldur 189,95 kr„ og á öllu landinu ekki 163,19 kr„
heldur 160,82 kr.)
Samanburður á íölu gamalmenna og stijrkþega.
Á töflu 24 er gerður samanburður, er sýnir frá ári til árs tölu gamal-
menna og öryrkja í landinu og' þeirra, er styrks verða aðnjótandi. Yfir-
leitt eru ellilaun ekki veitt öðrum en þeim, sem náð hafa 67 ára aldri, en
örorkubætur á aldrinum 16—67 ára. Þó var gerð sú undantekning, að
gamalmenni á aldrinum 60—67 ára, sem fengið hefðu styrk samlcvæmt
hinni eldri löggjöf um ellistyrk, skyldu einnig koma til greina við út-
hlutun ellilauna í árslokin.
Tala gamalmenna 67 ára og' eldri var árið 1937 (þ. e. haustið 1936):
7561; 1938: 7868; 1939: 8190; og 1940: 8140. Við þennan samanhurð er
það að athuga, að ætla má, að skýrslurnar um tölu gamalmenna séu
mun ónákvæmari fyrri árin en þau síðari. Lækkunin frá 1939 til 1940
mun stafa af einhverri ónákvæmni í skýrslum þeim, sem Tryggingar-
stofnuninni eru sendar um gamahnennafjöldann.
Tala öryrkja, sem styrk hafa fengið á öllu Iandinu, var árið 1937:
436; 1938: 826; 1939: 1165; og 1940: 1553. Þessi öra hækkun á tölu ör-
yrkja þeirra, sem styrk fá, stafar sennilega að nokkru leyli af því, að
mönnum eru að verða betur kunn ákvæðin um örorkubætur og' notfæra
sér meir réttinn til aðsækja um þær, en að nokkru leyti af því, að fleiri
gamalmenni á aldrinum 60—67 ára fá nú örorkubætur, en talsvert af
gamalmennum á þessum aldri fékk eins og fyrr segir ellilaun.
Eftirfarandi tafla sýnir, hve mikiJl hundraðshluti gamalmenna hefur
fengið ellilaun. (Aukaúthlutuninni 1938 er sleppt.)
Tafla 23. Hundra&shhiti gamalmenna, sem styrk fá í kaupstöðum, kauplúnum
og öðrum hreppum árin 1!)37—4,940.
1937 1938 1939 1940
Heykjavík 62,6 60,7 53,2 56,0
Aðrir kaupstaðir ....... 79,9 84,4 84,9 82,0
Kauphin 67,2 73,0 75,1 72,4
Aðrir hreppar 49,8 50,9 57,9 o8jö
Allt landið 59,7 61,2 62,6 63,0