Heimili og skóli - 01.03.1949, Page 20
40
HEIMILI OG SKÓLI
verið dýrmætasti fjársjóður foreldra
ykkar. Þegar þið fæddust, var ykkur
heilsað með blessunaróskum, og þegar
að því kemur, að þið kveðjið bernsku-
heimili ykkar, verðið þið einnig
kvödd með bænum og blessunarósk-
um. Og þrátt fyrir ýmis mistök, sem
kunna að hafa orðið á uppeldi ykkar,
eins og allra annarra barna dauðlegra
manna, hefur umhyggja og ást for-
eldra ykkar verið það dýrmætasta, sem
þið hafið átt og munuð nokkurn tíma
eignast. Það á að vera lampinn, sem
lýsir ykkur. Boðorð föður ykkar og
viðvaranir móður ykkar, eiga að vera
ykkur dýrmætir fjársjóðir, hvort sem
þið eigið innstæður í sparisjóðum eða
ekki.
Einnig liér í skólanum höfum við
að staðaldri sent bænir til guðs um
blessun og gengi ykkur til handa, og
við trúum því, að slíkar bænir verði
heyrðar.
En nú eruð þið bráðum ekki leng-
ur börn. Þið eigið nú senn að fara að
ráða ykkur sjálf. Því fylgir mikil
ábyrgð. Hingað til hafið þið vaxið
upp í skjóli foreldra ykkar og sótt ráð
til þeirra, en það er stundum svo erfitt
að ráða einn fram úr vandamálum lífs-
ins. Það er stundum vandi, en oft þó
vandalaust, því að samvizkan segir
okkur ætíð, hvað rétt er og rangt.
Þeirri rödd er óhætt að hlýða. í
Þær eru nokkuð misjafnar einkunn-
irnár ykkar, sem þið fáið úr skólan-
um, en ég held, að þær séu allar rétt-
ar, miðað við það, hvað þið kunnið
og hafið lært hér. En bezta einkunn-
in, sem þið getið fengið, sú einkunn,
sem er betri en nokkur ágætiseinkunn,
er það að vera talinn góður maður.
Góður drengur og góð stúlka eru þær
einkunnir, sem foreldrar ykkar og
okkur öllum þykir meira um vert en
allar hinar til samans. Þið standið í
mikilli þakkarskuld við foreldra ykk-
ar, kennara og vandamenn. Greiðið
þá skuld með því að láta aldrei neinn
blett falla á sæmd ykkar og sál.
Ég þakka ykkur svo, kæru börn,
fyrir samveruna og samvinnuna. Ég
hlakka til að sjá ykkur vaxa og verða
að mönnum, nýtum og góðum mönn-
um. Ykkur, sem eruð að fara héðan
fyrir fullt og allt, kveð ég með bless-
unar- og árnaðaróskum, en við hin,
sem eigið eftir að stunda hér nám enn,
segi ég: Verið velkomin aftur í haust.
Ég þakka öllum samstarfsmönnum
mínum hér við skólann fyrir afburða-
góða samvinnu og hollustu við stofn-
un þessa. Ég þakka hinum fjölmörgu
heimilum fyrir þann ómetanlega
stuðning, er skólinn hefur notið frá
þeim. Það, sem á að binda heimili og
skóla órjúfandi böndum, er hið sam-
eiginlega áhugamál þeirra, að koma
öllum þessum unga gróðri til nokk-
urs þroska.
Svo bið ég góðan guð að blessa ykk-
ur í sumar og alla tíð.
H. J. AI.
Skátablaðið 1. og 2. hefti 1949. Blað þetta
er að vanda afarfjölbreytt og auk þess, sem
það flytur ýmsan skátafróðleik og skátafréttir,
liýður það lesendum sínum upp á margs
konar skemmtiefni.
Heilsuvernd 4. hefti 1948, flytur meðal
annars þessar greinar: Litið um öxl og fram
á leið eftir ritstjórann Jónas Kristjánsson
lækni. Náttúrulækningafélag íslands 10 ára,
eftir Björn Kristjánsson, Nýjar ræktunarað-
ferðir, eftir Björn L. Jónsson. Þýdda grein,
sem nefnist Saga Onnu Lísu Olsson o. fl.