Heimili og skóli - 01.03.1949, Síða 23
HEIMILI OG SKÓLI
43
Ánœgjulegt heimilislíf.
ferðalaginu, hafði notað þetta tæki-
færi til þess að drekka sig fullan, og
varð hann svo óstýrilátur, að konan
réð ekkert við hann og hræddist
hann. Þessi ótti konunnar hafði stöðv-
að starf magakirtlana, og konunni
orðið bráðillt.
Mantegazza hefur rannsakað áhrif
þjáninga á meltingarstarfið, og kom í
ljós, að áhrif þjáningarinnar eru þau,
að lystin minnkar, magameltingin
hættir, og verða oft uppköst og niður-
gangur. Uppköst eru eins líkleg til
þess að koma á eftir sárum þjáning-
um, eins og yfirleitt eftir miklum
geðshræringum.
Þetta, sem hér hefur verið nefnt,
eru hin neikvæðu áhrif sálarlífsins á
meltinguna, en jákvætt er á hinn bóg-
inn allt, sem er ánægjulegt og mann-
inum hugstætt. Fá dæmi um það eru
betri en áhrif þess að bera fæðuna
fallega og snyrtilega fram. Berið mat-
inn fallega fram, með ánægju í við-
móti öllu, og melting yðar og þeirra,
sem þér berið ábyrgð á í heilsufræði-
legu tilliti, verður heilbrigðari.
Jón Sigurðsson
frá Vopnafirði.
HEIMILDARRIT:
W. H. Mikesell: Mentalhygiene.
W. B. Cannon: Bodily Changes in Pain,
Hunger, Fear and Rage.
Menntamál 4. hefti 1948, flytur meðal
annars þessar greinar: Ivennaraskólinn 40
ára, eftir Freystein Gunnarsson skólastjóra.
Sænsk skólamál eftir ritstjórann. Þá er þýdd
grein, er nefnist Uppeldisskilyrði, Annáll
Miðbæjarskólans o. fl.