Heimili og skóli - 01.12.1949, Page 21
HEIMILI OG SKÓLI
137
allri óvissu um dvalarstað skólans, en
liann hefur verið liér og þar um hrepp-
inn, eða að minnsta kosti á 11 stöðum,
síðan kennsla byrjaði veturinn 1908—
1909, en Steingrímur Arason var þá
íyrsti kennarinn í byggðarlaginu. Síð-
an hafa verið þar ýmist fastir eða settir
kennarar 11 að tölu og nokkrir hafa
auk þessa kennt parta úr vetrum. Af
þessu sést, að skólinn hefur verið, eins
og víðar, á hrakningi. Eflaust hefur
aðstaða oft verið erfið, þrengsli og að-
búð ekki sem skyldi. Það er þó víst, að
þeir, sem tóku skólann inn á heimili
sín, hafa gert allt, sem í þeirra valdi
stóð til að hlynna að öllum eftir mætti.
Og sjálfsagt standa margir í þakkar-
skuld við þessi heimili, því að skerfur
þeirra til skólans verður vart ofinet-
inn.
Hið nýja skólahús er tvær hæðir, að-
alhæð og rishæð. Kjallari er undir suð-
urhluta hússins. Á rishæð er íbúð fyr-
ir kennara, 3 herbergi og eldhús, öll
undir súð. Auk þess er þar gangur,
snyrtiherbergi og forstofa. Á norður-
liluta hæðarinnar er allstór salur, einn-
ig undir súð, en eltir er að ganga frá
honum að öllu leyti. Á aðalhæð húss-
ins eru tvær kennslustofur. í stærri
stofunni rúmast um 30 börn, og eru
þar ríý borð og nýir stólar af beztu
gerð. Hin stofan er ætluð til handa-
vinnu. Þá eru á þessari hæð skrifstofa,
áhaldaherbergi, tvö snyrtiherbergi,
,forstofa og stór gangur. í kjallara er
miðstöðvarkynding hússins, þvotta-
hús, kolageymsla, matvælageymsla og
eitt herbergi. Gert var ráð fyrir í upp-
hafi ,að húsið yrði hitað með laugar-
vatni, en öll jarðborun reyndist árang-
urslaus. Húsið er raflýst fLaxárvirkj-
unin). Við húsið á að koma leikvang-
ur, skrúðgarður og trjáreitur, en ekki
hefur verið hægt að byrja á neinni
lagfæringu í kring ennþá. Kemur hún
eflaust á næsta ári. Þegar gengið hefur
verið frá lóðinni og því, sem eftir er
innan húss, hafa hreppsbúar reist sér
snyrtilegt skólasetur. Reynslan sker
svo úr því, hvort rétt hefur verið byggt
eða ekki. Hér veltur mikið á því, hvort
hægt verður að flytja börnin á bíl í
skólann allan veturinn, en við það er
byggingin miðuð. Bregðist heiman-
aksturinn, er heimavist eina úrlausn-
in.