Heimili og skóli - 01.12.1949, Blaðsíða 23
HEIMILI OG SKÓLI
139
fyrir starf hvers skóla, ber brýna
skyldu til þess, að svo vel sé að Kenn-
araskólanum búið sem frekast er kost-
ur. Þjóðin hlýtur að krefjast mikils
af kennarastéttinni, en verður jafn-
framt að gæta þess, að unnt sé að verða
við þeim kröfum.
Nemendasamband Kennaraskóla ís-
lands var stofnað sunnud. 30. okt. s. 1.
Höfuðmarkmið þess er að stuðla að
skjótri og heillaríkri lausn þess vanda-
máls, sem húsnæðisþörf Kennaraskól-
ans er. í þeirri trú, að skáld þurfi ekki
að svelta til að geta skapað listaverk,
að andi skóla og árangur starfs hans sé
ekki endilega í ósamræmi við ytri svip,
í þessari trú mun N. K. í. berjast af al-
efli fyrir því, að Kennaraskólinn fái
hið bráðasta fullkomin húsakynni
fyrir alla starfsemi sína. Sé þá ekki
miðað við augnabliksþarfir einar,
heldur það, sem ætla má, að framtíðin
beri í skauti sínu. Hér þarf því ekki
aðeins að vinna að skjótri lausn, held-
ur einnig haldgóðri. Staðsetningu og
skipulag skólans þarf að vanda, eins
og írekast er kostur og vinna af full-
kominni einurð og festu að framgangi
þess, sem ætla má til mestra heilla.
N. K. I. væntir stuðnings allra, sem
unna menntun og framförum. Það
væntir virkrar og ötullar þátttöku
allra, sem numið hafa í Kennaraskól-
anum og lokið þar prófi, hvert sem
leiðimar hafa legið síðan. Nemenda-
sambandið væntir góðrar samvinnu
við Samband íslenzkra barnakennara
og önnur samtök kennara. Sömu ein-
staklingar, sem að þeim standa, verða
eðliiega meginstyrkur hins nýja sam-
bands, þótt vænta megi margra ann-
arra undir merki þess. Ahugamálin
hljóta því að verða skyld og gagn-
kvæmur stuðningur eðlilegur og æski-
legur. Hins vegar verður verkaskipt-
ing þó skýr, þar sem N. K. í. horfir
fyrst og fremst til Kennaraskólans
sjálfs og starfar því á öðmm gmnd-
velli en stéttarsamtök kennara.
Á næstu vikum mun N. K. í. leitast
við að ná til allra, sem það væntir
styrks af. En því væri mikill léttir, ef
menn snerust til liðs við það ótil-
kvaddir. Óskir um innritun má senda
stjórn sambandsins í Laugarnesskól-
ann eða Melaskólann í Reykjavík.
„Hvað má höndin ein og ein? Allir
leggi saman!“
F. h. N. K. í.
Guðjón Jónsson,
Snorrabraut 42. Reykjavík.
Heimili og skóli vill hvetja alla
starfandi kennara, sem notið hafa
kennslu í Kennaraskóla íslands otT
lokið þaðan prófi, til að fylkja sér um
sinn gamla skóla og ganga í Nemenda-
samband Kennaraskólans. Það er al-
gjörlega óviðunandi, að þessi miki'-
væga menntastofnun búi við svo lé-
leg ytri skilyrði, að hún geti á engan
hátt fullnægt þeim kröfum, sem gera
verður til slíkrar menntastofnunar.
Það er grundvallarskilyrði fyrir heil-
brigðri og frjórri alþýðumenntun, að
Kennaraskólinn sé úrvals mennta-
stofnun, bæði að ytri og innri glæsi-
brag. Það er því von mín, að Nem-
endasamband Kennaraskólans verði
svo sterkt og um leið giftudrjúgt, að
því takist að gera Kennaraskólann að
þeirri stofnun, sem hann á að vera og
honum ber að vera. Ritstj.