Læknaneminn - 01.10.1956, Blaðsíða 19
LÆKN ANEMINN
19
Þegar prófessor kom inn í Hör-
saal, fylgdi honum alltaf hirð af
yfirlæknum, aðstoðarlæknum og
kandidötum, sem hlustuðu á meiri
og minni hluta af Vorlesung eftir
því sem þeir höfðu áhuga fyrir
og tíma til.
Mér var sagt, að áður hefði það
tíðkazt allmikið, að gerðir væru
uppskurðir í Hörsaal. Nú hefur
þetta minnkað mikið, og próf.
Bauer gerði aðeins einn á sumar-
misserinu. Var það magaresection
vegna krabbameins í pars pylorica
ventriculi, gerð í thiopental + N20
+ curare anesthesi og farið gegn-
um miðlínuskurð. Tók aðgerðin frá
því að incisionin var gerð, þar til
sárinu hafði verið lokað, 60 mínút-
ur. Ekki virtist hann flýta sér, en
hann talaði viðstöðulaust, þegar
frá eru talin stutt hlé, sem hann
gerði til þess að lofa svæfingar-
lækninum að tala.
Það kom einstaka sinnum fyrir,
að prófessor hélt ekki sína Vor-
lesung. En það kom aldrei fyrir,
að Vorlesung félli niður, því að
þá talaði sá alltaf, er næstur hon-
um gekk að virðingu.
Nokkrum sinnum héldu erlendir
prófessorar fyrirlestur. Sérstak-
lega eru mér minnisstæðir fyrir-
lestrar er Hollendingur flutti
blaðalaust á reiprennandi þvzku
um handlæknisaðgerðir á lungum
vegna berkla í Hollandi, og Banda-
ríkjamanni, sem var prófessor í
fæðingarhjálp og kvensjúkdóm-
um, og flutti, að vísu af blaði en
á góðri þýzku, erindi um fæðing-
arhjálp eins og hún gerist í Banda-
ríkjunum, og tók þátt í umræðum
á eftir.
Kennslan í kvensjúkdómum og
fæðingarhjálp fer fram í Frauen-
klinik. Ekki var gerður sérstakur
munur á greinunum, þannig að
sérstakir tímar í viku hverri væru
ætlaðir einhverri annarri greininni,
heldur sýnd og farið í tilfelli eftir
því sem tilefni gafst til. En skyldu
sjúklingar lagðir upp á borð til
vaginal inspektionar eða explora-
tionar, var alltaf komið með þær
inn svæfðar (enhexymalnatrium).
Minni háttar aðgerðir (abrasionir
etc.) voru þá gerðar um leið in
auditorio, en ef gera skyldi meiri
aðgerð, var sjúklingi ekið inn í
skurðstofu á eftir.
1 Frauenklinik tók ég ennfremur
þátt í gynákologisch-geburtshilf-
licher Untersuchungskurs. Þóttist
ég læra nokkuð á honum, þótt ekki
fengi ég mikla reynslu.
I Frauenklinik er ágætt kerfi
(fyrir stúdentana) að ófrískar
konur (flestar ógiftar, og, að því
er mér skildist, í einhverjum úti-
stöðum við sjúkrasamlögin, vænt-
anlega vegna þess að þær eru bæði
ófrískar og ógiftar) vinna af sér
þann kostnað, sem leiðir af fæð-
ingu þeirra á stofnuninni með því
að vinna þar í nokkrar vikur ein-
hver léttari og óæðri störf, þ. á m.
eru þær skyldugar til þess að leyfa
stúdentum að æfa sig á að skoða
þær. Skoðanir þær, sem okkur var
leyft að gera, voru þó heldur lítil-
fjörlegar, ekki á fæðandi konum
og aðeins ytri skoðun. Konur þær,
sem við skoðuðum með tilliti til
gynekologiskra einkenna, tilheyrðu
sjúklingamateriale klinikunnar og
komu allar inn svæfðar.
Of langt mál yrði að lýsa öðr-
um klinikum, sem ég sótti Vor-
lesungen og verklegar æfingar í.
Það voru auk kirurgisku og Frau-
enklinik: medizinische-, medizini-
sche Poliklinik, neurologische-,
Haut- og Augenklinik.
Bækur þær, sem notaðar eru,
kynnti ég mér lítið. Yfirleitt var
ekki siður að koma með þær í tíma.
En verð þeirra er óhóflega hátt,