Læknaneminn - 01.10.1956, Síða 21
LÆKNANSMINN
21
SKÁKÞÁTTURINN
Stærsti viðburðurinn í heimi
skáklistarinnar þetta árið, er vafa-
laust Olympíuskákmótið, sem hófst
í Moskvu í byrjun sept. og stend-
ur enn yfir, er þetta er ritað. Eng-
inn skyldi því voga sér að skrifa
greinastúf um skák í ár, án þess
að minnast þessarar keppni að
einhverju leyti, eða að minnsta
kosti láta í það skína, að hann
viti eitthvað um hana, og geri ég
það hér með.
Það, sem vekur mesta athygli
okkar stúdenta í sambandi við
skák nú, er vafalaust sú fyrir-
ætlan að halda næsta alþjóðaskák-
mót stúdenta hér á landi næsta
sumar. Undanfarin 4 ár hafa ís-
lenzkir stúdentar tekið þátt í þess-
um alþjóðaskákmótum og hafa í
öll fjögur skiptin staðið sig með
ágætum og verið landi sínu og ís-
lenzkum stúdentum til sóma.
Ekki er enn ákveðið, hvenær
væntanlegt skákmót verður hald-
ið, en fullvíst er þó, að það verði
einhvern sumarmánuðinn næsta.
Ekki vita menn heldur, hversu
mikil þátttakan verður, en þó er
búizt við, að hún verði mjög mikil
og jafnvel meiri en nokkru sinni
fyrr, einkum ef til þess kæmi ,að
einhver Ameríkuríkin sendu lið til
keppninnar, en þau hafa hingað
til ekki verið með í þessum stú-
dentaskákmótum.
Að sjálfsögðu er ekki hægt að
spá neinu um keppnina, eða yfir-
leitt að gera sér nokkra hugmynd
um hana, þar sem maður veit svo
lítið um fyrirkomulag hennar og
þátttöku í henni ennþá. Nefnd
stúdenta vinnur nú af kappi að
undirbúningi mótsins, og er það
að vonum mikið verk og erfitt, sem
hún á fyrir höndum, því að það
er ekki lítið verk að skipuleggja
slíkt alþjóðamót sem þetta og
margir erfiðleikarnir, sem þarf að
yfirstíga, áður en skákgarparnir
geta sezt að borðum og hafið or-
ustuna. Vonandi verða íslenzkir
stúdentar samtaka um að gera
þessa keppni sem glæsilegasta,
bæði hvað viðvíkur framkvæmd
mótsins yfirleitt, og mætti í því
sambandi minna stúdenta á, að
liggja ekki á liði sínu, ef þeir
geta á einhvern hátt stuðlað að
þessu, og einnig að úrslitin verði
okkur íslenzku stúdentunum til
sæmdar.
í stúdentahópi eru margir af
beztu skákmönnum heims. Þar eru
stórmeistarar á borð við Taimanov
og Dr. Philip og alþjóðlegir meist-
arar, svo sem Friðrik Ólafsson,
og notum við hér með tækifærið
til að óska honum til hamingju
með þennan nýja titil og vonum,
að ekki líði langur tími þar til
hann verði búinn að krækja sér
í stórmeistaratitilinn. íslenzka
sveitin, sem keppa mun á mótinu,
hefir ekki verið valin ennþá, að
sjálfsögðu, og ekki gott að segja
hverjir hana skipa að þessu sinni,
en fullvíst má telja, að hún verði
hörð í horn að taka með Friðrik
Ólafsson að líkindum á fyrsta
borði, kannske Guðmund Pálma-
son á öðru borði og svo þá skák-
kappana Þóri Ólafsson, Jón Ein-
arsson og Ingvar Ásmundsson á
hinum borðunum. En margt getur
nú skeð á einum íslenzkum vetri,
nýjar stjörnur geta runnið upp á
himni skáklistarinnar og aðrar
horfið sjónum, eins og gengur.
Áreiðanlegt er, að viljum við
stúdentar og sýnum viljann í
verki, þá mun þetta skákmót bæði
verða mikil lyftistöng fyrir skák-