Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1967, Blaðsíða 13

Læknaneminn - 01.04.1967, Blaðsíða 13
LÆKNANEMINN 13 áhuga. Þegar vel tekst til, ætti þetta að leiða til umbóta á rannsóknaaðferðum og meðferð. 3. Kennsla og þjálfun læknanema og almennra lækna. Ferlivist- ardeildar eru að ýmsu leyti betur fallnar til kennslu en mjög sérhæfðar spítaladeildir, sem að mestu fást við fágæta og erfiða sjúkdóma. Læknanemar fá oft alrangar hugmyndir um almennt læknisstarf á sérdeildum. Þar kynnast þeir sjúkdóm- um aðeins á ákveðnu stigi, og læra fátt um tíðni sjúkdóma og þjóðfélagslega þýðingu. Oft tekst svo til, að læknanemar sjá aldrei á námsferli sínum þá sjúkdóma, sem valda almenn- ingi mestum ama og þjóðfélaginu mestu vinnutjóni. Á lyflæknisdeild Landspítalans hefir það lengi verið áhugamál að koma á fót ferlivistardeild. Ekki hefir annað verið til fyrirstöðu en skortur á húsrými. Að sjálfsögðu hefir deildin ekki frekar en aðrar spítaladeildir getað skotið sér algerlega undan að sinna þessum verk- efnum. Starfið hefir þó einatt verið unnið við hin erfiðustu skilyrði, oft á spítalagöngum og í almennum vinnutíma lækna á deildinni. Þetta hefir bakað bæði sjúklingum og læknum óviðunandi óþægindi, óþarfa bið og vinnutap sjúklinga, en lélega nýtingu á dýrum starfskröftum sérfræðinganna. Nú er fastákveðið að hefja þessa starfsemi strax og húsnæði er fyrir hendi. Vonir standa til, að það fáist til bráðabirgða í nýbyggingu spítalans. Ætlunin er að taka til eftirmeðferðar ákveðna sjúklinga- flokka, sem ekki er á valdi almennra lækna að annast svo vel sé. Ákveðið er, fyrst um sinn, að taka þarna að sér eingöngu þá sjúklinga, sem vistaðir hafa verið á deildinni. Ekki fæ ég þó séð, að neitt sé því til fyrirstöðu að taka þarna einnig til athugunar þá sjúklinga, sem eru á biðlistum deildarinnar á hverjum tíma. Mætti þá skipuleggja og hefja rannsóknir til flýtisauka. Með þessum hætti mætti örugglega stytta verulega spítalavist flestra sjúklinga, en leysa vanda annarra, án þess að til spítalavistar þurfi að koma. Þetta væri ómetanlegt, því það erfiðasta af öllu í starfi okkar spítalalækna nú, er að verða sí og æ að neita þurfandi sjúklingum um hjálp, vegna skorts á sjúkrarými. Að lokum vil ég endurtaka, að það er sannfæring mín, að með þeim aðgerðum, sem ég hefi nefnt, þ. e. stofnun hjúkrunarheimila, þjálfunarstöðva og ferlivistardeilda, mætti auka svo afköst hinna bezt búnu sjúkrahúsa, að ekki yrði þar um skort á sjúkrarúmum að ræða um næstu framtíð.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.