Læknaneminn - 01.04.1967, Blaðsíða 20
20
LÆKNANEMINN
koma síðan eða senda eftir þess-
um spjöldum að morgni þess dags,
sem þeir ætla að koma, hafi þeir
ekki pantað tíma áður. Hverjum
sjúklingi eru ætlaðar 15 mínútur.
Hjúkrunarkona starfar hjá
okkur, og annast hún símavörzlu,
tekur niður vitjanabeiðnir og
tímapantanir, og eru þá viðkom-
andi spjöld tekin út úr. Hún tek-
ur niður beiðnir um lyfseðlaáritun
á lyfjum, sem sjúklingur notar að
staðaldri, auk þess gefur hún
sprautur og skiptir á umbúðum.
Enginn fastur símaviðtalstími
er, en ef bráðan vanda ber að
höndum, gefur hún strax samband
við annan hvorn okkar. Megi sam-
tal bíða, er sá háttur hafður á, að
símanúmerið er tekið niður og
hringt í viðkomandi, þegar færi
gefst, oft í lok vinnudags.
Vitjunum skiptum við oft
þannig, að sá sem á vaktina þann
dag tekur innkomnar vitjanir og
þá oft í beinu framhaldi þær
bráðavitjanir, sem berast eftir
venjulegan vinnutíma, en iðulega
förum við saman í vitjanir, ef um
vafaatriði er að ræða, og tekur
fólk þessu mjög vel. Þetta gefur
okkur tækifæri til að ræða þau
bráðu tilfelli, sem fyrir koma, og
tækifæri til að samræma meðferð
í bráðum sjúkdómum.
Þetta samstarf, sem hér hefur
verið lýst, hefur nú staðið í um 9
mánuði, og sú reynsla, sem við
höfum fengið af því, sýnir okkur,
að hver sú breyting, sem miðar
að því að brjóta niður einangrun
lækna, gerir starfið á allan hátt
ánægjulegra og betra.
Lokaorö.
Með grein þessari er ætlunin að
vekja athygli á nokkrum vanda-
málum, sem steðja að almennum
lækningum. Þessi vandamál verða
því aðeins leyst, að yngri læknar
taki höndum saman við þá, sem
fyrir eru í almennum lækningum,
um að knýja fram á hverjum stað
þær breytingar, sem nauðsynlegar
eru til þess að búa heimilislækn-
um viðunandi starfsskilyrði. Án
verulegrar nýliðunar úr hópi yngri
lækna verður málinu ekki bjargað.
Að síðustu skal bent á nokkrar
bækur og rit, sem geta komið að
gagni við skipulag almennra lækn-
inga:
1. The Field of Work of Family
Doctor Report of the Sub-
Committee. (Central Health
Services Council Stading Medi-
cal Advisory Committee).
London Her Majesty’s Station-
ery Office.
2. The Doctor’s Surgery. A
Practical Guide to the Plann-
ing of General Practice. The
Practitioner, London 1964.
Þessi bók er sérprentun greina,
sem birtust í The Practitioner
jan.—des. 1963. („General
Practice Today and Tomorr-
ow“).
3. Health Centres and Group
Practices. Articles collected
from the British Medical Jorn-
al. Published by the British
Medical Association Tavistock
Square, London, W.C.I.
4. Buildings for Medical General
Practice. Produced by the
College of General Practition-
ers, 14 Princes Gate, London,
S.W. 7.
5. General Practice Good. A Re-
port of Survey. Stephen Taylor.
Oxford University Press.
Þessi bók hefir að vísu verið
ófáanleg að undanförnu, en
líkindi eru til, að hún muni
koma á markaðinn aftur innan
tíðar.
Febrúar 1967