Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1967, Síða 26

Læknaneminn - 01.04.1967, Síða 26
26 LÆKNANEMINN Þóroddur Jónasson, héraðslæknir: Viðbánaðnr héraðsiækna við bráðatilfellum Grein þessi er að upphafi erindi, ei’ höf. flxitti á síðasta þingi héraðslækna í Landspítalanum sept. 1966. Erindið er miðað við þá skipan heilbrigðisjxjónust- unnar um landið, sem nú ríkir. — Ritstj. Mér er ætlað að segja hér nokk- ur orð um viðbúnað héraðslækna við bráðatilfellum sem inngang að umræðum um það mál. Ég býst ekki við að flytja ykkur mikinn nýjan sannleik, en þetta efni er vel þess virði, að hugleiða það og ræða. Þegar tala skal um þennan við- búnað héraðslækna, verður að hafa það hugfast, að héruð eru mjög ólík í þessu tilliti. Dreifbýli eða þéttbýli, vegalengdir, sam- göngur og atvinnuhættir ráða miklu um þessi tilfelli, hve mörg og hvers eðlis þau eru, hvar þau koma fyrir og hverja afstöðu hér- aðslæknir verður að taka til þeirra. Ég get nefnt sem dæmi, að ég hef í 15 ár verið héraðslæknir x héraði, þar sem vegalengdir eru miklar og eingöngu dreifbýli. Slysahætta er ekki bundin við einn stað öðrum fremur, aðstaða til að hafa sjúklinga undir eftir- liti annarsstaðar en í heimahúsum er ekki fyrir hendi né nein aðstoð þeirra, sem lært hafa slíkt. Næsti collega minn situr í allmiklu fjöl- mennara héraði, þar sem % hér- aðsbúa eru búsettir á sama stað og nokkur spítalaaðstaða með æfðu starfsliði er á staðnum. Það gefur auga leið, að viðbúnaður okkar og afstaða er ólík. Sérstök atriði í þessum viðbún- aði mun bera á góma, þegar rætt verður hér á námskeiðinu um ein- staka þætti bráða-læknishjálpar, bráða meðferð á beinbrotum, á sárum, krampa, dá o. s. frv. Ég mun reyna að halda mig sem mest við grundvallaratriði, sem ættu að gilda í sem flestum héruðum, og hafa þarf í huga áður en sjúkl. er komið á sjúkrahús. Einnig mun ég gefa sérstakan gaum aðstöðu þess læknis, sem rær að mestu einn á báti og hef þá að sjálfsögðu núverandi læknaskipan á bak við eyrað. Bráðatilfellum má í stórum dráttum skipta í bráða sjúkdóma og slys, þó að sú skipting sé ekki alltaf greinileg. Hlutverk héraðs- læknis er að sjálfsögðu greining og meðferð. Greiningin er ekki eingöngu sjúkdómsgreining, dia- gnosis, sem endi á því að slegið sé föstu heiti sjúkdómsins á íslenzku og latínu, heldur engu síður flokk-

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.