Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1967, Side 36

Læknaneminn - 01.04.1967, Side 36
36 LÆKNANEMINN Frá stjórn F. I. i. Fá vísindi eru í eins mikilli verðandi og læknisfræði. Stóri- sannleikur á þar hvergi heima. Það sem reynist rétt í dag verður að víkja fyrir því, sem réttara reynist á morgun. Læknisfræði er afstæð vísindi, niðurstaðan verður afstæð sann- indi og leitin þrotlaus. Kennsla í slíkum fræðum má ekki vera kreddubundin. Flestar kennslubækur, ef ekki allar, eru kreddubundnar. Sama er að segja um flesta kennara. Eitt er það um- fram flest annað, sem getur kom- ið í veg fyrir oftrú á ákveðna kennslubók og/eða ákveðna kreddu, en það er gott og fjöl- breytt bókasafn læknisfræðilegra rita. Auk þess er talið, að engin vísindagrein geti þróazt og vaxið án stuðnings voldugs bókasafns helztu vísindarita sinna. Öllum, sem til þekkja, er ljóst, að Háskólabókasafnið fullnægir hvergi nærri lágmarkskröfu, og allra sízt m. t. t. læknisfræðirita. Bókasafn Landspítalans, og þá fyrst og fremst lyflæknisdeildar, er vægast sagt í miklum ólestri. Hin hryggilega staðreynd er, að ekkert bókasafn, Landsbóka- safnið ekki undanskilið, er til á íslandi í dag, sem nálgast það að vera vísindalegt læknisfræðibóka- safn. Raunar gildir þetta víst um önnur raunvísindi í landinu. Heyrzt hafa þær raddir, sem sam- eina vilja bókasafn fyrir lækna- vísindi og önnur raunvísindi og finna slíku safni stað í verðandi Læknadeildarhúsi. Ákjósanlegt væri, ef framvinda mála yrði á þann veg, og mætti slík ákvörðun hraða byggingu Læknadeidarhúss. Ávinningurinn af slíku vísinda- bókasafni fyrir læknadeildina og læknavísindin er svo augljós, að vart þarf um að ræða. Eitt atriði mætti þó benda á, sem mjög varð- ar okkur læknastúdenta. Það hef- ur ekki tíðkast hjá prófessorum og öðrum kennurum deildarinnar að benda stúdentum á bækur og tímaritagreinar til glöggvunar á efni því, sem um er rætt hverju sinni. Er þetta mjög til baga, þar eð kennslubækur eru oftast 2—3 árum „á eftir tímanum", þegar þær koma út. Höfuðástæðan fyrir því, að þessi siður tíðkast ekki hér við lækna- deildina, hlýtur að vera sú vissa kennara, að stúdentar hafi ekki aðgang að þeim gögnum, sem nauðsynleg eru, til þess að slíkar tilvitnanir komi að gagni. n. Á síðasta aðalfundi L.L, sem haldinn var að Laugum dagana 29—30. júlí 1966, sátu sern áheyrnarfulltrúar fyrir F. L. for- maður og gjaldkeri. Stjórn F. L. vill þakka stjórn L. I. ágætar mót- tökur og skilning á þörf náinna tengsla milli þessara félaga. Það er deginum ljósara, að þeir, sem

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.