Læknaneminn


Læknaneminn - 01.04.1967, Page 38

Læknaneminn - 01.04.1967, Page 38
S8 LÆKNANEMINN Þing I.F.M.S.Ao í Prag Undirritaður fór í forföllum stúdentaskiptastjóra Félags læknanema til Tékkoslavakíu til þess að sitja þing stúdentaskipta- stjóra og fulltrúaráðs I.F.M.S.A., sem haldið var í Plzen og Prag dagana 31. des. til 7. jan. s. 1. V egna áramótaf agnaðar var ekki unnt að fá hótelrúm fyrir okkur í Prag, og urðum við því að fara til Plzen tvo fyrstu daga þingsins. Á þessu þingi var aðallega rætt um stúdentaskipti milli hinna ýmsu þátttökuríkja, en samkvæmt mati allra aðila samtakanna eru stúdentaskipti það girnilegasta sem þau hafa upp á að bjóða. Okkar stúdentaskipti eru ákaf- lega lítilfjörleg miðað við flestar aðrar þjóðir samtakanna, sem flestar senda árlega yfir hundrað stúdenta til annarra landa, en við aðeins um tíu á ári. Þjóðverjar sendu til dæmis yfir níu hundruð stúdenta í stúdentaskipti og Júgó- slavar yfir fimm hundruð, en hjá þessum tveimur þjóðum var mest- ur áhugi á stúdentaskiptum. Á þingum sem þessum eru teknar fyrir og ræddar skýrslur þátt- tökuríkjanna um stúdentaskiptin á liðnu ári. í skýrslu okkar kom fram nokk- ur gagnrýni á Þjóðverja, vegna þeirra lélegu frammistöðu gagn- vart okkur, einkum vegna með- ferðar, sem þrír íslenzkir stúdent- ar fengu í Munchen s. 1. sumar Fleiri tóku undir með okkur, þar á meðal frændur vorir Norðmenn, sem töldu sig hafa slæma reynslu af skiptum við þýzka. Það kom fram að dvalarkostn- aður er ekki ókeypis í Þýzkalandi heldur fær hver stúdent, sem inn kemur, styrk til að standa straum af þeim kostnaði, nam sá styrkur s. 1. sumar 250 D. M. Aftur á móti fengum við gagn- rýni fyrir að vera seinir til svars við umsóknum hingað og seinir til að senda okkar umsóknir út. Mér virtust flestir ganga frá sínum stúdentaskiptum fljótlega upp úr áramótum. Þetta skapar dálitla erfiðleika í samskiptum okkar við aðra. Sýnist mér því þörf á að brýna fyrir stúdentum okkar að ákveða sín stúdentaskipti dálítið fyrr en þeir hafa gert hing- að til. Þeir stúdentar, sem hingað komu á s. 1. sumri voru ánægðir með dvölina, og höfðu flest allir borið okkur góða sögu. Það virðist vera talsverður á- hugi meðal erlendra stúdenta að koma til íslands í stúdentaskipti, einkum ber þar að nefna Sviss- lendinga, Þjóðverja og Svía. Jafn- vel ítalir og Spánverjar báðu um samskipti. Formaður þeirrar nefndar inn- an I.F.M.S.A., sem hefir með stúdentaskipti að gera er Sviss- lendingur, Otto Schildknecht, og hafði hann unnið gott starf á s.l. ári. Meðal annars var hann kom- inn eitthvað áleiðis með samninga við I.A.T.A. flugfélagasamtökin um afslátt á flugfargjöldum fyrir stúdenta í stúdentaskiptum innan I.F.M.S.A. Talsvert mikið var rætt um samskipti aðildarríkja I.F.M.S.A.

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.