Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1974, Page 26

Læknaneminn - 01.11.1974, Page 26
þjóðfélagsfræðingarnir og samt tala þeir nú næst- um því kínversku. Og allir voru mjög ánægðir. En dag einn varð Jóhannes veikur og gat ekki lif- að. Nú lá hann í súrefnistjaldinu sínu og Dauðinn sat á brjósti hans. Dauðinn hafði dregið doktors- hringinn hans á fingur sér og sett stúdentastj örnuna hans um hálsinn. Og á veggjunum allt í kring um hann birtust andlit. „Manstu,“ hvísluðu þau. „Manstu?“ Sum andlitin voru ljót og líktust helst röngum sjúkdómsgreiningum, en önnur voru svo dásamlega mild að það var engu líkara en þau hefðu tekið Restenil. „Tölfræði, tölfræði,“ hrópaði Jó- hannes, en enginn heyrði til hans, því allir voru önnum kafnir við að vera önnum kafnir. „Tölfræði, tölfræði, hin mikla stærðfræðilega tölfræði,“ hróp- aði hann. En allt var kyrrt. Tölvan stóð kyrr, hjarta- línuritið var kyrrt. Það eina sem hreyfðist var sökk- ið, sem sökk og sökk, þar til það gat ekki sokkið lengra og þá stóð það líka kyrrt. Og Dauðinn horfði á Jóhannes tómum augnalóftum — aumingja litli Jó- hannes. Þá hljómaði úti í skóginum hin fegursta söngrödd, tær og hrein. Það var næturgalinn, litli grái næturgalinn, sem hafði verið sendur í útlegð. Og hann söng svo vel um lífið og dásemdir þess, svo vel að Dauðinn gleymdi Jóhannesi og fór að langa heim í kyrrláta garðinn sinn og hann sveif burt. „Þakkir, litli fugl,“ sagði Jóhannes. „Þú skalt fá doktorshringinn minn, persónufrádráttinn minn og dráttarvextina mína og tölvuna ætla ég að mölva í þúsund mola.“ „Gerðu það ekki,“ sagði næturgal- inn. „Hún gerir það sem hún getur. En mundu eitt og þá mun þér ætíð farnast vel. Mundu að lilusta á þá sem eiga hágt og þá sem eru einmana, þá verður þú sannur læknir.“ Og næturgalinn söng aftur, já, hann söng þjóðfélagsfræðilega trillu um Faust og Marx og um hinn græna gróður lífsins og um rauðu kenninguna. Og hinn góði Jóhannes sofnaði svo vært. Morguninn eftir fór hann á fætur, því nú var honum batnað. Og hann tók í höndina á fallegustu stúlkunni, og fór svo inn til gamla yfirlæknisins. „Hér,“ sagði hann, „hér er litla vandamálið með haus og hala. Þú getur fengið það aftur, því nú ætla ég að fara út í heiminn og hjálpa þeim sem eiga bágt.“ Og gamli yfirlæknirinn varð svo hrærður, að hann fægði nefið og þerraði gleraugun. Og svo lagði hann hödina á brjóstið vinstra megin, þar sem hjart- að er — því hjartað er nefnilega líka vinstra megm i yfirlæknum - og svo sagði hann: „Hérna er gamla stetóskópið mitt, það máttu eiga. Farðu og notaðu það, því það heyrir tóna, sem hræra hjörtu mann- anna.“ Og síðan leiddi Jóhannes fallegu stúlkuna - hún var reyndar prinsessa — út í hinn víða heim. Og allir í þorpinu héldu veislu. Bakarinn bakaði snúða og úr gosbrunninum kom eintómt rauðvín. Drottningin ók um í nýja sjúkrabílnum og hermenn- irinir veifuðu byssunum eins og þeim væri borgað fyrir það, og það var þeim jú líka. En tölvan var niðri í kjallara og suðaði . . . en hún skildi heldur ekki tóna hjartans. Úr Medicinsk Forum. Þýðing: Hallgrímur Magnússon BiSstojan. 22 læknaneminn

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.