Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1974, Síða 41

Læknaneminn - 01.11.1974, Síða 41
skarlatssótt áður en leitast verður við að greina sundur hinar ýmsu útbrotasóttir annálanna. Sveinn Pálsson segir í Registri yfir íslensk sjúk- dómanöfn: „Flekkusótt (febris petechialis, miliaris, purpuralis) veit ég ei til að einsömul nokkurntíma I gengið hafi á Islandi, en samferða landfarsóttum og bólusótt fer trauðla hjá að hún ei birst hafi þar sem annarstaðar“. (10, IX, 210-211). Sama álit kemur fram hjá Jóni Thorstensen, þegar hann segir: „Mesl- ingar sem eru ein tegund af flekkusótt (svo köllum við íslendingar allar þær sóttir á hvörjum rauðir flekkir jafnaðarlega koma út, bæði skarlatssótt, meslinga og fleiri sem eru þó sérskildar tegund- ir) . . .“ (21, 1). I eiginhandriti Bjarna Pálssonar (Lbs. 233, 4to, IV, bl. 70-71) skráðu í Kaupmannahöfn 12. júní og sent Magnúsi amtmanni og Skúla fógeta 1758, að því er segir í ævisögu Bjarna (12. 84), segir svo: „Stutt og einfölld undervísan um Flecku Sóttena 1758 og hvað við hana hellst er aðgiætande og reyn- ande. Þesse sótl tekur fólk í fyrstu á ýmsan hátt, suma með miklu slene, höfuðþyngslum og dofen- skap, enn flesta tekur hún með höfuð-verk og herða, og hita í kroppenum, færest so verkurenn framm fyrer biosteð, og helldst við í höfðenu biriar þá oft- ast nær á þriðja degi, stundum ecke fyrr en á fimmta að siást til fleckianna í andlitenu, sæker menn um þennan tíma, og síðan framm efter þorste mikell einkum er þá brióstenu hætt, sierdeiles hiá þeim er brióstveiker eru; en þeir sem áður hafa veikt höfuð eða eru miög óróleger í sinneslage fá giarnan ofstæðu þungan höfuðverk, og falla í höfuð- óra, fylgia því giarnan fríslingar1 sem bestanda í því að fleckerner, sem að flecku sótten bestendur af vaxa upp í smá toppa eða örður, líkt því sem skeður í þurru bólu, - nema þessar örður eru graftrar- og vessalausar eða litlar, og falla ecke í sár. Þegar út er komed á andlitenu, fer smám saman að koma út á brióstenu, höndunum, hryggnum, og síðast á fót- um og lærum. Þetta plagar oftast að hafa fyrer sier 3 daga ef rétt vel geingur, 5 daga í meðallage, og 9 daga þá allt geingur hægt, so sem hiá þeim sem slím- fullt blóð hafa og seinferðugar lífshræringar. l Fríslingar mun þýðing Bjarna á frisel í dönsku og Frie- sel í þýsku er merkir útbrot eða upphlaup, einkum kulda- upplilaup, „gæsahúð" (6). Sótt þesse er oft nockuð skiæð ómálga oft létt það- an af þeim sem eru á vaxtar og þroska skeiðenu. Mörgum þung þaðan af og einkum þeim öldruðu, enn mest kemur það upp á complexíu manna, blóðs og sinnes hræringar, samt útvortes adbúnað.“ Það er greinilegt, að með flekkusótt á Bjarni við mislingasólt þá er gekk í Kaupmannahöfn 1758 og sem meðal annarra tók vin hans Hannes Finnsson síðar biskup (4, 29). Bjarni hefur sýnilega sent amt- manni og landfógeta þessa „Stuttu undervísan .. .“ til Jjess að Jreir mættu vera betur undir Jmð búnir að glíma við veikina ef ske kynni að hún bærist til Is- lands með vorskipunum. Jón Sveinsson landlæknir er sömu skoðunar og fyrirrennari hans í embættinu að flekkusótt sé febris morbillosa (19, 50), og báð- ar merkingarnar eru í orðabók Björns Halldórsson- ar, flekkusótt = febris morbille og morbus lentigin- osus sem merkir útbrotaveiki almennt. Um mislinga segir Sveinn Pálsson: „Mislingasótt, mislingar (febris morbillosa) er útsláttar sótt svip- h'k bólu fyrst í stað, en grefur Jró ei sem hún, - nafnið er tekið frá dönum, og sjúkdómur sá er yfrið rar á íslandi“ (10, X, 17). Og á skarlatssótt gefur hann þessa lýsingu: „Skarlatssótt (febris scarlatina) er ein landfarsótt sem oftast byrjar með kverka- kreistu, síðan koma rauðir flekkir útum líkamann, gengið hefir hún á íslandi árin 1787 og 88 að vitni Landph. Hra. Jóns Sveinssonar, og þekktu hana fáir utan hann“. (10, X, 36). En í ferðabókinni hefur Sveinn Pálsson þetta að segja um skarlatssóttina sem gekk 1797 á Suður- og Austurlandi: „Veikin fór að stinga sér niður í júlímánuði, rétt eftir komu Vestmannaeyjaskipsins, og er það í almæli að einn af hásetunum hafi borið hana með sér frá Kaup- mannahöfn. Fyrst kom hún upp i Landeyjum, en íluttist þaðan með ferðamönnum af Austurlandi undir Eyjafjöllin og í Vestur-Skaftafellssýslu. Var veikin mjög væg, meðan heitt var í veðri, stakk sér niður ,en gat varla talist farsótt. Hún lagðist einkum á börn á 2—10 ára aldri og banaði þeim, fór fram hjá mörgum bæjum, eða kom jafnvel upp aftur einu sinni eða tvisvar á sama bæ. En með haustinu, er dumbungar og kuldar fóru að ganga, breiddist hún eigi aðeins lengra upp um sveitir og vestur á bóginn, heldur snerist hún og upp í hættulega bólgu- og í- gerðarkvilla, er bættust ofan á beinverki, kvefpest læknaneminn 31

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.