Læknaneminn


Læknaneminn - 01.11.1974, Page 55

Læknaneminn - 01.11.1974, Page 55
Ijjörnsson landlæknir áætlar að 354 menn hafi látist úr mislingum (3, 1907 og 1908, 2). Það eru 0,43% íbúanna og 4,8% af þeim sem skráðir eru með misl- inga. Það er sjálfsagt of há tala því eflaust eru ekki allir mislingasjúklingar tíundaðir, en það er einnig allt of lágt að telja dána úr mislingum 0,83% af fólki á mislingaaldri, eins og Guðmundur Hannesson gerir (3,1911-1920,XXVI),því þá reiknarhannmeð fólki yngra en 25 ára. En um mikinn hluta Vest- fjarða fóru misfingar 1904 eða 3 árum fyrir 1907. 1909: Mislingar bárust til Mjóafjarðar 1909 frá Kaupmannahöfn, vissi læknir ekki um þá fyrr en um seinan. Komst veikin á 12 bæi og sýktust 27 (3, 1909 og 1910, 7). 1912: Mislingar fluttust 1912 frá Höfn til Mýrdals og smituðust 3 bæir, en tókst að varna frekari út- hreiðslu. (3, 1911-1920, XXIII). 1913: Þeir fluttust 1913 frá Danmörku til Reykja- víkur, á 3 heimili þar, en með sóttvarnaraðgerðum var veikinni útrýmt (3, 1911-1920, XXIII). 1916-1917: Sóttin fluttist í apríl 1916 til Reykja- víkur frá Noregi. Hafði einn farþegi verið lasinn er kom til Reykjavíkur, og talið var af kvefi, - „en eng- in útbrot haft“, annar smitaðist af honum og lagðist á Isafirði. Liðu svo 5 dagar áður en vitnaðist um sóttina og komu varnir ekki að haldi. Veikin fór um allt landið á liðlegu ári, síðustu sjúklingar voru skráðir í maí 1917. AIls voru skráðir 4936 með mislinga og talið að þeir hefðu orðið 118 mönnum að bana, eða 2,4% hinna skráðu. Af 1780 sjúkling- um í Reykjavík dóu 23 eða 1,2% (3, 1911—1920, XXIII-XXVI). 1924—’26: Þessi mislingafaraldur barst til Reykja- víkur frá Bergen og fór smám saman um allt land. Fyrstu sjúklingarnir á skrá eru í júlí 1924 og þeir síðustu í ágúst 1926. Hafði þá faraldurinn staðið í 26 mánuði og alls verið skráðir 6130 sjúklingar og 34 dánir úr mislingum eða 0,55% (3, 1921-1925 og 1926). 1928—1929: Veikin hófst nú í ágúst 1928 á Siglu- firði, en síðustu mislingasj úklingarnir eru skráðir í desember 1929. Faraldurinn gekk aðallega á Norð- urlandi og í Reykjavík. Alls voru skráðir 5319 með mislinga og 15 dánir úr þeim, eða 0,28%. Árið 1930 er 1 talinn dáinn úr mislingum, en enginn mislinga- sjúkur er á skrá það árið. 1931-1932: Mislingafaraldur hefst á Akureyri í nóvember 1931, en engin deili sögð á uppruna hans; hann berst til Sauðárkróks og Höfðahverfishéraðs og lýkur í mars 1932, eftir 5 mánuði. 163 veiktust og enginn þeirra dó. 1936-1937: Mislingar bárust í febrúar með tog- ara frá Englandi til Bíldudals og þaðan til Reykja- víkur með manni er slapp undan sóttkvínni vestra. Með vorinu bárust þeir frá Reykjavík út um aflt land. Faraldrinum lýkur í mars 1937, höfðu þá 8408 veikst og 60 látist eða 0,71% skráðra sjúklinga. 1^43-1944: Mislingar komu upp í Reykjavík um miðjan febrúar 1943, en ekki tókst að upplýsa hvað- an þeir komu. Með vorinu bárust þeir út um allt land og lauk í maímánuði 1944. Alls voru skráðir 7156 sjúklingar og 18 mannslát úr misfingum eða 0,25% skráðra. 1946-1948: í ársskýrslu fyrir Reykjavík 1946 segir: „Eins og drepið var á í ársskýrslunni fyrir ár- ið 1945, bárust mislingar inn í héraðið frá Dan- mörku í júlímánuði. Tókst að stöðva útbreiðslu þeirra þegar í stað. En mislingarnir bárust til ann- ara landshluta, einkum miðvesturlands. Á þessu ári bárust þeir aftur inn í héraðið, sennilega frá Vest- urlandi. Var það fyrra hfuta ársins.“ (3, 1946, 30). Árið 1945 eru aðeins skráðir 3 mislingasjúklingar í Reykjavík, en ekki annars staðar, svo ætla má að í sumum héruðum hafi þeir ekki komist á skrá. Árið 1946 eru mánuðina apríl og maí taldir 5 mislinga- sjúklingar í Reykjavík og aðrir 5 í nóvember, en í desember 13 sjúklingar í 4 héruðum, og er þá hafinn faraldur, sem fer um allt land og eru síðustu sjúkling- ar á skrá í ágúst 1948 eða eftir 22 mánuði. Á þessu tímabili eru skráðir 4791 mislingasjúklingur og lét- ust 6 þeirra eða 0,13%. Árið 1949 eru tveir mislingasjúklingar skráðir í Keflavík, en ekki vitað hvar veikin var tekin. í fe- brúarmánuði 1950 befst mislingafaraldur í Reykja- vík sem heldur ekki er vitað um uppruna á og upp frá því eru mislingar árlega á skrá, þó stunduð líði nokkrir mánuðir sem engir eru á skrá. Það má því heita að upp úr síðari heimsstyrjöld verði mislingar landlægir hér og mun þéttbýlið á suðvesturhorni landsins vera aðalviðhaldsstaður sóttarinnar. (Framhald í nœsta blaði). læknaneminn 41

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.