Læknaneminn - 01.04.2004, Page 4
Stefán B Sigurðsson
Viðtal við Stefán B. Sigurðsson, prófessor,
sem tók við stöðu forseta læknadeildar Háskóla íslands t.júlí 2003.
1. Hvað réði mestu um þá ákvörðun þína að bjóða þig fram til deildarfor-
seta?
Þau 3 ár sem ég var varadeildarforseti tókst ég á við mörg
áhugaverð mál fyrir hönd deildarinnar sem ég hef mikinn
áhuga að fylgja frekar eftir. Þar eru inntökuprófin, samninga-
gerðin við Landspítalann og endurskipulagning læknanáms-
ins efst á blaði. Ég vann með mörgum aðilum að þessum
málum bæði innan og utan deildar og líkaði samvinnan vel og
því tilbúinn að starfa með þeim áfram.
2. Hvaða verkefni telur þú að brýnust sáu?
Það eru mörg mjög brýn verkefni framundan sem þarf að
leggja mikla vinnu í. Eitt stærsta málið sem fylgja þarf eftir
varðar ýmis atriði samningsins milli Háskólans og Landspít-
ala-háskólasjúkrahúss. Tryggja þarf aðstöðu nemenda þannig
að þeir fái bestu fáanlega kennslu en forsenda þess er góð
aðstaða kennara deildarinnar til að sinna kennslu og rann-
sóknum á sjúkrahúsinu. Kennarar læknadeildar þurfa að njóta
trausts stjórnenda sjúkrahússins til að skipuleggja kennslu og
rannsóknir og samræma þær annarri starfsemi sjúkrahússins
í góðri samvinnu við sviðsstjóra. Einnig taka fjölmargir aðrir
starfsmenn sjúkrahússins þátt íkennslu beint og óbeint og því
þarf mikið samstarf og góð samskipti milli starfsmanna beggja
stofnana til að mynda vel starfandi háskólasjúkrahús.
Önnur stærstu málin eru eins og ég nefndi áðan endurskipu-
lagning kennslu og ný hugsun hvað varðar fjármálastjórn
deildarinnar.
3. Telur þú að lestraraðstaða læknanema við Háskóla íslands sé viðun-
andi? Hvaða áform hefur þú um úrbætur á aðstöðu deildarinnar?
Hún er viðunandi á fyrstu tveimur til þremur árunum þar
sem aðstaðan í Læknagarði annar nokkurn veginn þörfinni.
Til stendur að setja þar upp skápa þar sem læknanemar geta
geymt bækur og annað sem tengist náminu og það ætti að
skapa enn betri nýtingu lesplássa. Aðstaðan í Heilsuverndar-
stöðinni leysir brýnustu þörfina fyrir fjórða til sjötta ár en sú
aðstaða er einungis til bráðabirgða og við erum þakklát fyrir
hvert misseri sem við fáum að halda aðstöðunni. Ég hef hafið
vinnu til að finna varanlegri lausn þess vanda en sú lausn þarf
að vera í nálægð við háskólasjúkrahúsið.
4. Nú er talsverð reynsla komin á lausnarleitarnám (problem baseú leaming)
við deildina. Hvernig hefur það gefist og sérð þú fyrir þér einhverja frekari
þróun á þessu kennsluformi?
Ég tel að það hafi gefist mjög vel og fleiri og fleiri kennarar
eru að taka upp í kennslunni þá hugsun sem liggur að baki
PBL. Nú er stefnt að því að koma á PBL vikum á vormisseri
1. árs og fjölga vikunum á 2. ári. Læknanemar virðast vel
ánægðir með þessa þróun og ég tel að þeir sem venjast henni
á fyrstu árunum komi til með að krefjast hennar sem víðast á
seinni árunum þar sem hún hentar mjög vel.
5. Hvernig verður inntökuprófum háttað næsta vor?
Pau verða með svipuðu formi og síðastliðið vor. Ég reikna
með að þau verði haldin um 20. júní. Við höfðum vonað að þau
gætu orðið fyrr, eða um 10. júní, en þar sem prófum í MA lýkur
4-Læknaneminn 2004