Læknaneminn - 01.04.2004, Side 10

Læknaneminn - 01.04.2004, Side 10
dýpstu lœgðum Míron FLJÓTVIRKT LYF GE6N ÞUNGLYNDI Míron Hver tafla inniheldur Mirtazapín, 30 mg O Omega Farma Ábendingar: Alvarlegt þunglyndi. Skammtar og lyfjagjöf: Skammtar eru einstaklingsbundnir. Lyfiö skal taka inn meö nægilegum vökva. Töflunum má skipta en þær má ekki tyggja. Æskilegast er aö taka lyfið inn aö kvöldi fyrir svefn. Meðferð með hæfilegum skammti ætti að gefa jákvæða svörun innan 2-4 vikna. Áhrif mirtazapins byrja þó venjulega að koma fram eftir 1-2 vikna meðferð. Æskilegt er að halda meðferðinni áfram þar til sjúklingur hefur veriö einkennalaus i 4-6 mánuði. Þá skal hætta meðferðinni smám saman. Skammtar fyrir fulloröna: Algengur upphafsskammtur er 15-30 mg á dag. Oftast þarf aö auka þann skammt til að ná hámarksverkun. Algengur viðhaldsskammtur er á bilinu 15-45 mg á dag. Skammtar fyrir aldraöa: Auka skal skammtana á lengri tíma og undir eftirliti. Utskilun lyfsins getur verið minnkuð hjá sjúklingum með skerta nýrna- eða lifrarstarfsemi og verður að taka tillit til þess ef lyfinu er ávísað þeim sjúklingahópum. Skammtar fyrír börn: Lyfið er ekki ætlað börnum. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju af innihaldsefnum lyfsins. Varnaðarorð og varúðarreglur: Gæta þarf varúðar við meðferð hjá sjúklingum með eftirfarandi sjúkdóma: Flogaveiki eöa vefrænar heilaskemmdir. Skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi. Hjartasjúkdóma, s.s. leiöslutruflanir, hjartaöng eða nýlegt hjartadrep. Lágan blóðþrýsting. Hætta á meðferðinni ef gula kemur fram. Hjá sjúklingum með skerta lifrar- eða nýrnastarfsemi getur dregið úr útskilnaði mirtazapíns. Almennt gildir um þunglyndislyf aö séu þau gefin sjúklingum sem þjást af geðklofa eða öðrum geðtruflunum geta geðræn sjúkdómseinkenni versnað. Einnig geta sjúklingar með geðhvörf sveiflast yfir í oflæti þegar þunglyndislyf eru notuð til meðhöndlunar á þunglyndisfasa sjúkdómsins. Sjálfsvígshætta sjúklinga hverfur ekki strax og meðferð með þunglyndislyfjum er hafin og getur jafnvel aukist í upphafi meðferðar. Þvi gæti verið rétt aö takmarka ávisað magn lyfsins í upphafi meðferðar. Beinmergsbæling hefur komiö fram sem aukaverkun meðferðar með flestum þunglyndislyfjum. Komi fram einkenni um sýkingu, s.s. hiti, hálssærindi eða bólga í munni, skal hætta meðferö og gera blóðkornatalningu. Likt og með önnur þunglyndislyf skal qæta varúöar hjá sjúklingum með sykursýki, truflun á þvaglátum (s.s. við stækkun blöðruhálskirtils), bráða þrönghornsgláku og aukinn augnþrýsting. Hafa ber í huga aö eldri sjúklingar eru oft næmari fyrir aukaverkunum þunglyndislyfja. Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Lyfið er ekki ávanabindandi en sé langtíma þunglyndislyfjameðferð hætt skyndilega geta sjúklingar fundið fyrir fráhvarfseinkennum eins og ógleði og höfuöverk. Akstur og stjórnun vinnuvéla: Athuga skal að hjá sumum sjúklingum getur mirtazapín haft áhrif á einbeitingu og viðbragðsflýti og ættu þeir sjúklingar að hafa það í huga viö akstur og stjórnun vélknúinna tækja. Meöganga og brjóstagjöf: Engin gögn liggja fyrir varðandi klínísk áhrif mirtazapíns á fóstur manna eöa nýbura en rannsóknir á dýrum hafa sýnt að mirtazapín getur valdið eituráhrifum og hækkun á dánartíðni nýfæddra afkvæma. Barnshafandi konur ættu einungis að nota lyfiö ef brýna nauðsyn ber til og mögulegur ávinningur móöur vegur þyngra en hugsanlegur fósturskaöi. Dýrarannsóknir benda til þess að mirtazapín skiljist aðeins í litlu magni út i brjóstamjólk. Gögn varðandi útskilnað i móðurmjólk eru þó ekki nægileg til að hægt sé að meta hættuna fyrir barnið. Aukaverkanir: Algengar(> 1%): Aukin matarlyst og þyngdaraukning, syfja, bjúgur, svimi og höfuðverkur. Mjög sjaldgœfar (<0,1%): Þreyta, stöðubundinn lágþrýstingur, oflæti, krampar, skjálfti, vöðvakippir, martraðir/ljóslifandi draumar, bráð mergbæling, hækkun á transamínösum í sermi, fótaórói, liðverkir/vöðvaþrautir, útbrot, breytt húðskyn. Milliverkanir: Mirtazapín á ekki að nota samtímis MAO-hemlum og ekki fyrr en 2 vikum eftir að töku slíkra lyfja er hætt. Mirtazapín getur aukið róandi áhrif benzódíazepínlyfja. Rannsóknir á milliverkunum mirtazapíns og ensímhamlandi eöa ensímhvetjandi lyfja eru ófullnægjandi. In vitro rannsóknir sýna þó að mirtazapín getur virkað sem hemill á cýtókróm P450 ensím 1A2, 2D6 og 3Á4. Klinískt mikilvægi þessa er óljóst en þar til nákvæmari gögn liggja fyrir ber að gæta varúöar við samhliða gjöf með lyfjum sem nota þessar umbrotsleiöir. Þetta á sérstaklega við um lyf með þröngt lækningabil, s.s. teófyllin, clózapin, perfenasín, lyf viö hjartsláttaróreglu, flogaveikilyf, þríhringja geðdeyfðarlyf, ciclosporín A og terfenadin. Karbamazepín og rifampícín örva umbrot mirtazapíns og minnka því plasmastyrk þess. Viö samhliða gjöf mirtazapíns og cimetidíns eykst plasmastyrkur mirtazapíns. Flúvoxamín er hemill á CYP 1A2. Kódein og mörg lyf i flokki sefandi lyfja (tíorídazín, perfenazín, súklópentixól, haióperidól og risperidón) og mörg geödeyfðarlyf (flúoxetín, paroxetín, sertralín og venlafaxín) eru hemlar á CYP 2D6 og geta þessi lyf því hamlað umbroti hvors annars. Greint hefur verið frá einu tilfelli serótónínheilkennis eftir samhliða notkun flúoxitíns og mirtazapins en vegna hamlandi áhrifa flúoxitíns á umbrot mirtazapins eykst plasmastyrkur þess. Vegna hamlandi áhrifa paroxetíns á umbrot mirtazapíns eykst plasmastyrkur mirtazapíns. Samhliða gjöf er óráðleg út frá lyfjafræðilegu sjónarmiði. Gæta skal varúðar þegar öflugir CYP 3A4-hemlar, s.s. HlV-próteasahemlar, sveppalyf af azólflokki, erytrómýcín og nefazódón eru gefnir samhliða mirtazapíni. Séu ensímhamlandi eða ensímhvetjandi lyf gefin samhliða mirtazapíni gæti þurft að aðlaga skammtinn og síðan aftur ef samhliða meðferð þessara lyfja er hætt. í in vivo milliverkana- rannsóknum hafði mirtazapín ekki áhrif á lyfjahvörf risperidóns, paroxetins, carbamazepíns, amitriptýlíns og címetidíns. Engin klínísk áhrif sem skipta máli eða breytingar á lyfjahvörfum hafa komið fram hjá mönnum við samtímis gjöf mirtazapíns og litíums. Varast ber aö neyta áfengis samtímis töku lyfsins þar sem áhrif þess á miðtaugakerfið geta verið aukin. Pakkningar og hámarksverð í smásölu 1. júlí 2003: Töflur 30 mg: 30 stk. 5.243 kr., 100 stk. 14.608 kr. Afgreiðslutilhögun: R. Greiösluþátttaka: B. Markaðsleyfishafi: Omega Farma. Maí 2003.

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.