Læknaneminn - 01.04.2004, Blaðsíða 11

Læknaneminn - 01.04.2004, Blaðsíða 11
j4. ÁRS VERKEFNl í BANDARÍKJUNUM Að taka fjórða árs verkefni í Bandaríkjunum Jón Torfi Gylfason A man comes into the ER and yells, „My wife's going to have her baby in the cab!“ I grabbed my stuff, rushed out to the cab, lifted the iady's dress, and began to take off her underwear. Suddenly I noticed that there were several cabs, and I was in the wrong one. Mark McDonald, fæðinga- og kvensjúkdómalæknir frá Texas. Eftir að hafa lítillega komist með puttana í rannsóknir sam- hliða læknanámínu datt mér í hug að gaman væri að vinna verkefni um sama efni í öðru landi, á stað sem væri virkur í rannsóknum á sjúkdómnum (legslímuflakk; endometriosis). Á fjórða námsári mínu kom svo tækifærið. Pá er læknanemum gert að vinna að 10 vikna rannsóknarverkefni sem lýkur með fyrirlestri og ritgerð. Ég settist því niður og aflaði mér upplýs- inga um hvar rannsóknir á þessu sviði væru virkastar úti í hin- um stóra heimi. Því næst skrifaði ég bréf til vel valinna staða með aðstoð leiðbeinanda míns hér á Islandi. Þetta voru staðir í Bretlandi, Hollandi, Ítalíu og Bandaríkjunum. Margir staðirnir gáfu jákvæð svör og sumir þeirra sendu fljótlega lýsingar á eðli og umfangi mögulegra verkefna. Raunverulega þurfa þessi líf- legu viðbrögð ekki að koma á óvart. Hver vill ekki ráða til sín læknanema sem er til í að vinna launalaust starf, dag og nótt í tíu vikur, ef því er að skipta? Eftir vandlega íhugun ákvað ég að fara til Houston, í Texas-fylki Bandaríkjanna. Mér fannst lýsing verkefnisins gefa góð fyrirheit, auk þess sem mér barst til eyrna að einungis þrír þarlendir kvensjúkdómalæknar hefðu birt fleiri vísindagreinar en prófessorinn þar i borg. í hönd fór einhver mesta skriffinskuvertíð lífs míns! Þýða þurfti bólusetningarvottorð mitt yfir á ensku, sækja um leyfi fyrir flutningi lífsýna úr landi, fá staðfestingu frá læknadeild Hl um að ég væri nemi við þá deild og að ég væri með sýni undir höndum sem ekki væru lífshættuleg. Ennfremur þurfti ad útbúa ferilskrá á ensku (CV), kaupa sjúkratryggingar, ganga frá leyfum frá Persónuvernd og Vísindasiðanefnd, sækja um húsnæði úti, fínkemba styrkjahandbækur hjá Fullbright-stofn- uninni og Alþjóðaskrifstofu Háskólans og fleira í þeim dúr. Haldið til Vesturheims Ferðin til Houston gekk ekki beinlínis átakalaust fyrir sig. í tollinum í Minneapolis lenti ég í meiriháttar vandræðum með einn tollvarðanna, sannkallaðan útlendingahatara (sennilega einhver „11. september-áhrif"). Hann var síður en svo hrifinn af því að útlendingur hygðist vinna launalausa rannsóknar- vinnu í USA. Hann leit svo á að ég væri að taka tækifæri frá samlöndum sínum og það leist honum illa á. Ég sýndi honum afrit af öllum leyfum, auk yfirlýsingar frá leiðbeinandanum í Houston, en ekki gaf hann mikið fyrir þá pappíra. Það fór svo að lokum að hann sendi mig á skrifstofu útlendingaeftirlitsins á flugvellinum þar sem mál mitt var tekið upp. Par gaf ég mig fram við starfsmann og kynnti honum erindi mitt. Hann sagð- ist því miður ekki geta afgreitt mig fyrr en ég tæki númer. Ég tók númer, þó svo að mér þætti það í meira lagi undarlegt, enda enginn sem beið að mér undanskíldum. Það hvarflaði þó ekki annað að mér en að hlíta þessum fyrirmælum, enda vildi ég ekki hætta á frekari tafir. Aðeins 15 mínútur voru í brott- för flugvélarinnar til Houston. Eftir að ferðafélagi minn hafði hjálpað mér að milda starfsmann útlendingaeftirlitsins, fékk ég loksins hinn svokallaða „WB-stimpil“ í vegabréfið mitt, en hann heimilar 90 daga dvöl í landinu. Þó mál leystust farsæl- lega á endanum fór þó svo að ég missti af vélinni til Houston og flaug því morguninn eftir. Þegar þarna var komið við sögu varð mér sterklega hugsað til orða íslensks læknis sem sótti sérmenntun sína til Bandaríkjanna hér á árum áður. „Þegar tollurinn og skriffinskan er að baki, tekur helgidómurinn við“. Var þetta virkilega satt? Texas Medical Center Monroe Dunaway Anderson, kaupsýslumaður frá Texas, átti hugmyndina að stofnun læknisfræðisetursins Texas Medical Center (TMC) upp úr 1930. Eftir honum er nefnt hið fræga M.D. Anderson sjúkrahús, sem sérhæfir sig í meðferð og rannsóknum á sviði krabbameinssjúkdóma. Hann lagði mikla peninga til verksins auk þess sem byggingarland fékkst að kostnaðarlausu. Þá létu íbúar Texas einnig fé af hendi rakna til Mynd 1. Texas Medical Center. 11
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.