Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 16

Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 16
SÉRNÁM í HEIMILSLÆKNINGUM Á ÍSLANDI Alma Eír Gunnar Helgí Jóhann Ágúst Svavarsdóttir1,2 Guðmundsson 2 Sigurðsson!,3 Sérnám í heimilislækningum á íslandi 1) Heimilislæknisfræði/læknadeild H.í. 2) Heilsugæslan Efstaleiti, Reykjavík 3) Heilsugæslustöðin Sólvangi, Hafnarfirði Samantekt Á síðustu árum hefur verið hægt að bjóða unglæknum upp á skipulagt sérnám í heimílislækningum hér á landi. Það er okkar mat að námið sé nú það vel mótað að það standist erlendar gæðakröfur. í þessari yfirlitsgrein gerum við í stuttu máli grein fyrir innihaldi námsins, skipulagi og hugmyndum okkar um framtíðaruppbyggingu þess. Inngangur Heimilislækningar eru ung sérgrein, sem byggir þó á göml- um hefðum. Sérnám í heimilislækningum á sér hins vegar fremur stutta sögu, en ekki eru nema nokkrir áratugir síðan það hófst með skipulegum hætti í nágrannalöndum okkar. íslenskir heimilislæknar hafa sótt sérnámið erlendis í ríkum mæli, flestir hafa farið til Svíþjóðar, Kanada, Bandaríkjanna, Noregs og Bretlands. Margir hafa leitað sér frekari menntunar í faginu, sérstaklega að því er varðar rannsóknir og kennslu og eru tilbúnir að miðla af reynslu sinni þegar kemur að sérnámi í heimilislækningum á Islandi. Heimilislækningar á íslandi hafa átt fremur erfitt uppdráttar nú í nokkur ár. Fyrir því eru ýmsar ástæður sem ekki verða tíundaðar hér. Við teljum að nú séu mun bjartari tímarframund- an og sóknarfæri mörg. Því er það mjög ánægjulegt að geta boðið upp á sérnám í greininni. Námsstöður á íslandi í dag eru níu námsstöður í heimilislækningum í boði hér á landi. Þær eru auglýstar til þriggja ára í senn af Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Unglæknar verða að afla sér frek- ari starfsþjálfunar íeitt og hálft ár til viðbótar þar eð samkvæmt reglugerð um almennt lækningaleyfi og sérfræðileyfi tekur starfsnám til sérfræðiréttinda fjögur og hálft ár. Þessi ráðstöf- un var upphaflega hugsuð til þess að hvetja unglækna til að afla sér starfsreynslu erlendis, sem margir hafa nýtt sér. Aðrir hafa orðið sér út um viðbótar starfsþjálfun hérlendis á sjúkra- húsum eða heilsugæslustöðvum. Skipulag sérnámsins Einstaklingsmiðað nám. Þeir sem hafa áhuga á að stunda sérnám í heimilislækningum hér á landi geta sótt um ofan- greindar stöður þegar þær eru auglýstar. Umsækjendur eru síðan boðaðir í viðtal þar sem farið er yfir skrifleg gögn, áhuga- svið umsækjenda og mannkosti. Hingað til hafa umsækjendur að jafnaði verið fleiri en þau stöðugildi sem eru í boði. Eftir að auglýsinga- og ráðningaferli lýkur fara þeir sem hreppt hafa stöðurnar aftur í viðtal til kennslustjóra. Nú er lögð áhersla á það að sérsníða námskrána fyrir hvern námslækni fyrir sig inn- an ramma reglugerða svo sem hvar hann vill vera, hvort um er að ræða dreifbýli eða þéttbýli, hvaða leiðbeinanda hann fær og hvaða áherslur hann hefur varðandi hliðarfögin. Starfsþjálfun getur verið nokkuð breytileg eftir því hvaða heilsugæslustöð viðkomandi tengist. Hér á eftir verður lýst námsskrá sem hefur verið reynd og þróuð í Heilsugæslunni Efstaleiti í Reykjavík. Námsskrá þessi hefur verið í stöðugri þróun síðan haustið 2000. Að þróun námsskrárinnar hafa komið sérfræðingar stöðvarinnar í heimilislækningum, en það eru þau Alma Eir Svavarsdóttir, kennslustjóri framhaldsnáms, Elínborg Bárðardóttir, kennslustjóri í Efstaleiti, Gunnar Helgi Guðmundsson, yfirlæknir og Jörundur Kristinsson, fræðslu- stjóri í Efstaleiti. Innihald sérnámsins Innihald námsins miðast við hlutverk heimilislækna innan heilbrigðisþjónustunnar (1) og er í öllum aðalatriðum sam- kvæmt ákveðinni marklýsingu (2). Tafla I sýnir í meginatriðum hvernig starfsvikur námslækna líta út (I). Allir námslæknar verða að ná staðgóðri starfsþjálfun í kjarn- anum, það er í heimilislækningum á heilsugæslustöð eða læknamiðstöð undir handleiðslu sérfræðings íheimilislækning- um. Nám íhliðarfögum getur hins vegar verið breytilegt. Margir telja sig ef til vill hafa fengið langa reynslu af lyflækningum en skorti þjálfun í minni sérgreinum svo sem háls-, nef- og eyrna- lækningum, þjálfun við kvenskoðanir eða að sinna öldruðum svo eitthvað sé nefnt. Þá er hægt er að skipuleggja námið 16 - Læknaneminn 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.