Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 23

Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 23
Einkenni og teikn Einkenni hypercalcemiu eru margvísleg en ósértæk og oft á tíðum lúmsk. Þau fara bæði eftir því hversu há þéttni kalsíum er í blóði og hversu hratt hún eykst. Ef hækkun kalsíum er hægfara, geta einkennín verið smávægileg þrátt fyrir verulega hypercalcemíu14. Fyrstu einkennin eru oft óeðlilega mikil þvaglát, næturmiga, þorsti, lystarleysi, þreyta og slappleiki. Seinna fylgja gjarnan pirringur, depurð, einbeitingarörðugleikar, sljóleiki og jafnvel dá. Ógleði, uppköst, kviðverkir og hægðatregða eru algeng einkenni frá meltingarvegi. Einkenni frá kviðarholi geta einnig tengst bráðri brisbólgu sem er þekktur fylgikvilli hypercalcemiu. Minnkaður vöðvakraftur, beinverkir, nýrnasteinar og kláði koma eínnig fyrir. Víð skoðun er venjulega fátt að finna sem hægt er að reiða sig á. Að sjálfsögðu ber að gera ítarlega líkamsskoðun þar sem leitað er eftir eitlastækkunum eða öðrum merkjum um krabbamein. Ekki má gleyma brjósta- og endaþarmsskoðun. Sjúklingar með svæsna hypercalcemiu bera oft merki um verulegan vökvaskort en of hátt kalsíum í blóði eykur útskilnað á fríu vatni í nýrum. Vökvainntaka er oft verulega skert vegna ógleði og uppkasta. Meðvitundarskerðing getur fylgt svæsinni hypercalcemiu. Rannsóknir Hafa þarf hypercalcemiu íhuga íhuga þegar eínkenni eins og tíð eða mikil þvaglát, eða einkenni frá taugakerfi og meltingarvegi koma fyrir hjá sjúklingi með krabbamein. Grunnuppvinnsla felur meðal annars í sér eftirfarandi rannsóknir. 1. Blóðrannsóknir a. Kalsíum, fosfat og albúmín Lág þéttni albúmíns hefur áhrif á heildarkalsíum í blóði þar eð tæplega helmingur þess er bundíð albúmíni14. Reikna þarf út hlutfall jónaðs kalsíum í blóði. Flestar stærri rannsóknarstofur bjóða upp á mælingu á jónuðu kalsíum sem ávallt ætti að framkvæma ef kostur er. b. Alkalískur fosfatasi Bæði illkynjasjúkdómarog ofvirkni kalkkirtla getavaldið hækkun á alkalískum fosfatasa. Hafa ber í huga að lifrarmeinvörp geta valdið hækkun án þess að um beinameinvörp sé að ræða c. Elektrólýtar, kreatínín og úrea Oft eru verulegar elektrólýtatruflanir til staðar vegna vökva- og elektrólýtataps. Oft finnst væg lækkun á klóríði og hækkun á bíkarbónati (efnaskiptalýtíng með lágu klóríði). Há þéttni klóríðs vekur híns vegar grunsemdir um ofvirkni kalkkírtla. Langvinn hypercalcemia getur valdið sýringu (acídosis) vegna áhrifa á nýrnapíplur (nýrnapíplusýring).. d. PTH Einkum mælt ef greiningin er óljós en það er yfirleitt lágt í illkynja sjúkdómum. Sjaldan þarf þó að mæla PTHrP. 2. Hjartarafrit Hypercalcemia getur valdið styttu QT-bili og lengdu PR-bili. Eínnig sést lengd T-bylgja og gleikkun á QRS-komplexum við svæsna hækkun á kalsíum. 3. Röntgenmynd af brjóstholi Getur sýnt fyrirferð í lungum eða miðmæti. Meðferð Svæsin hypercalcemia getur verið lífshættuleg og því er mikilvægt að hefja meðferð skjótt. Endanleg greining þarf ekki að liggja fyrir áður en meðferð er hafin því að upphafsmeðferð hypercalcemiu er í raun óháð orsök hennar14'15- Fylgjast þarf afar grannt með sjúklíngi fyrstu dagana og getur þurft að mæla elektrólýta á 8-12 klukkustunda fresti í fyrstu. 1. Vökvagjöf í æð Þar eð þessir sjúklingar eru nær alltaf með verulegan salt- og vökvaskort (hypovolemia), er vökvi í æð alltaf fyrsta meðferð15. Ísótónískt saltvatn (0.9%) er besti kosturinn og getur þurft 4-8 lítra fyrsta sólarhringinn. Góð aðferð er að gefa 1 lítra á 1-2 klst. og endurmeta ástand sjúklingsins eftir það. Ef hjartabilun er ekki fyrir hendi þá er kröftugri vökvagjöf haldið áfram. Fylgjast skal grannt með hjartsláttartíðni og blóðþrýstingi, þ.á m. réttstöðublóðþrýstingi. Þvagræsilyf, t.a.m. fúrósemíð, valda auknum útskilnaði kalsíum í nýrum en alls ekki skal beita slíkum lyfjum nema búið sé að leiðrétta vökvaskort til fulls. Ógætileg notkun þvagræsilyfja getur gert slæmt ástand enn verra. Oft þarf einníg að gefa kalíum. Ef natríum í blóðí fer yfir eðlileg mörk er ráðlegt að breyta vökvanum í hálfísótónískt saltvatn (77 mmól af Na+ í hverjum lítra). Þegar vökvaskortur hefur verið leiðréttur má minnka rennslishraðann niður í 100- 150 ml/klst. Vökvagjöf ein sér er þó ekki nægjanleg til að leiðrétta ástandið og verður alltaf að nota önnur lyf. 2. Bisfosfónöt Þessi lyf draga úr vírkni osteóklasta og minnka þannig losun kalsíum úr beínum16,17’18. Þetta eru afar virk lyf sem í réttum skömmtum geta nær undantekningarlaust leiðrétt hypercalcemiu. Pamídrónat hefur verið mikið notað og hafa rannsóknir sýnt að nær allir sjúklingar með illkynja hypercalcemiu svara 90 mg skammti19. Áhrifin koma venjulega fram innan fárra daga og vara í allt að 2-3 vikur20. a. Pamídrónat 60-90 mg í 1 lítra af 0,9% saltvatni, gefið á 3 klukkustundum. .b Zóledrónat 4 mg í æð, gefið á 15 mínútum. 3. Kalsítónín Þetta lyf verkar hratt og lækkar venjulega kalsíum í sermi innan fárra klukkustunda. Upphafsskammtur er 4 einingar (IU)/kg gefið í vöðva eða undir húð. Auka má skammtinn í 8 lU/kg á 12 eðajafnvel 6 klst. fresti eftir 1-2 daga náist ekkí fullnægjandi árangur með upphafsskammti. Áhrifin eru því miður skammvinn og lyfið tapar venjulega virkni sinni innan fárradaga. Notagildið er þvífyrst og fremstvið upphafsmeðferð 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Læknaneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.