Læknaneminn - 01.04.2004, Page 32

Læknaneminn - 01.04.2004, Page 32
a Hjörtur G. Björn Geir Gíslason. Leifsson Aðgerðir vegna alvarlegrar offitu ADGERDIR VEGNA ALVARLEGRAR OFFITU Inngangur: Offita er nú talin vera annað mesta heilbrigðisvandamál í hin- um vestræna heimi á eftir reykingum og er um 8% af heildar- kostnaði við heilbrigðisþjónustu tengdur offitu (1i2). Þegar offita er metin er stuðst við líkamsþyngdarstuðul; BMI (Body Mass Index = þyngd sjúklings í kg deilt með hæð í metrum í öðru veldi). Einstaklingar með þyngdarstuðul yfir 30 teljast offeit- ir og ef þyngdarstuðull fer yfir 45 telst offitan vera alvarleg (dæmi: 1,70m á hæð og 128 kg; BMI = 45). í Bandaríkjunum hefur líkamsþyngd þýðis aukist hratt síðustu tvo áratugi og er nú svo komið að 23% fullorðinna og 19% barna á aldrinum 14-19 ára stríða við offitu (BMI>30) (3). íslenskar rannsóknir gefa til kynna að vandamálið hérlendis sé að verða svipað. Mikil offita er heilsuspillandi og til mikils er að vinna til að ná líkamsþyngd niður. Rannsóknir hafa sýnt að sjúklingar sem þjást af alvarlegri offitu (BMI yfir 45) hafa minni lífsgæði og ævilengd þeirra er að meðaltali 15 árum styttri vegna fylgisjúk- dóma offitu en hjá eðlilega þungum jafnöldrum (4'6). Rannsókn- ir sýna að eftir að 40 ára aldri er náð eru um 80% þessara sjúklinga komnir með a.m.k. einn fylgisjúkdóm offitu (5). Helstu fylgisjúkdómar offitu eru sýndir ÍTöflu 1. Offita er lífsstílssjúkdómur. Erfðir skipta hér miklu máli en hina miklu aukningu offitusjúklinga síðustu áratugina er fyrst og fremst hægt að skýra með breytingum í umhverfi og aðstæðum fólks. Orkuþörf daglegs lífs hefur minnkað stór- lega á sama tíma og framboð fæðu hefur aldrei verið meira og stöðugra. Sammerkt með flestum offitusjúklingum er mikil óreiða gagnvart næringu, hreyfingu og hvíld (6). Offita er lang- tímavandamál, megrunarkúrar skila árangri en sjúklingarnir þyngjast fljótt aftur. Um 85% þeirra sem grennast hafa náð fyrri þyngd eftir 1-5 ár(7). Sjúklingar með alvarlega offitu eru oftast komnir í vítahring þar sem hreyfing og allar athafnir eru erfiðar og brennslan því minnkuð. Þeir eiga oft erfitt með að stunda vinnu, einangra sig og því eru þjóðfélagsleg og geðræn vandamál algeng hjá þessum einstaklingum(8). Meðferð: Offita er heilsufarsvandamál hjá um 20% þjóðarinnar og þessi tala fer ört hækkandi. Skurðaðgerðir eru neyðarlausn verst settu sjúklinganna þar sem öll önnur úrræði eru þrotin og engin allsherjarlausn til á þessum mikla vanda. Skurðaðgerð gegn offitu er eingöngu ætluð mjög þungum sjúklingum. Aðgerðin er ekki fegrunaraðgerð og markmið aðgerðarinnar er fyrst og fremst að fyrirbyggja/meðhöndla fylgisjúkdóma alvarlegrar offitu. Við höfum stuðst við eftirfarandi við val á sjúklingum í aðgerð: 1. Þyngdarstuðull um eðayfir 45. 2. Að sjúklingur sé 55 ára eða yngri. 3. Ef sjúklingur þjáist af fylgisjúkdómum offitu (sjá töflu 1) þá styrkir það ábendingu fyrir aðgerð jafnvel þó þyngdarstuðli sé ekki að fullu náð. Helstu kröfur til sjúklinga fyrir aðgerð: 1. Að sjúklingur hafi reynt önnur úrræði til hlítar þar sem skurð- aðgerð er einungis gerð ef allt annað bregst. 2. Meðferðarprógram fyrir aðgerð á Reykjalundi. 3. Bréf frá heimilislækni þarf að liggja fyrir þar sem hann styð- ur ákvörðun um aðgerð. Þetta er mikilvægt í Ijósi þess að eftir aðgerð er þörf á ævilöngu eftirliti. 4. Að sjúklingur hafi skilning á vandamáli sínu þ.e. að offita sé langvarandi vandamál sem aðgerð ein og sér leysi ekki að fullu. Að sjúklingur sé líklegur til að geta tekist á við þau vanda- mál sem upp geta komið eftir aðgerð. Einnig verður hann að vera tilbúinn til að vera í ævilöngu eftirliti eftir aðgerðina. 5. Sjúklingar sem eru virkir alkohólistar eru ekki teknir til aðgerðar. Mikilvægt er að sjúklingar geri sér Ijóst að aðgerðin er aðeins hluti af meðferðinni og til að góður árangur náist þurfa sjúklingarnir að takast á við rót vandans. Langtímaárangur er það sem mestu máli skiptir og góður árangur næst ekki ef ekki er ráðist á rót vandans. Sjúklingar þurfa því að breyta sínu fyrra atferli til að þyngjast ekki aftur. Á Reykjalundi er starfrækt þverfaglegt teymi (læknar, hjúkr- unarfræðingar, sjúkraþjálfarar, næringarráðgjafar, sálfræðing- ar) sem hafa sérhæft sig í meðferð offitusjúklinga (6). Við 32 - Læknaneminn 2004

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.