Læknaneminn - 01.04.2004, Síða 48
GETNAÐARVARNIR - HVAÐ ER TÍTT^
Ný koparlykkja
Lykkjan hefur verið mikið notuð hérlendis og eru það einkum
konur sem eiga börn fyrir. Hún er langtímagetnaðarvörn,
hentar vel konum sem þola illa eða vilja ekkí getnaðarvörn
sem inniheldur hormóna. Algengasta aukaverkun lykkjunnar
eru auknar blæðingar og tíðaverkir. Nýlega kom á markað
koparlykkja (Flexi-T-300)
sem er minni um sig en þær eldri og er með þverörmum
sem sveigjast inn á við. Færri konur láta fjarlægja hana vegna
blæðinga og/eða verkja. Lykkja þessi dugar í 3 ár hjá yngri
konum en í 5 ár ef konan er > 35 ára. Öryggi hennar er áþekkt
eldri lykkjum þ.e. P.I.: 1.
Ný neyðargetnaðarvörn
Sýnt hefur verið fram á í rannsóknum að gott aðgengi
neyðargetnaðarvarnar (NGV) getur fækkað fóstureyðingum
um þriðjung,- Hana verður þó að nota innan 72 klst. frá
óvörðum samförum/„slysi“- því fyrr því betra.
Yuzpe aðferðinni var fyrst lýst: Tvær töflur m. 250 míkróg.
LNG + 50 míkróg EE (.Neogynon) teknar sem fyrst og
aftur eftir 12 klst. Petta hefur verið markaðsett hér sem 4
töflur í pakka; Tetragynon, og fengist án lyfseðils núorðið.
Aukaverkanirnar eru talsverðar og tengjast háu estrogeni í
skammtinum -ógleði og jafnvel uppköst.
Þvíhefur verið þróuð ný neyðargetnaðarvörn sem inniheldur
aðeins gestagen, þ.e. 750 míkróg. af LNG, sem er tekin
sem fyrst og aftur eftir 12 klst. Nýja neyðargetnaðarvörnin,
Postinor, er am.k. jafn áhrifarík og þolist mun betur, og er nú
seld hér án lyfseðils.
Getnaðarvarnir sem innihalda aðeins gestagen (gestagen only con-
traceptives)
Þessar getnaðarvarnir innihalda ekkert estrogen og henta
því þar sem eru frábendingar fyrir notkun þess eða það þolist
illa. Hins vegar geta þær ekki líkt eftir eðlilegum tíðahring
þar sem þær innihalda einvörðungu gestagen.Tíðablæðingar
verða því ekki reglulegar. Blettblæðingar og milliblæðingar eru
algengar í fyrstu en minnka oftast með tímanum og verða þá
strjálar (oligomenorrhea) og hættajafnvel hjá sumum konum
(amenorrhea). Einstaklingsbundið er hversu vel konur sætta
sig við breytt blæðingarmynstur og skiptir máli að útskýrt sé
hvers vegna breytingarnar eiga sér stað.
Þessar getnaðarvarnir hafa verið vinsælar hjá konum með
börn á brjósti, t.d. gestagen-eingöngu pilla, oft kölluð mini-
pilla. Estrogenið í samsettu pillunni dregur úr mjólkurmyndun
og skilst einnig út í mjólkinni og hefur því notkun hennar ekki
verið ráðlögð, a.m.k. ekki fyrstu mánuðina meðan barnið er
eingöngu á brjósti. Eldri tegundir mini-pillunnar hindruðu ekki
egglos nema í u.þ.b. 50% tilvika en verkuðu fyrst og fremst
með því að þykkja slímið í leghálsinum og halda slímhúð
legsins (endometrium) þunnu, þannig að implantation gæti
ekki orðið.
Fyrir rúmu ári kom á markað ný mini-pilla, Cerazette, sem
inniheldur 75 míkrogrömm desogestrels og hindrar egglos í
98% tilvika. Öryggi hennar er því áþekkt samsettu pillunnar.
Hún var rannsökuð á kvennadeild LSH hjá konum með börn
á brjósti m.t.t. áhrifa á magn og samsetningu brjóstamjólkur
(2). Niðurstaðan var sú að enginn munur var á mjólkinni hjá
konum sem tóku mini-pílluna og samanburðarhópi sem notaði
koparlykkju. Börnunum var fylgt eftir til 2 1/2 árs aldurs og
sást enginn munur á vexti þeirra eða þroska (2).
Langverkandi getnaðarvarnir
Nú er það svo að flestar konur eru „útsettar" fyrir þungun í
u.þ.b. 30 ár ævinnar en kjósa flestar ekki að eiga nema 2-3
börn. Það getur því alls verið um aldarfjórðungur (með hléum)
þar sem konan/parið vill koma í veg fyrir þungun. Þá getur
verið hentugt að velja getnaðarvörn sem má síðan „gleyrna",
þ.e. langverkandi getnaðarvörn. Lykkjan er dæmi um slíka
getnaðarvörn.
Aðrar langtíma getnaðarvarnir hafa verið þróaðar sem eiga
það sammerkt að innihalda eingöngu gestagen. Þær eru
einnig mjög öruggar, þ.e. P.l. er mjög lágur þar sem ekki er þörf
á daglegri meðferðarheldni.
Fyrsta getnaðarvörnin hér af þessu tagi er hin svokallaða
3ja mánaða sprauta; Depoprovera sem er 150 mg (3ml)
af medroxyprogesterone acetat gefið í vöðva á 12 vikna
fresti. Öryggið er mikið, P.l.< 0.4, en aukaverkanir geta verið
talsverðar, aðallega milliblæðingar og blettblæðingar sem
minnka þó oftast með tímanum og verður amenorrhea æ
algengari. Talsverðan tíma (uppundir eitt ár) getur tekið fyrir
konur að verða frjóar á ný eftir að notkun er hætt. Sumar konur
þyngjast talsvert, og aðrar finna fyrir þunglyndi og minnkaðri
kynhvöt. Oftast þolist getnaðarvörnin þó vel.
Mynd 1
48-Læknaneminn 2004