Læknaneminn - 01.04.2004, Side 61

Læknaneminn - 01.04.2004, Side 61
gera umsækjanda kleyft að átta sig á prógramminu og því samfélagi sem ætlunin er að búa í næstu árin. Mikið er lagt upp úr að undirbúningur umsækjenda sé góður fyrir viðtölin, því þó ekki sé spurt faglegra spurninga eru oft lagðar erfiðar spurningar fyrir umsækjendur um þá sjálfa, s.s. hverjir eru þínir helstu gallar?, hvað getur þú lagt af mörkum í okkar prógrammi? hvaða tilfelli hefur haft mest áhrif á þig sem lækni? o.s.frv. Gott er að fara yfir lista af helstu spurningum sem lagðar eru fyrir umsækjendur áður en haldið er í viðtölin svo svörin verði skipulögð og ákveðin. Lesið “First aid for the Match’’X\\ að leita frekari upplýsinga. Hvort sem sótt er um stöðu í gegnum hefðbundnar leiðir eða ERAS er nauðsynlegt að skrá sig í “Matching” kerfið (National Resident Matching Program, NRMP). Hægt er að hringja eða skrifa til NRMP og biðja um að fá senda “Handbook for independent applicants”. \ þessari handbók er að finna umsóknareyðublað sem er fyllt út og síðan sent til NRMP. Umsóknarfrestur rennur út í byrjun desember. “Matching" kerfið er í stuttu máli þannig að eftir að viðtölum er lokið raða prógrömm umsækjendum niður á lista eftir því hverja þeir sækjast mest eftir að fá til sín. Umsækjendur raða líka niður á lista þeim prógrömmum sem þeir vilja helst komast í. Þessir listar eru síðan tölvukeyrðir þannig að sem flestir verði ánægðir. Mikilvægt er að umsækjendur raði prógrömmum niður eftir því hvert þá langar helst til að fara en ekki eftir því hvar þeir telja Ifklegast að þeir komist inn. “Matching" kerfið virkar nefnilega þannig að ef fleiri en eitt prógramm vilja umsækjanda kemst hann inn í það prógramm sem hann setti ofar á sinn lista. Pannig er reynt að tryggja að menn komist á þá staði sem eru eftirsóknarverðastir. Um miðjan mars rennur svo upp “Match-day", þá fást loksins upplýsingar um hvar viðkomandi mun eyða næstu árum ævi sinnar, en gott er að hafa í huga að niðurstöður úr “Matching” eru bindandi og því eins gott að setja aðeins á listann sinn prógrömm sem áhugi er fyrir að komast í. Ef umsækjandi kemst hvergi að er hægt að reyna að komast inn í prógrömm sem fylltust ekki, þ.e. fengu ekki nægilega marga góða umsækjendur. Pað er hins vegar vont að treysta á þá von, sérstaklega í fögum þar sem mikil samkeppni ríkir um stöður, en þessi prógrömm fyllast nær öll í “Matching". Nokkrar sérgreinar hafa sín eigin “Matching" kerfi sem nauðsynlegt er að skrá sig í sérstaklega. Lista yfir þessar sérgreinar er m.a. að finna á bls.2 í “First aid for the Match". Þegar búið er að tryggja sér stöðu í prógrammi er skrifað undir ráðningarsamning og byrjað að skipuleggja það mikla fyrirtækisem búferlaflutningar milli heimsálfa eru. Útlendingar í sérnámi í Bandaríkjunum fara venjulega inn á J-1 visa sem er tímabundið atvinnuleyfi í Bandaríkjunum. Þegar sérnámi er lokið rennur atvinnuleyfið út og viðkomandi þarf að fara af landi brott, en má sækja um fast dvalar- og atvinnuleyfi að 2 árum liðnum. Einnig er hægt að fara inn á H-1 B visa, sem er “temporary worker visa". Til að geta farið inn á þessu visa verður viðkomandi að hafa lokið step 3 af USMLE áður en haldið er utan. Step 3 er sennilega léttasta USMLE prófið, en þetta próf er einungis hægt að taka í Bandaríkjunum. Þeir sem hafa hug á að verða áfram í Bandaríkjunum að sérnámi loknu ættu alvarlega að íhuga að reyna að komast inn á H-1B visa. Þegar komið er inn í landið á J-1 visa er erfitt að komast hjá því að þurfa að fara úr landi eftir að sérnámi lýkur. Það er hægt að fá stöðu á afskekktum (og óvinsælum) stað í 3-5 ár í stað þess að fá varanlegt atvinnuleyfi. Einnig býður prógrammið stundum upp á s.k. 0-1 visa, sem er gefið fólki með “outstanding qualifications”. Eftir að búið er að breyta yfir á 0-1 visa er svo hægt að fá varanlegt atvinnuleyfi (green card) með aðstoð lögfræðings og slatta af peningum. Flestir íslenskir læknar fara þó heim að sérnámi loknu. Að lokum má nefna að það er sjálfsagt að taka þátt í hinu s.k. “green card lottery", en þar eru dregin út nokkur atvinnuleyfi á ári. Skráning er venjulega í október ár hvert. Til að afla frekari upplýsinga um þetta lotto er best að hafa samband við sendiráð Bandaríkjanna (s. 562-9100, www.usa.is). Laun í sérnámi í Bandaríkjunum fara ekki eftir hversu mikið er unnið, borguð eru föst laun og eru árslaun á fyrsta ári u.þ.b. $ 35000, sem gerir um 170-180 þúsund krónur útborgað á mánuði. Þessi upphæð hækkar nokkuð þegar líða tekur á námið og á fjórða ári eru árslaunin um $45000. Sums staðar er “moonlighting" leyft, þ.e. að vinna annars staðar með náminu og eru þá oft ágætis laun í boði. Tækifæri til aukavinnu hafa þó farið minnkandi til seinni ára. Einnig er boðið upp á styrk til bókakaupa og námsferða. Þar sem húsaleiga er dýr eins og í New York City (lítil hola á 100.000 kr á mánuði - kakkalakkar innifaldir) er hægt að fá niðurgreitt húsnæði á vegum sjúkrahússins. Þessi laun bjóða ekki upp á neitt lúxuslíf en þegar haft er í huga að mun ódýrara er að lifa víðast hvar í Bandaríkjunum en á Islandi eru þessi kjör alveg viðunandi. Ef farið er út með fjölskyldu og aðeins annar aðilinn er í vinnu, er erfiðara að láta dæmið ganga upp og betra að safna sér varasjóði áður en haldið er utan. Eins og kemur fram í þessari grein er talverð fyrirhöfn í því fólgin að sækja um sérnám í Bandaríkjunum. Það er hins vegar reynsla höfundar að kerfið vinnur vel og er skilvirkt. Mjög mikilvægt er að gefa sér góðan tíma og hefja undirbúning snemma. í viðauka 1 eru settar upp mikilvægar tímasetningar ef ætlunin er að hefja sérnám í Bandaríkjunum 2005. í viðauka 2 eru helstu heimilisföng og netföng sem nauðsynleg eru í undirbúningsferlinu. Það er að mínu mati mikilvægt fyrir íslenska heilbrigðiskerfið að hluti lækna sæki sér menntun í Bandari'kjunum því með því er tryggð sú fjölbreytni í menntun lækna sem einkennir heilbrigðiskerfið á Islandi og er þess helsti kostur. Frh. á næstu síðu. 61

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.